Fréttablaðið - 28.04.2011, Síða 36
28. APRÍL 2011 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● skólar & námskeið
Vilmundur Guðnason, prófessor
og forstöðulæknir Hjartaverndar,
heldur fyrirlestur um vísindastarf
samtakanna í sal Þjóðminjasafns-
ins í dag frá klukkan 12 til 13.15.
Landssamtökin Hjartavernd voru
stofnuð árið 1964. Rannsóknarstöð
Hjartaverndar hóf starfsemi sína
þremur árum síðar með mjög víð-
tækri faraldsfræðilegri rannsókn,
Hóprannsókn Hjartaverndar, þar
sem áhersla var lögð á að finna
helstu áhættuþætti hjarta- og æða-
sjúkdóma meðal Íslendinga. Rann-
sóknin hefur staðið yfir í meira en
fjörutíu ár og hefur náð til rúm-
lega þrjátíu þúsund Íslendinga.
Margar nýjar rannsóknir hafa
tengst henni. Þessar rannsóknir
hafa orðið grundvöllur þekking-
ar hérlendis á helstu áhættuþátt-
um kransæðasjúkdóma.
Vísindastarf
Hjartaverndar
Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir
Hjartaverndar.
Vala Gestsdóttir heldur útskriftar-
tónleika sína í Þjóðmenningarhús-
inu laugardaginn 30. apríl klukkan
17. Vala útskrifast með BA-gráðu
í tónsmíðum frá tónlistardeild
Listaháskólans í vor.
Á tónleikunum verður frumflutt
verkið Völuspá í tónmáli, tónverk
fyrir einsöngvara, kór og hljóm-
sveit í þremur samtengdum köfl-
um sem lýsa sköpun heimsins,
ragnarökum og endurrisi jarðar,
við texta Þórarins Eldjárns. Einnig
verða flutt verkin Vertu hér, Betty
Boop, Strengjarinn og Brassarinn
og Sestu-Dansaðu-Vertu.
Einsöngvarar á tónleikunum eru
Sólveig Samúelsdóttir messósópr-
an, Hafsteinn Þórólfsson barítón
og Þórunn Antonía Magnúsdóttir.
Stjórnandi á tónleikunum er Úlfar
Ingi Haraldsson.
Völuspá í
tónmáli
Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu
● SPÁÐ Í SPIL Spámiðillinn Hrönn Friðriks-
dóttir mun ásamt Ölmu Hrönn Hrannardóttur
kenna áhugavert tveggja kvölda námskeið 2. og
7. maí næstkomandi. Þar munu þær kenna und-
irstöðuatriði í að leggja spil og lesa úr fyrir aðra.
Markmiðið er að koma þátttakendum yfir þrösk-
uldinn hvað varðar spilalagnir og spádóma.
Kenndar verða þrjár mismunandi spilalagn-
ir. Þátttakendur velja hvers konar spil þeir nota;
tarotspil, sígaunaspil eða venjuleg spil. Þátttak-
endur koma með eigin spil.
Kennt verður í Súðarvogi 7.
● TORFHLEÐSLUNÁMSKEIÐ FORNVERKASKÓLANS
Þrjú námskeið í torfhleðslu og grindarsmíði verða á vegum Fornverka-
skólans í sumar. Námskeiðin eru haldin á Tyrfingsstöðum 6. til 9. júní,
13. til 16. júní og þriðja námskeiðið í ágúst. Á námskeiðunum í júní
verður kennd hleðsla torfveggja og smíði húsgrindar. Hlaðnir verða
veggir í hrútakofa og grind smíðuð í búr og hrútakofa og þak tyrft. Þá
verður haldið grjóthleðslunámskeið í Skagafirði í haust eða sumar.
Meginmarkmið skólans er að bjóða kennslu í vinnubrögðum og
verklagi í hefðbundnu íslensku byggingarhandverki. Fornverkaskólinn
er samstarfsverkefni Hólaskóla, Byggðasafns Skagfirðinga og tréiðnað-
ardeildar Framhaldsskóla Norðurlands vestra. Nánari upplýsingar er að
finna á www.fornverkaskolinn.is.
Grunnur að góðri máltíð
www.holta.is
Kjúklingapylsur
Kjúklingapylsurnar frá Holtakjúklingi eru framleiddar úr besta hráefni
sem völ er á. Því geta þeir sem hugsa um hollustuna nú gætt sér á þjóðarrétti
okkar Íslendinga með góðri samvisku. Hvort sem þeir vilja hann með hráum,
steiktum, tómat, sinnepi eða bara beint af grillinu.