Sameiningin - 01.06.1914, Qupperneq 20
100
ræöur og fyrirlestrar í tímaritum eöa sérstökum útgáfum. Sum hin
helztu þeirra eru: Prédikun á þjóöhátíö íslendinga í Milwaukee
71874J; Nauösynleg hugvekja (1879); ísland aö biása up fl888J;
Islenzkur níhilismus fl889J; Um vatnsveitingar fl890j; Prédikun til
minningar um þaö, að 350 ár voru liðin frá því að Nýja Testamentið
var þýtt á íslenzku (^flutt 1890, prentuð 1891ý; Minning kristnitök-
unnar á Islandi fyrir 900 árum (T890ý; í>aö sem mest er í heimi
^1893; Forlög (189ö); Eldur og eldsókn ('1896ý; Minning reform-
azíónarinnar fflutt 1898, gefin út 1899ý; Mótsagnir flOOOý; Þránd-
ur í Götu (T901ý; Að Helgafelli fl902); Helgi magri 71905);
Lausn kirkjunnar á íslandi úr læðingi fl907) ; Gildi trúarjátninga
fl908; Apologia pro vita sua, eða Sjálfsvörn 71909ý. Þess má og
geta, að á þeim árum, sem hann var suður í Bandaríkjum, ritaði
hann ýmislegt um íslenzk efni í amerísk tímarit.
Merkasta rit hans er óefað Guðspjallamál. Þar kemur snild
hans, sem prédikari, fram í sinni dýrðlegustu mynd, og til þess
verks hefir hann lagt það bezta, sem hann átti í eigu sinni. En sér-
kenni séra Jóns Bjarnasonar, sem persónu, koma þó hvergi betur í
ljós, en í fyrirlestrum hans. Ekkert verk, sem hann nokkurntíma
vann á lífsleiðinni, lét honum betur en að semja fyrirlestra um áhuga-
mál þjóðar sinnar, og í þá lagði hann hjartablóð sitt, enda hrundu
þeir af stað meiri umræðum en flest annað, sem skrifað hefir verið
meðal íslendinga á síðari árum.
,Á kirkjuþingi því, sem haldið var á Gimli 1901, flutti séra Friðrik
J. Bergmann fyrirlestur með fyrirsögninni, “Bókstafurinn og and-
inn”. Með honum var í raun og veru Nýja guðfræðin leidd fram á
orustuvöll í kirkjufélaginu, jafnvel þó sami maður væri lítilsháttar
áður búinn að rita um það mál í Aldamótum. Upp frá því var barist,
stundum með ofsa hita. I þeirri deilu var séra Jón bæði “sverð og
skjöldur” ákveðins kristindóms, eins og hann í aðal-atriðum hefir
verið kendur í gegnum aldirnar. Hann hikaði sér ekki við að vega
óspart að Nýju guðfræðinni öll þessi ár, sem liðin eru síðan.
Árið 1910 hélt kirkjufélagið 25 ára júbil-hátíð sína. Það var
dýrðleg fagnaðarhátíð fyrir alla kristna íslendinga. Eini skugginn,
sem á því hvíldi, var klofningurinn hryggilegi, út-af Nýju guðfræð-
inni, sem orðið hafði áður í kirkjufélaginu. Á þessu þingi veittist
séra Jóni sú maklega viðurkenning, að Thiel College í Grenville í
Pennsylvaníu-ríki sæmdi hann doktors nafnbót í guðfræði. Tilkynti
forseti kirkjufélagsins, séra Björn B. Jónsson, þetta við aðal-há-
tíðaguðsþjónustuna, sunnudaginn sem kirkjuþingið stóð.