Sameiningin - 01.05.1920, Blaðsíða 31
157
1
1. Hvernig líkaði Samúel það, að Sál var hafnað? Hann
var lengi sorgmæddur út af Sál (1. v.). 2 Hvað sagði Drottinn
Samúel að gjöra? Hann sagði spámanninum að syrgja ekki
lengur fráfall Sáls, heldur fara til Betlehem og smyrja einn af
sonum ísaí til konungs. 3. Hver var ísaí? Hann var sonur
Óbeðs, sonar þeirra Rutar og Bóasar. 4 Hvað gjörði svo Sam-
úel? Hann kom til Betlehem og færði þar Guði fórn, eins og
Drottinn hafði sagt honum, og bauð Isaí og sonum hans til
fórnarveizlunnar. Voru þá synir ísaí, hver eftir annan, leidd-
ir fram fyrir Samúel. 5. Hvað hét elzti sonurinn? Hann hét
Elíab, og var fríður sýnum og mikill vexti. 6. Hvernig leizt
Samúel á hann? Hann sagði við sjálfan sig: “Vissulega stend-
ur hér konungsefnið frammi fyrir Drotni”. 7. En hvað sagði
Guð um Elab? Guð sagði við Samúel: “Lít þú ekki á skapnað
hans og !háan vöxt, því að eg hefi hafnað honum. Mennirnir
líta á útlitið, en Drottinn lítur á hjartað.” 8. Hvað margir af
sonum ísaí voru leiddir fram fyrir Samúel? peir voru sjö, en
Drottinn hafði engan þeirra kosið. 9. Hvað gjörði Samúel þá?
Hann spurði, hvort þetta væri allir sveinarnir. ísaí sagðist
eiga einn eftir, þann yngsta, sem stæði yfir fé. Hann hét
Davíð. Sagði þá Samúel ísaí að senda þegar eftir honus. 10.
Hvernig var Davíð útlits? Hann var ungur að aldri, rjóður,
fagureygur og vel vaxinn. 11. Hvað var svo gjört, þegar Davíð
kom? Drottinn sagði Samúel að smyrja hann til konungs, og
þegar það var gjört, þá kom andi Guðs yfir Davíð. 12. Varð
Davíð konungur þegar í stað? Nei, það leið langur tími áður
en hann kom til ríkis. 13. Hvað lærum við af þessu? a. Við
eigum ekki að eyða tímanum í sorg og þunglyndi, þegar illa
gengur. Guð er ekki ráðalaus, þótt einhver af þjónum hans
hafi brugðist. b. Fyrst valdi Guð til konungs þann mann, sem
fólkinu gazt vel að (1. Sam. 12, 13). Sá maður reyndist illa.
pá valdi Guð annan eftir sínu hjarta (1. Sam. 13, 14), og sá
maður reyndist ágætur konungur. Hirðum ekki um óvingan
manna, ef við getum þóknast Guði. c. Drottinn sagði ekki
Samúúel þegar í stað, hvern af sonum ísaí hann ætti að smyrja
til konungs. Hann birtir okkur ætíð vilja sinn smátt og smátt,
ieiðir okkur fet fyrir fet á leið þeirri, sem við eigum að ganga.
d. “Mennirnir líta á útlitið, en Drottinn lítur á hjartað.” Menn-
irnir dæma manninn eftir fríðleik, atgjörvi, gáfum, en Guð met-
ur okkur eftir því, hvort við eigum hreina og góða sál, eða ekki.
e. Sál var að leita að ösnum, en Davíð að gæta sauða, þegar
Drottinn kallaði hvorn um sig. Öll þörf vinna er heilög og