Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1914, Page 30

Sameiningin - 01.06.1914, Page 30
110 henni. “Taktu við því, barniö mitt,” — sagöi hann —, “það brennir þig ekki”. Stúlkan gjöröi eins og henni var sagt,— en höndin henn- ar hvíta varð svört af kolinu og aska kom líka á hreina hvíta kjólinn hennar. “Hvers vegna lézt þú mig gjöra þetta, pabbi?” sagði hún; “þaö veröur aldrei of varlega fariö með kol”. — “Það er alveg satt,” — svaraði Sophronius; “þó að kolin brenni ekki, þá óhreinka þau samt; og alveg eins er með félagsskap vondra og óvandaðra manna.” Gættu vel að því, í hvaða félagsskap þú ert. Vertu vandaður .að því, hverja þú velur fyrir vini og kunningja. Margt ungmenni hefir orðið afvegaleitt af vondum félögum. Óhreint orð, óhrein saga getur vakið óhollar hugsanir í sálu þinni og sett blett á hana; forðastu 'þá áhættu, eins og þér er unt. En góðir, vandaðir vinir eru dýrmæt blessun; þakka þú guði fyrir þá og sýndu þeim trygð. Það er mikil speki í þessari grein Orðskviðanna ('13, 20): “Haf umgegni við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim, sem leggja lag sitt við heimskingja.” PIIiTTJR Á FEUÐ Kritniboði einn kom til smá-þorps í Afriku og hitti þar fyrir mannfélag, sem hann vissi ekki til að hefði áður nokkurn trúboða séð, en hafði þó bersýnilega haft nokkur kynni af kristindómi. Honum kom þetta mjög á óvart, og hann for að grenslast eftir, hvernig á því stæði. /Eðsti maður þorpsins varð til þess að fræða hann um það. ■“Fyrir all-löngu,” sagði hann, “fór einn piltur frá trúboðstöð yðar hér um. Hann hafði með sér bók; við spurðum hann að, hvað í henni stæði, og hann sagði að það væri orð guðs á vorri tungu. Vér báðum hann að lesa úr bókinni fyrir oss, og það, sem hann las, féll oss vel i geð, að vér fengum hann til að dvelja um tíma hjá oss. Hann sagði oss þá, að ef vér vildum dýrka hinn mikla guð, sem bókin segði frá, þá yrðum við að gjöra tvent: Fyrst -ættum vér að taka hvíld einn dag af hverjum sjö, og svo þyrftum vér líka að byggja hús til þess að tilbiðja hann í Vér gengum að jþessu, og fórum út í skóg og hjuggum við, en konurnar slógu gras til að þekja með. Og svo bygðum vér guðshúsið, sem þér sjáið þarna. Pilturinn var hér hjá oss um tíma og las fyrir oss guðs •orð og bað fyrir oss. En svo þurfti hann að halda áfram ferð sinni; vér höldum samt áfram að tilbiðja guð i húsi hans, þó að vér höfum engan til að kenna oss.” “Og hvernig farið þér að því að tilbiðja hann?” spurði trú- boðinn. “Vér komum saman sjöunda hvern dag og setjumst niður í húsi guðs og sitjum þar þegjandi. Vér höfum engan til að lesa fyrir oss eða kenna oss, og vér kunnum ekki að biðja, svo vér sitjum kyrrir þegjandi, og hugsurn að hinn mikli guð sjái oss og segi: ■'Þarna er hópur af fólki sem hefir engan kennara, en langar til að

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.