Sameiningin - 01.05.1920, Page 22
148
gagn kirkjufélagsins hefir komist inn á því nær hvert einasta
heimili.
Kirkjublöðin segja frá iþví, að ekki verði hægt á þessu ári
að byggja þriðjunginn af þéim kirkjum, sem hugsað hafi verið
til, vegna dýrtíðarinnar.
í Bandaríkjunum eru gefin út 68 blöð, er fjalla um trúmál,
á öðrum tungum en ensku. Einungis eitt af þesssum ritum hef-
ir fleiri en 3,000 áskrifendur. Skiftast blöð þessi þannig, að 28
tilheyra rómversk-kaþólsku kirkjunni, 31 prótestöntum og níu
eru óháð.
í Ensku kirkjunni hefir prestaefnum fækkað á síðustu tíu
árum úr 672 ofan í 183, þrátt fyrir að kjör presta hafa verið
bætt og mikið að því unnið að fá menn til að búa sig undir
prestskap.
Menn ímynda sér stundum að alt, sem skari fram úr, hljóti
að vera í stórfeorgunum. pað hefir því vakið undrun margra,
að söngflokkur sá frá St. Olof College, í smábænum Northfield
í Minnesota, sem undanfarandi hefir verið að ferðast um stór-
borgirnar í austurlhluta Bandaríkjanna, hefir vakið aðdáun
allra þeirra, sem bezt bera skyn á söngleik. Söngflokkurinn
hefir farið sigurför um landið, án þess að slá af þeirri kröfu
við sjálfan sig, að ibera einungis fram það bezta, í stað þess að
lúta óheilbrigðum smekk þeirra, sem ekkert vilja nema “rag
time.” pað eru “tækifæri” víðar en í stórborgunum, ef menn
einungis færa sér þau í nyt.
| FYRIR UNGA FÓLKIÐ. |
pessa deild annast séra F. Ilallgi'ímsson. |
í_____________________________________________________*
T r úboðslæknirinn.
Saga frá Afríku.
“Ekki mikiill póstur í þetta sinn,” sagði Dan. Bolton, þegar
hann kom heim á trúboðsstöðina litlu með bréfin og blöðin, sem
hann hafði verið að sækja. “En tvö bréf eru frá trúboðsnefnd-
inni, og í þeim eru vonandi góðar fréttir.”