Fréttablaðið - 07.04.2011, Blaðsíða 60
7. apríl 2011 FIMMTUDAGUR48
FM 88,5 XA-Radíó
FM 90,1 Rás 2
FM 90,9 Gullbylgjan
FM 91,9 Kaninn
FM 93,5 Rás 1
FM 95,7FM957
FM 96,3 FM Suðurland
FM 96,7 Létt Bylgjan
FM 97,7 X-ið
FM 98,9 Bylgjan
FM 99,4 Útvarp Saga
FM 102,2 Útvarp Latibær
FM 102,9 Lindin
FM 105,5 Útvarp Boðun
ÚTVARP FM
SJÓNVARPIÐ SKJÁR EINN
OMEGA
Dagskrá allan sólarhringinn.
STÖÐ 2
16.00 Drekinn vaknar
16.25 Kiljan (e)
17.20 Skassið og skinkan (1:20) (10
Things I Hate About You)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar (e)
18.25 Bombubyrgið (26:26) (Blast Lab)
19.00 Fréttir
19.30 Veðurfréttir
19.35 Icesave - kosningaumræður
Umræðuþáttur þar sem fjallað verður ítarlega
um Icesave-samninginn og dómstólaleiðina.
Rætt verður við sérfræðinga og fólkið á göt-
unni um þá kosti sem þjóðin stendur frammi
fyrir, og afleiðingar þess að samþykkja eða
fella lögin um ríkisábyrgð vegna Icesave.
21.10 Hestar og menn (2:2) (Horsepo-
wer with Martin Clunes) Í þáttunum fer
breski leikarinn Martin Clunes um heiminn
og veltir fyrir sér sambandi manna og hesta.
22.00 Tíufréttir
22.10 Veðurfréttir
22.15 Glæpahneigð (Criminal Minds IV)
Þáttaröð um sérsveit lögreglumanna sem
hefur þann starfa að rýna í persónuleika
hættulegra glæpamanna til þess að reyna
að sjá fyrir og koma í veg fyrir frekari illvirki
þeirra. Þættirnir eru ekki við hæfi barna.
23.00 Lífverðirnir (Livvagterne) Dönsk
þáttaröð um viðburðaríkt og háskalegt starf
lífvarða í dönsku öryggislögreglunni. (e)
00.00 Icesave - kosningaumræður (e)
01.30 Fréttir (e)
01.40 Dagskrárlok
07.00 Barnatími Stöðvar 2
08.15 Oprah
08.55 Í fínu formi
09.10 Bold and the Beautiful
09.30 The Doctors
10.15 The Mentalist (14:23)
11.00 Gilmore Girls (11:22)
11.50 Sjálfstætt fólk
12.35 Nágrannar
13.00 Baby Mama
14.35 The O.C. 2 (4:24)
15.20 Sorry I‘ve Got No Head
15.48 Barnatími Stöðvar 2
16.58 Algjör Sveppi
17.08 Bold and the Beautiful
17.33 Nágrannar
17.58 The Simpsons
18.23 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2 og Ísland í dag
19.11 Veður
19.20 Two and a Half Men (1:22)
19.45 The Big Bang Theory (1:23)
20.10 Arnar og Ívar á ferð og flugi
(3:5) Skemmtilegur ferðaþáttur með Arnari
og Ívari sem heimsækja fimm borgir og
skoða m.a. matarvenjur og heilsufar viðkom-
andi þjóðar, smakka og kryfja vinsælasta
skyndibita staðarins og athuga hollustu hans.
20.40 Steindinn okkar (1:8) Steindi Jr.
er mættur aftur í nýrri og drepfyndinni seríu
og fær fjölmarga þjóðþekkta Íslendinga til
liðs við sig.
21.05 NCIS (9:24) Spennuþáttaröð sem
er í röð þeirra allra vinsælustu í Bandaríkj-
unum og fjallar um sérsveit lögreglumanna
sem starfar í Washington og rannsakar glæpi
tengda hernum eða hermönnum.
21.50 Fringe (9:22) Þáttaröðin um Oliviu
Dunham, sérfræðing FBI í málum sem grunur
leikur á að eigi sér yfirnáttúrulegar skýringar.
22.40 Life on Mars (17:17)
23.25 Pressa (3:6)
00.10 Chase (14:18)
00.55 Boardwalk Empire (7:12)
01.45 Fearless
03.25 Baby Mama
05.00 The Simpsons
08.00 Wayne‘s World
10.00 A Fish Called Wanda
12.00 Artúr og Mínímóarnir
14.00 Wayne‘s World
16.00 A Fish Called Wanda
18.00 Artúr og Mínímóarnir
20.00 Fracture
22.00 Wanted
00.00 The Black Dahlia
02.00 Half Nelson
04.00 Wanted
06.00 Get Smart
19.45 The Doctors Spjallþættir þar sem
fjórir framúrskarandi læknar veita afar að-
gengilegar og gagnlegar upplýsingar um þau
heilsufarsmál sem hvað helst brenna á okkur
20.30 Curb Your Enthusiasm (7:10)
Larry David snýr nú aftur í sjöundu þáttaröð-
inni, studdur stjörnunum úr Seinfeld.
