Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1914, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.06.1914, Qupperneq 15
95 1843. Þegar hún varð ekkja settist hún aö á einni kirkjujöröinni í sveitinni, Þvottá, þarsem einn hinn göfugasti fornaldarmaöur islenzkur, Síöu-Hallur, haföi átt heima. Hún hafði allstóran hóp barna (5 pilta og 3 stúlkurj til aö annast. Tveir úr hópnum uröu síðar prestar, Brynjólfur prestur í Vestmanneyjum, og Bergur síö- ast prestur i Vallanesi i Suöurmúlasýslu. Þrjú þeirra eru enn á lífi: Guörún í Winnipeg, Nikulás i Leslie, Saskatchewan, og Gísli á Seyöisfiröi á íslandi. Á Þvottá giftist Rósa í annað sinn, Bjarna stúdent, og þar bjuggu þau um þriggja ára skeið og þar fæddist Jón. Meðan þau voru á þvottá sótti Bjarni um brauð, tók prestvígslu og fékk Kálfafell i Fljótshverfi í Vestur-Skaftafellssýslu. Þangað flutti öll fjöl- skyldan, eftir því sem eg fæ komist næst, áriö 1847. Kálfafell var eitt með fátækari brauðum á landinu, en þó farnaðist þeim furöu vel. þrátt fyrir það, hve fjölskyldan var stór og tveir piltar úr hópnum, sem þurfti að kosta í skóla. Séra Bjarni reyndist þessum stóra stjúpbarna hóp sérstaklega vel, og ávalt mintust þau hans með djúpri virðingu og innilegum hlýleik. í fimm ár bjuggu þau aö Kálfa- felli. Fékk þá séra Bjarni Þingmúla í Skriðdal og þangað fluttu þau öll árið 1852. Þar dvaldi hann lengst i æsku og við þann stað voru margar dýrmætar endurminningar knýttar, en þar misti hann móður sína árið 1856, var hann þá 11 ára gamall. Þau hjónin eign- uöust alls þrjá drengi. Einn þeirra dó ungabarn, en albróðir Jóns, er Sveinn hét, og honum þótti sérstaklega vænt um, varð bóndi að Valaseli í Lóni i Austur-Skaftafellssýslu, en er dáinn nú fyrir nokkrum árum. Þegar séra Bjarni misti konu sína, annaöist elzta stjúpdóttir hans, Guðrún, með honum búið þangað til hann gitist í annað sinn, Margréti Erlendsdóttur frá Húsum í Fljótsdal, nokk'ru áður en hann flutti frá Þingmúla. Þau hjón eignuðust tvær dætur, og lifa þær báðar, Guðrún, gift Eggert Benediktssyni að Laugardælum í Flóa í Árnessýslu, og Anna, gift Jósef Jónssyni að Múlum í Hrútafirði. Frá Þingmúla fór Jón í latínuskólann i Reykjavík árið 1861. Hafði faðir hans kent honum undir skóla, og kent honum svo vel, að í ýmsum greinum, sérstaklega i latínu og grísku, kunni hann meira en flestir eða allir nýsveinar þá í skóla. Faðir hans var ‘‘maöur fjölfróöur, sílesandi, og i sumum bókmentagreinum frábærlega vel að sér, þannig t.a.m. í heimspeki Forn-Grikkja, enda hafði hann býsna vandlega lesið flestöll rit Platóns á frumtungunni. Ltínu las

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.