Fréttablaðið - 10.05.2011, Page 1

Fréttablaðið - 10.05.2011, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011 Þriðjudagur skoðun 12 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Lífrænn lífsstíll veðrið í dag 10. maí 2011 107. tölublað 11. árgangur Óæskileg aukefni og fyllingarefni í matvöru rata inn fyrir varir okkar á hverjum degi og erfitt getur verið að forðast þau. Í verslunum Maður Lifandi geta viðskiptavinir verið öruggir um að vörurnar séu án slíkra efna. „Viðskiptavinir okkar geta treyst þeim vörum sem seldar eru í Maður Lifandi og þurfa því ekki að lesa innihaldslýsingar til að ganga úr skugga um að þær séu án óæskilegra auk- og fyllingarefna, við sjáum um það,“ segir Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Maður Lifandi sem sérhæfir sig í að bjóða slíkar vörur. Maður Lifandi selur innfluttar lífrænt vottaðar vörur í bland við náttúrulegar. Í verslunun-um fást einnig íslenskar lífræn-ar og náttúru legar vörur en eitt af markmiðum fyrirtækisins er að bjóða upp á sem mest af árstíða- og svæðis bundnum vörum. „Með aukinni meðvitund um umhverfisáhrif neyslu vilja sífellt fleiri forðast vörur sem búið er að eyða mikilli orku og eldsneyti í að flytja milli landa og heimsálfa. Okkar markmið er því að bjóða vörur úr nánasta umhverfi og auka úrvalið af íslenskum lífrænum af-urðum og vörum beint frá bónda,“ segir Arndís. „Það þyrftu miklu fleiri að framleiða lífrænar vörur hér á landi. Örfá bú framleiða líf-rænt lamba- og nautakjöt og líf-rænt ræktaðir kjúklingar, svína-kjöt og egg eru ekki fáanleg hér á landi til dreifingar en við mynd-um hoppa á það fyrst verslana og selja með glöðu geði,“ segir Arndís og hvetur þá sem ætla sér að fram-leiða lífrænar vörur að hafa sam-band við Maður Lifandi. Íslenska neytendur þyrsti í lífrænt rækt-aðar dýraafurðir enda framleidd-ar með velferð dýranna að leiðar- ljósi sem gefur af sér heilnæmari afurðir og lágmarkar umhverfis-áhrifin af framleiðslunni.„Ísland er langt á eftir öðrum Evrópulöndum hvað varðar fram-leiðslu á lífrænum vörum. Við búum við góðar, náttúrulegar að-stæður hér á landi til að rækta og framleiða slíkar vörur og íslenska lífrænt ræktaða grænmetið er rifið út þegar það kemur,“ segir Arn-dís en Maður lifandi fær vikuleg-ar sendingar af nýju innfluttu líf-rænu grænmeti og ávöxtum í við-bót við það íslenska grænmeti sem fæst hverju sinni. Arndís segir þróunina í þess-um efnum vera á einn veg og að ís-lenskir framleiðendur komist ekki hjá því að breyta áherslum sínum. Neytendur kalli eftir heilnæmarivörum „Það eru miklar breytingar væntan legar en neytendur kalla bæði eftir auknu framboði og að-gengi að lífrænt vottuðum vörum. Við höldum stundum að bara ef vara er íslensk þá sé hún í lagi, en það er verið að flytja inn erfðabreytt fóður, eiturefni ýmis konar og til búinn áburð til að nota í framleiðslunni og því miður er það reglan frem-ur en undantekningin að kjötvör-ur séu þyngdar með því að bæta út í þær kartöflumjöli eða sojaprótíni sem binda vatn og að fjölmörgum aukefnum eins og rot varnar- þráa-varnar- og bindiefnum sé bætt í neysluvörur. Í dag eru neytendur að verða sífellt betur upplýstir og gera því meiri kröfur en áður um vörur úr hágæða hráefnum Þett álíka ið lífrænar snyrti- og hreinlætis vörur, meðal annars frá íslenskum fram-leiðendum. „Rannsóknir hafa sýnt að ýmis efni sem notuð eru í snyrti- og hreinlætisvörur séu krabbameins-valdandi og hormónatruflandi. Framleiðendum er í raun í sjálfs-vald sett hvað þeir setja í þess-ar vörur og því verða neytend-ur að vera á varðbergi. Um þetta eru sífellt fleiri meðvitaðir í dag. Við finnum fyrir auknum áhuga í verslunum okkar og markaðurinn er að taka við sér. Þó einkaneysla sé að dragast saman í samfélaginu finnum við ekki fyrir því í Maður Lifandi. Neytendur gera sér betur grein fyrir því en áðu ð