Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1910, Síða 18

Sameiningin - 01.01.1910, Síða 18
354 ar kirkjur; og má fyrir því kvíða, að lítið verði þar um safnaðarlíf meðal landa vorra, ef sunnudagsskólinn kemst ekki á fót aftr. Mér var allsstaðar vel tekið, og ber mér að minnast þess með þökkum. i. Ágúst prédikaði eg í kirkju lúterska safnaðarins á Gimli og í kirkju Víðiness-safnaðar í fjarveru séra Rúnólfs Marteinssonar. Viðtökur þar voru hinar beztu. Eins og mörgum er kunnugt, hefir við mikla mótspyrnu verið að stríða á þessum stöðum, og reyndar allsstaðar í Nýja íslandi; en marga má þó finna meðal landa vorra þar með heitum áhuga fyrir málefni kristindómsins. Á Gimli hefir söfnuðrinn reist sér prýðilega kirkju, og er það því fólki til all- mikils sóma. Árangrinn af verki séra Rúnólfs er þó ef til vill ekki eins augsýnilegr og suinra presta í öðrum byggðarlögum. En þegar allt kemr til alls og tillit er tekið til örðugleikanna, sem hann hefir haft við að stríða, þá má víst óhætt fullyrða, að fáir hafi unnið eins vel. Guði einum er full-kunnugt, hve mikið gagn hann hefir gjört málefni drottins með óeigingirni sinni og sjálfsafneitun. Þá er hann útskrifaðist frá prestaskólanum, stóðu honum opnir ýmsir álit- legir vegir, að því er jarðneska afkomu snertir, bæði meðal ensku- talandi manna lúterskra, og íslendinga. En öllum þeim tilboðum hafnaði hann, og kaus heldr að starfa í byggð, sem þá var allt ann- að en glæsileg frá veraldlegu sjónarmiði. Drottinn mun aldrei láta aðra eins sjálfsfórn fyrir málefni hans vera ólaunaða, og í fyllsta máta á séra Rúnólfr heiðr og þökk skilið. 8. og 15. Ágúst prédikaði eg í Fyrstu lútersku kirkju í Winni- peg. Ástandið i þeim söfnuði er öllum svo vel kunnugt, að það væri heimskulegt af mér að minnast nokkuð á það. Öll þessi ár hefir söfnuðr sá undir forustu séra Jóns Bjarnasonar staðið sem „bjargstuddr kastali“ á móti árásum villu og vantrúar; og guð gefi, í Jesú nafni, að óvinir kristindómsins fái aldrei á honum sigrazt. Sunnudagana 22. og 29. Ágúst var eg staddr í Pine Valley- byggð suðaustr frá í Manitoba, og flutti þar erindi drottins. Flest- allir sóktu guðsþjónustur þær, og var mér sem fyrr tekið þar vel. Eg var til húsa meðan eg dvaldi þar hjá hr. Pétri Pálmasyni. Eru þau hjón bæði einkar skemmtileg og væn og bera málefni kristin- dómsins mjög sárt fyrir brjósti; enda eiga þau stóran þátt í að halda við safnaðarstarfseminni á þeim stöðvum. Þær mœðgurnar Mrs. J. Thorláksson og Miss Lovísa Thor- láksson frá Winnipeg hafa unnið kristindóminum mjög mikið gagn í þessarri byggð síðastliðið sumar ineð því að halda þar uppi sunnu- dagsskóla. Árangrinn af verki þeirra hefir sannarlega verið bless-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.