21.00 Fréttir Stöðvar 2
21.25 Ísland í dag
21.55 Hamingjan sanna (4:8) Íslensk
þáttaröð í umsjá Ásdísar Olsen sem byggð er
á metsölubókinni Meiri hamingja.
22.25 Pretty Little Liars (20:22)
Spennuþættir byggðir á metsölubókum eftir
Söru Shepard. Þættirnir fjalla um fjórar vin-
konur sem þurfa að snúa bökum saman til
að geta varðveitt skelfilegt leyndarmál.
23.10 Grey‘s Anatomy (18:22) Drama-
þáttur sem gerist á skurðstofu á Grace- spít-
alanum í Seattle-borg þar sem starfa ungir og
bráðefnilegir skurðlæknar.
23.55 Ghost Whisperer (4:22) Magn-
aður spennuþáttur með Jennifer Love Hewitt
í hlutverki sjáandans Melindu Gordon sem
rekur antikbúð í smábænum Grandview. Hún
á þó erfitt með að lifa venjulegu lífi þar sem
hún þarf stöðugt að takast á við drauga sem
birtast henni öllum stundum.
00.40 Curb Your Enthusiasm (7:10)
01.10 The Doctors
01.55 Fréttir Stöðvar 2
07.50 Meistaradeild Evrópu: Meist-
aradeildin - meistaramörk
08.15 Meistaradeild Evrópu: Meist-
aradeildin - meistaramörk
08.40 Meistaradeild Evrópu: Meist-
aradeildin - meistaramörk
15.30 Spænsku mörkin
16.20 Meistaradeild Evrópu: Meist-
aradeildin - (E)
18.05 Meistaradeild Evrópu: Meist-
aradeildin - meistaramörk
18.30 Golfskóli Birgis Leifs (2:12)
19.00 Iceland Expressdeildin 2011
21.00 The Masters Bein útsending frá
fyrsta keppnisdegi á fyrsta risamóti ársins,
The Masters. Mótið fer fram á Augusta Natio-
nal Golf Club í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum.
Þetta er í 75. sinn sem The Masters fer fram
en þar keppa allir bestu kylfingar heims um
ein eftirsóttustu verðlaunin í golfheiminum,
græna jakkann.
23.00 Benfica - PSV Útsending frá leik
Benfica og PSV Eindhoven í Evrópudeildinni
sem fram fór fyrr í kvöld. Þetta er fyrri leikur
liðanna í 8 liða úrslitum. Leikurinn er í beinni
á Sport 3 kl. 19:00.
16.30 Wigan - Tottenham Útsending
frá leik Wigan og Tottenham í ensku úrvals-
deildinni.
18.15 Fulham - Blackpool Útsending
frá leik Fulham og Blackpool í ensku úrvals-
deildinni.
20.00 Premier League World Áhuga-
verður þáttur þar sem enska úrvalsdeild-
in er skoðuð frá hinum ýmsu óvæntu og
skemmtilegum hliðum.
20.30 David Beckham Í þessum þætti
verður David Beckham skoðaður og helstu
afrek þessa frábæra leikmanns skoðuð.
21.00 Ensku mörkin Sýnt frá síðustu
leikjum í neðri deildum enska boltans. Glæsi-
leg mörk og mögnuð tilþrif.
21.30 Premier League Review Flott-
ur þáttur um ensku úrvalsdeildina þar sem
leikir helgarinnar verða skoðaðir og krufð-
ir til mergjar.
22.25 Newcastle - Wolves Útsending
frá leik Newcastle United og Wolverhampton
Wanderers í ensku úrvalsdeildinni.
07.10 Dyngjan (8:12) (e)
08.00 Dr. Phil (e)
08.45 Innlit/ útlit (5:10) (e)
12.00 Dyngjan (8:12) (e)
12.50 Innlit/ útlit (5:10) (e)
16.50 Girlfriends (1:22) (e)
17.15 Dr. Phil
18.00 HA? (11:15) (e)
18.50 America‘s Funniest Home Vid-
eos (37:50) (e)
19.15 Game Tíví (11:14)
19.45 Whose Line is it Anyway? (35:39)
20.10 Royal Pains (10:18) Hank er einka-
læknir fræga fólksins í Hamptons. Hann
kemst að því að nýr lífstíll hinna heppnu og
ríku sé orsök alvarlegra sjúkdóma.
