Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1916, Qupperneq 22

Sameiningin - 01.04.1916, Qupperneq 22
52 er eiginlega ekki orð, sem á vel við kér, enda notar skáld- ið ekki það orð, og var smekklega gert), þar sem Kristur, þ. e. trúin á hann, elskan til hans (“með ást og trú”), skal búa. Með fegurri eða háleitari hugsun í snildar- legri orðum og líkingum var ekki liægt að enda sálminn —og sálmana. Það er upphaf og endir—ástin og trúin, og hvorttveggja afleiðingin hjá hverjum trúuðum manni af dauða Krists og friðþægingu og um leið grundvöllur og upphaf allrar sælu. Orðin “líndúkur (trúar)” og “(ilmandi) smyrsl” eiga við það sem stendur í 49. sálminum 4. v. og er það tekið úr frásögninni um Jósef og Nikódemus, en “lím dúkur” er ekki nefndur í Matt., heldur í Markúsarguð- spjalli, og “Nikódemus og smyrslin” eru tekin úr Jó- liannesarguðspjalli—og’ alt hér sameinað. Loks er svo síðasta versið, og er óhætt að segja, að það er ekki að eins endir þessa sálms, heldur allra sálm- anna: Dýrö, vald, virðing og v'egsemd hæst, vizka, makt, speki og lofgjörð stærst sé þér, ó, Jesú, herra hár og heiður klár — amen, amen, um eilíf ár. Þegar nú litið er yfir allan sálminn, er hann ein og óslitin hugsanarétt heild,* efninu frábærlega vel fyrir komið, orðaval ágætt og líkingar fagrar með vel löguð- um lærdómum, leiddum itt af textaorðunum. Það er meistaraleg snild á öllu þessu. Bragarhátturinn er eink- ar viðfeldinn og þýður, hvergi er óeðlileg álierzla eða málinu misboðið, lieldur þvert á móti. Þessi háttur kemur annars ekki fyrir í sálmunum. Málið er gott og lipurt. Eldíi þarf það að lineyksla neinn sannsýnan mann þótt hér komi fyrir orð, sem nú eru ekki talin góð íslenzka, svo sem strax, falsari, inn (til), vakt, blíva, treiskur, soddan, upp stá, stá, forgá slétt (=alveg), klár—alt þetta voru orð, sem þá liöfðu lengi verið liöfð í málinu (síðan á 15. öld eða lengur), og engin von til, að Hallgrímur gæti vitað eða séð, að þau voru ekki “hrein” íslenzka.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.