Sameiningin - 01.05.1920, Blaðsíða 8
134
hann þarfnast. “Spor þetta er stigið í trú, og eg- lofa
Guð fyrir kraft trúarinnar. Enginn hlutur er Guði ó-
máttugur.” Aldrei segir liann að jafn-mikil þörf hafi
vrerið þess, að flytja gleðiboðskap frelsarans út um lieim-
inn eins og nú, og enginn heiður sé jafn-mikill og það, að
vera erindreki í Krists stað.
Þessi ungi maður er sonur Ólafs heit. Loptssonar,
hins trúheita leikprédikara, er eitt sinn bjó í Selkirk og
kom sér þar upp litlu trúboðslnisi, en flutti síðar til Ed-
monton. Svstir trúboðans er hjúkrunarkona, lærði hér
í Winnipeg, en er nú austur í Ontario, ágæt kona og sann-
kristin.
Guð blessi framtíð þesa unga manns og gefi honum
náð til að safna mörgum sálum í náðarríki Drottins vors
og frelsara.
---------o--------
SAYSKOT TIL NAUÐLÍÐANDI FÓLKS í NORÐUPÁLFU.
Eins og skýrt var frá í Sameiningunni síðast, gengst
lúterska kirkjan í Ameríku fyrir fjársöfnun til handa
trúbræðrum vorum í þeim löndum Norðurálfunnar, þar
sem eymdin er sem mest eftir stríðið. Dagana 9.—16.
Maí var samskota leitað í lútersku söfnuðunum víðsvegar
í Bandaríkjum og Canada. Var ætlast til að sam-
skotin yrðu að upphæð ein miljón og átta hundruð þús-
und dollarar. Ekki liefir enn frézt, hve stór upphæðin
liefir orðið, en minna en áætlað var, hefir hún naumast
orðið. Vonandi liafa margir íslenzku safnaðanna tekið
þátt í samskotunum. Fyrsti lúterski söfnuður í Winni-
peg sendi 175 doll. í hjálparsjóðinn.
Á víð og dreif.
Þökk fyrir komuna.
vSéra Kjartan Helgason liefir að þessu sinni lokið
ferðum sínum meðal Vestur-íslendinga. Hann talaði síð-
ast í kirkju Sankti Páls safnaðar í Minneota; flutti þar
fyrirlestur síðdegis ellefta Apríl, prédikaði í kirkjunni að
kvöldi sama dags og lagði af stað áleiðis til New York