21.00 30 Rock (18:22) Liz kemst að því
að samstarfsfólkið vill ekki bjóða henni að
vera með í vikulegum samkvæmum og reyn-
ir að sanna að hún geti verið skemmtileg.
21.25 Makalaus (6:10) Þættir sem
byggðir eru á samnefndri metsölubók Tobbu
Marinós og fjalla um Lilju Sigurðardóttir sem
er einhleyp stúlka í Reykjavík.
21.55 Law & Order: Los Angeles (3:22)
Bandarískur sakamálaþáttur um störf rann-
sóknarlögreglumanna og saksóknara í borg
englanna, Los Angeles.
22.40 Jay Leno
23.25 The Good Wife (11:23) (e)
00.15 Rabbit Fall (2:8) (e)
00.45 Royal Pains (10:18) (e)
01.30 Law & Order: LA (3:22) (e)
08.10 Shell Houston Open (3:4)
11.10 Golfing World
12.00 Golfing World
12.50 Shell Houston Open (3:4)
17.05 PGA Tour - Highlights (13:45)
18.00 Golfing World
18.50 Inside the PGA Tour (14:42)
19.15 World Golf Championship 2011 (1:4)
22.00 Golfing World
22.50 The Open Championship Offici-
al Film 2009
23.45 ESPN America
18.15 Að norðan Með Hildu Jönu Gísla-
dóttur. Fjölbreyttur þáttur um norðlenskt
mannlíf.
19.00 Fróðleiksmolinn
20.00 Hrafnaþing Guðni Ágústsson í
feikna formi að venju.
21.00 Eru þeir að fá ann Skyldi hafa
frosið í lykkjunum í vertíðaropnun?
21.30 Ævintýraför Ekvadorför Skúla og fé-
laga sýndur vegna fjölda áskorana, 2. þáttur.
Dagskrá ÍNN er endurtekin um
helgar og allan sólarhringinn.
> Angelina Jolie
„Mér finnst ég sjálf ekki falleg, því
ég sé of marga galla. Fólk hefur
skrítnar skoðanir. Það segir mér að
ég sé horuð, alveg eins og það eigi
að gleðja mig.“
Angelina Jolie leikur þokka-
gyðjuna Fox sem kemur manni
að nafni Wesley inn í leynifélag
sem faðir hans tilheyrði áður
en hann var myrtur í spennu-
myndinni Wanted sem er á Stöð
2 Bíói kl. 22.
Í þeim hluta minnisins sem geymir upplifun mína af sjónvarpsáhorfi í
gegnum tíðina er stefið úr balletverkinu Spartacusi eftir rússneska tón-
skáldið Aram Katsjatúrían í sjónvarpsþáttunum um Ónedín-skipafélagið
og myndir af ryki þyrlast upp af þjóðvegum landsins í Stiklum Ómars
Ragnarssonar.
Ég veit ekki hvernig Ómar hafði uppi á öllu
því fólki sem hann ræddi við í þátt-
unum en ímynda mér að hann hafi
fundið það sjálfur og fengið til þess
drjúgan tíma. En það skiptir svo
sem ekki öllu máli. Fólkið hafði
oftar en ekki forvitnilega sögu að
segja sem skilaði því að þætt-
irnir lifa í huga mínum sem ein af
perlum íslenskrar fjölmiðlunar.
Eitthvað hefur komið fyrir síðan
Ómar keyrði um allar koppagrundir fyrir að verða þrjátíu árum. Nú
orðið virðast þáttastjórnendur vart leita út fyrir eigið fyrirtæki eftir
viðmælendum. Svo slæmt er þetta að í besta falli hríslast um
mig aulahrollur. Logi Bergmann hefur alltof oft fengið Audda og
Sveppa í settið á Stöð 2 og þáttur Jóns Ársæls um Simma
og Jóa hefði alveg mátt missa sín. Þetta er ekkert einsdæmi
enda leitar RÚV ekki nógu oft út fyrir lóðina í Efstaleiti eftir
spjallfélaga. Þótt mér finnist fréttahaukurinn Bogi Ágústsson
þekkingarbrunnur um erlend málefni í morgunútvarpinu þá
fannst mér fullmikið af því góða að kalla hann til viðtals um
lífið og tilveruna hjá Guðna Má Henningssyni um helgina.
Ég veit ekki hvort það skýrist af leti eða tímaskorti en sömu
viðmælendur hafa verið í fjölmiðlum í alltof langan tíma. Fjöl-
miðlafólk verður að fara að bretta upp ermarnar eins og Ómar
Ragnarsson gerði í Stiklunum á sínum tíma og leita út fyrir
lóð fyrirtækisins eftir nýju fólki og ferskri rödd.
VIÐ TÆKIÐ JÓN AÐALSTEINN BERGSVEINSSON ÞOLIR EKKI LETI Í FJÖLMIÐLUM
Stiklur Ómars eiga að vera fyrirmynd