Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1910, Síða 4

Sameiningin - 01.01.1910, Síða 4
340 [Samhygð yðar og annarra ný-guðfrœðiuga með trúarskoðunum séra Friðriks skil eg. En þá gjörðuð þér sannarlega vel í því að ráða honum bróðurlega til þess, sem fyrst að segja sig út úr kirkjufélaginu. Enga betri ráðlegging getr hann nú fengið, og af yðr myndi hann taka henni vel.] Djúpið, sem skilr nýju guðfrœðina frá hinni gömlu er meira — miklu meira — en það, er skildi lúterska menn og aðra Prótestanta frá kaþólskum mönnum á re- formazíónar-tíðinni. Um sátt milli þeirra tveggja and- stœðu flokka getr ekki verið að rœða. í þeim efnum ræðr að eins það, sem Parvún nefndi survival of the fittest. Þótt eg deyi, eins og auðvitað verðr bráðum, heldr barátta þessi áfram meðal Islendinga liér, og það allt eins fyrir því, þótt kirkjan öll á Islandi aðhyllist þennan nýja rationalismus. Yðr skilst það líklega, að prest- arnir nálega allir hér í kirkjufélaginu eru fullt eins and- vígir modernismus séra Friðriks eins og eg. Sennilega eru þeir allir meir lúterskir en eg, eins og líka séra Friðrik var áðr en hann snerist burt frá oss. Þér vitið, að vér hér í kirkjufélaginu liöfum átt í lát- lausri baráttu við Únítara-vantrúna hjá löndum vorum, sem í þá komst fyrst á íslandi, en magnaðist eðlilega hér í frjálsu landi. Nýja guðfrœðin fer í nákvæmlega sömu átt, en er í mínum augum, og ótal-margra annarra krist- inna manna, enn þá háskalegri, fyrir þá sök, að hún varp- ar yfir sig dulargerfi. Hví skyldi þá ekki nú vera barátta ? [Má eg ekki vænta þess, að málgagn vðar flvtji ekki framvegis eins óáreiðanlegar fréttir af högum vorum hér eins og tíðindin, sem það k'om með í fyrra um kirkju- þing vort?] Mig langar til að vera út úr styrjöldinni, því eg er leiðr á rabie theologorum, og tel eg í þeirra hópi ekki að með viðvörun sína séra Friöriks vegna, því að ,,hans vcgr myndi vaxa viS það", ef honum yröi hrundiö burt úr kirkjufélaginu, heldr til þess aö varna því að félagið klofnaði o. s. frv.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.