Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1910, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.01.1910, Blaðsíða 20
35& Ársloka-hátíö sunnudagsskóla Fyrstu lútersku kirkju í Winni- peg var haldin a'ö kvöldi annars jóladags, sem var síöasti sunnudagr ársins, með svipuðu fyrirkomulagi því, er áðr hefir lengi tíökazt við það tœkifœri. Mikill fólksfjöldi eins og vanalega með í því há- tíðarhaldi. Á eftir inngangs-guðsþjónustu fór þetta frarn: I. Söngr smábarna: „Ó, komið, þér trúuðu!" — 2. Söngr eldri stúlkna: „Dagr er liðinn“. — 3. Lítil stúlka recítcraði ljóð: „Guð ! blessa vorn skóla“. — 4. Einsöngr drengs: „Góða tungl“. — 5. Söngr smábarna: Beautiful Little Hands. — 6. Önnur lítil stúlka recíter- aði ljóð: „Það blikar rósarunnr“. — 7. Smádrengr söng: „Vöggu- ljóð“. — 8. Ávarp frá presti safnaðarins til almennings út af sunnudagsskólanunt og hlutverki hans. — 9. Fjársamskot eða offr. 10. Söngr smábarna: „Ó, faðir! gjör mig lítið ljós“. — 11. Ein- söngr smástúlku: And a little Child ivill lead thcm. — 12. Söngr eldri stúlkna: „Sitr í haugi“. — 13. Söngr smábarna: „Himininn hár“. — 14. Allir sungu: „Nú legg eg augun aftr“. Frá Argyle-s'dfnuðum. Uppskeru-hátíðir voru haldnar á þessu hausti hjá Frelsissöfn- uði og Fríkirkjusöfnuði. Hin fyrri var haldin miðvikudaginn 20. Okt. í kirkju safnaðanna, en hin síðari laugardaginn 20. Nóv. i samkomuhúsinu að Brú. Báðar voru þær vel sóktar og fóru mjög ánœgjulega fram. Annað ársafmæli Immanúelssafnaðar var haldið sunnudaginn 21. Nóv. Voru þá tvær guðsþjónustugjörðir í kirkjunni, önnur á ensku, en hin á íslenzku, báðar einkar vel sóktar. Séra Hans B. Thorgrímsen prédikaði í hvorttveggja skiftið. og sömuleiðis seinna part dags í kirkjunni norðr í byggðinni. Hann hélt líka aðal- rœðuna á uppskeruhátíð Fríkirkjusafnaðar kvöldið áðr. og söng þar nokkra einsöngva. Mánudagskvöldið var konsert hjá Immanúels- söfnuði, og átti séra Hans B. Thorgrímsen ekki minnstan þátt í því, hve sú samkoma varð öllum ánœgjuleg. Hann benti við það toekifœri mjög sterklega á nauðsyn þess, að safnaðarfólkið tceki sem mestan þátt í sálmasöngnum í kirkjunni, til þess að guðsþjónustu- samkomurnar gæti orðið eins uppbyggilegar og aðlaðandi og þær eiga að vera. Söngflokkrinn á að stýra söngnum, en ekki syngja fyrir allan söfnuðinn. — Söngflokkr Immanúelssafnaðar fékk mak- legt lof fyrir ágæta frammistöðu sína þetta kvöld. Afmælisgjöf fékk söfnuðrinn, 100 dollara, frá kvenfélaginu ,,Baldrsbrá“, sem hefir söfnuðinum áðr marga góða gjöf gefið. Klukku hefir kirkjan líka eignazt, og er hún gjöf frá Mrs. Guðrúnu Árnason í Baldri. Klukkan, sem er 3 fet að þvermáli, er

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.