Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1914, Blaðsíða 33

Sameiningin - 01.03.1914, Blaðsíða 33
29 hin andlegu Ijóð lians. En væri hinsvegar spurt um, hvert sérstakt atriði í trúarljóðum H.P. manni þœtti vænzt um, þá myndi eg fyrir mitt leyti segja: um frelsisvissu þá, er hann, sem guðs barn, sýnir að hann hefir. Þetta kemr mjög skýrt og glögglega fram. Hann veit, að hann er frelsuð vera. Hann veit, að Jesús hefir leyst hann frá synd og dauða. Þessa vissu byggir liann auðvitað á guðs orði, en ekki eingöngu á því, heldr og líka á persónulegri reynslu, sem liann, fyrir guðs náð, hefir sjálfr orðið fyrir. Þetta er það, sem gjörir liann styrkan í trúnni. Þetta er það, sem varpar fagnaðarblæ yfir ljóð hans. í þessu liggr, að eg hygg, einn sterkasti þáttrinn í því undra- afli, sem kemr fram í trúarljóðum lians. • i.. i i t ' • ■ • 1 sámbandi við þessa persónulegu reynslu H. P. stendr vafalaust það, hve oft hann talar í fyrstu persónu. Hann er ekki sí og æ að tala um aðra, hvað aðrir skuli gjöra, eða hvers aðrir megi vænta. Af slíku tali er fullt í sálmaskáldskap vorum. Iíallgrímr talar beint út-úr eigin hjarta sínu. Hann er ekki eilíflega að segja „þú, þú“, gjör þú þetta eða hitt. Miklu fremr snýst hann oft að sjálfum sér með áminningar, ásakanir, huggunarorð, eða livað annað, sem liggr fyrir til umrœðu í það eða það skiftið. Tökum til dœmis 14. og 15. versið í öðrum Passíusálminum: „Mér virðist svo sem tnín misgjörð sé meiri’ að þyngd en himinn og jörð; því Jesús það föðursins orðið er, sem allt með sínum krafti ber, flatr varð þó að falla þar, þá fyrir mig bar hann syndirnar." Hér er skáldið ekki að snúast að náunganum við hlið hans og segja honurn, hve syndir hans sé afskaplegar. Nei, það er „mín misgjörð“, sem er „meiri að þyngd en himinn og jörð“. Þegar eg svo les þessi orð eða syng þau, þá verða þau einsog að mínum eigin orðum: Mín misgjörð „er meiri að þyngd en himinn og jörð“. Eg verð líka með honum, þegar liann kemr að því, þarsem Jesús bar syndirnar,—„þá fyrir mig bar liann synd- irnar“. Svo get eg þá líka átt hlut með honum, þegar

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.