Sameiningin - 01.05.1920, Side 30
156
var fult af þakklæti og fögnuði út af því, að hann hafði ekki
látið freistast til að bregðast trausti læknisins.
Sunnudagsskóla-lexíur.
X. LEXÍA. — 6. JÚNÍ.
Sál bregzt—1. Sam. 15, 13—26.
Minnistexti: Af því að þú hefir hafnað skipun Drottins,
þá hefir Drottinn hafnað þér— 1. Sam. 15, 26.
1. Hvar og hvenær gjörðist þetta? 1 Gilgal, þorpi niður
við Jórdan, tvær mílur austur frá Jeríkó, nokkrum árum eftir
sigurinn yfir Filistum (sumir halda þó, að þetta hafi gjörst á
undan atburðum isíðustu lexíu). 2. Hvað hafði Drottinn skipað
Sál að gjöra? Sál átti að fara í leiðangur á móti Amalekitum,
sem voru grimmir ránsmenn og spellvirkjar. 3. Hvað átti hann
að gjöra við þann ræningjaflokk? Uppræta hann algjörlega,
og taka ekkert að herfangi. 4. Gjörði hann það? Nei. Hann
hertók Agag, konung Amaleks, og kom heim með vænstu sauð-
ina og nautin. 5. Til hvers þóttist hann gjöra þetta? Til þess
að færa Guði fórnir af fénaðinum, en í raun og veru tóku þeir
herfangið til þess að auðga sjálfa sig. 6. Hvaða orðsending
lét Drottinn spámanninn flytja Sál konungi út af þessu? Að
ríkið yrði frá honum tekið og gefið annari ætt, af því hann
hlýddi ekki Guði. 7. Hvað eigum við að læra af þessu? a. Guð
er réttlátur. Hann vitjar allra illmenna fyr eða síðar með
harðri refsing, eins og Amalekíta. b. Sjá, hve fagurlega Sál
heilsar Samúel og hve snildarleg er afsökunin, sem hann kem-
ur með. pað kemur oft fyrir, að fögur orð og smellnar afsak-
anir hylja vonda samvizku. c. Blíðmæli stoðuðu lítið, þegar
Samúel heyrði til fénaðarins á sömu stundu. pað er ervitt að
hylja syndina, hún kemur upp um menn þegar minst varir. d.
pegar Sál talaði um hlýðni, þá sagði hann “eg”, en þegar hann
mintist á óhlýðni, þá var það “fólkið”, isem um var að kenna.
Undanbrögð syndarans eru þetta, að fegra sinn málstað, og
smeygja ábyrgðinni yfir á aðra. e. Sál þóttist ætla að gjöra
gott með ávöxtum óhlýðninnar, en Guð hafnaði honum og synda-
fórn hans. “Hlýðni er betri en fórn.” f. Sál gat ekki að Ó-
sekju hreykt sér upp og vanvirt boð Guðs. pað getum við ekki
heldur. pað gildir ekki einu, hvernig þú lifir, hvað sem heim-
urinn segir um það mál.
XI. LEXIA. — 13. JÚNÍ.
Smaladrengur kjörinn til konungs—1. Sam. 16, 4—13.
Minnistexti: Og andi Drottins kom yfir Davíð frá þeim
degi—1. Sam. 16, 13.