Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1914, Page 31

Sameiningin - 01.03.1914, Page 31
27 og stillti liörpu lijarta þíns við sitt. Hann var þinn gnð, og lífs þíns fyrirmynd. 12. Þú hafðir áhrif, af því hugr þinn var—einsog mjöllin—lireinn og laus við tál. Þitt umboð var frá drottni: sekri sál að sýna leið til guðs í himininn. 13. Hann vígði skáldið sitt til starfs og stríðs unz storma lægði bak við dauðans höf; þú, Hallgrímr! varst herrans náðargjöf frá honum send til vor, lmns breyzka lýðs. 14. Menn hrifnir stara’ á heimsins dýrð og prjál, heimspekisóra, flærð og sjálfsblekking, en hrokans hrautir enda’ í örvænting og allt vort dramb að lokum reynist tál. 15. Hví gengr seint með öll vor trúmál enn ? Er ekki guð liinn sami nú og fyrr og þörfin söm við dauðans myrku dyr á drottins lijálp við syndum hlaðna menn? 16. Það gengr enn svo ömurlega seint, því oft vér kjósum lieimsins tylli-sátt og treystum þrátt um of á eigin mátt og öðrum kennum meira lært en reynt. 17. Bjarga’ oss, vor guð! vér biðjum þig í neyð. Lát blessun þína lýsa hvert vort spor. Send annan Hallgrím mitt á meðal vor af miskunn þinni’ að sýna’ oss rétta leið. -----------------o------ Frelsisvissa Hallgríms Pétrssonar. Eftir scra Jóhann Xíjarnason. Allir kristnir íslendingar eru þakklátir guði fyrir trúarskáld vort hið óviðjafnanlega, Hallgrím Pétrsson; þakklátir fyrir trúaralvöruna, sem gengr í gegnum ljóð hans, þakklátir fyrir áminningarnar stórvitrlegu, sem þar eru, þakklátir fyrir hinar ljósu og andríku útskýringar á guðs orði, og þakklátir fyrir, hve frábærlega vel trúar-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.