Sameiningin - 01.05.1920, Blaðsíða 16
142
hafa gefið sig' við þeim rannsóknum í nærri 40 ár, ásamt
öðrum vísindamönnum í Sálarrannsóknarfélaginu brezka.
Hugskeyti bærust manna milli borg úr borg og úr einu
landi í annað. Fyrst út frá því væri gengið, að andi
mannsins íhéldi sértilveru eftir dauðann, væri ekki ósenni-
legt, að hugskeyti gæti borist frá einum huga til annars,
enda þótt annar væri ifluttur úr líkamanum, þar sem sann-
að væri, að ihugir manna gæti fundist hér án líkmlegra
skynjunarfæra. Enda sagðist Sir 0. L. vita til þess, að
mörg slík liugskeyti hafi borist “handan að. ’ ’
1 annan stað lýsti Sir 0. L. því, hvernig menn liér í
heimi ski'ftist á hugsunum með margsfconar meðalfærum
(media), svo sem símfærum og símriturum. A sama hátt
notuðu andar framliðinna manna miðla til þess að koma
skeytum sínum hingað. Sagði hann langa sögu af rann-
sóknum sjálfs sín og annara á þiví sviði. Merkilegust var
frásögn lians um skeyti frá prófesor Myers, háskólakenn-
ara við Oxford, er andaðist árið 1901 á bezta aldri. Hafði
hann bundið J»að fastmælum, áður en hann dó, að gera
vart við sig handan að, ef þess væri kostur.
Sir Oliver Liodge varaði menn við því, að vera auð-
trúa á þessa fræði. Sagði, að margt væri villa tóm og
blekking. En hann bað menn hafa opin augun fvrir því,
sem vísindalega sannaðist í þessum efnum sem öðrum.
Um “andatrú” er ekki að ræða hjá Sir 0. L. Ivenningar
■sínar boðar hann að eins sem vísindalegar staðreyndir.
L trúarefnum aðhyllist hann kenningar kristinnar kirkju.
Eins og skýrt er frá í ritgerð séra Kristins hér að fram-
an, cru vísindamenn tregir til að fallast á kenningar Sir
0. L., og mæla margir fastlega á móti. — Mér finst vit-
urlegast að láta sáílafræðinga og aðra vísindmenn eiga
við þessi efni og bíða úrslitanna rólegir. Vér kristnir
menn höfum æðstar sannanir fyrir öðru lífi í fcenningu
Drottins vors og frelsara. I þeirri trú erum vér sælir.
En ekfci þyrftum vér að amast við því, þó svo færi, að
vísindin fcæmist að þeirri niðurstöðu, að kristindómurinn
væri sannur í þessu efni sem öðru.
B. B. J.