Áhyggjulaus innkaup ●LÍFRÆNIR ÁVEXTIR OG GRÆNMETI Í HVERRI VIKU Maður Lifandi býður fjöl-breytt úrval af innfluttum líf-rænt ræktuðum ávöxtum og grænmeti, sem kemur í hverri viku, í viðbót við það íslenska líf-ræna grænmeti sem er fáan legt hverju sinni. Rannsóknir hafa sýnt að lífrænt ræktaðir ávextir og grænmeti innihaldi meira af vítamínum, steinefnum og and-oxunarefnum enda úr gróður-mold sem haldið er frjórri á náttúrulegan hátt. Þeir sem til þekkja eru sammála um að það sé einnig bragðmeira og betra. ●PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF Starfs-fólk Maður Lifandi á það sam-eiginlegt að hafa mikla reynslu, þekkingu og áhuga á heilbrigð-um, náttúrulegum og lífrænum lífsstíl, og mikla þjónustulund. Það er því einstaklega vel í stakk búið til að veita viðskiptavinum hagnýtar upplýsingar og góð ráð, hvort sem þeir eru byrjend-ur eða lengra komnir Áh Lıfrænn lífsstíllSérblað • Þriðjudagur 10. maí 2011 • Kynning Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Maður Lifandi. MYND/GVA Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Íbúar Hrafnistu við Boðaþing fagna því að sundlaugin verður opnuð við hátíðlega athöfn á morgun. Biði enda Í búar Hrafnistu við Boðaþing hafa verið langeygir eftir opnun sundlaugar-innar á staðnum. Fyrstu íbúar fluttu inn í mars í fyrra en framkvæmdum við sundlaugina lauk fyrir nokkrum mánuðum. Sundlaugin, sem er sérhönnuð með þarfir eldra fólks í huga, er í þjónustu-miðstöð fyrir eldri borgara, Boðanum, sem Kópavogsbær á og rekur. Vegna bágrar fjárhagsstöðu var ekki talinn rekstrargrundvöllur fyrir lauginni fyrst um sinn og því stóð hún ónotuð um nokkra hríð.Fyrir nokkru kom upp sú hugmynd að Hrafnista tæki að sér að kosta mannahald við rekstur laugarinnar en fengi á móti að nýta laugina án þess að greiða leigu eða afnotagjald. Hrafnista fær þannig að nýta laugina fyrir heimilisfólk hjúkr-unarheimilis, tarfsfólk og íbúa leiguíbúða DAS. Kópavogsbær sér hins vegar um annan rekstur laugarinnar á borð við húsnæðiskostnað, vatn og rafmagn.Formleg opnun sundlaugarinnar fer fram á morgun með ræðuhöldum og tónlist-aratriðu . Þá munu einhverjir nýta sér tækifærið og stinga sér í laugina. Þau Sigurður Bárðarson, Magðalena Stefánsdóttir, Svava Jónsdóttir og Dóra Magnúsdóttir tóku forskot á sæluna á dögunum fyrir myndatöku Fréttablaðsins og líkaði aðstaðan ljómandi vel. solveig@frettabladid.is Aloa Vera plantan hefur meðal annars fengið viðurnefnið brunaplantan enda er hún góð til ð linahvers kyns brunasviða. Fáar jurtir hafa betri áhrif á sól-bruna og er gott að hafa Aloa Vera gel við höndin eftir langa sólardaga. Ný kynslóð Rafskutlur -frelsi og nýir mögu Einfaldar í notkun og hagkvæmar í rekstri Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Opið virka daga kl. 9 Sölustaðir:10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1, Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga,Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin, Fiskbúðin Freyja, Melabúðin. ÍSLENSK FÆÐUBÓT BITAFISKUR -næring fyrir líkama og sál Gleðilegt sumar! Lóritín® HVÍTA HÚS IÐ / S ÍA - A ct av is 1 14 09 1 Ánægð með nýja laug Sundlaugin í Boðaþingi opnar á morgun en hún hefur staðið tilbúin en ónotuð í marga mánuði. allt 1 FÓLK Heilsuræktarfrömuðurinn Arnar Grant gerir grín að sjálfum sér í auglýsingu fyrir prótein- drykkinn Hámark. Þar er vísað í myndina The King’s Speech sem fjallar um baráttu Bret- landskonungs við stam og ótta hans við að tala opinberlega. „Ég stama sjálfur. Ég þekki þetta vandamál mjög vel þannig að ég átti ekkert erfitt með að leika þetta,“ segir Arnar, sem hefur leitað sér aðstoðar til Þýskalands vegna stams. - fb / sjá síðu 30 Arnar Grant glímir við stam: Fékk aðstoð í Þýskalandi Evrópumaður ársins Anna Margrét Guðjónsdóttir varaþingmaður er fyrsta konan sem valin er Evrópumaður ársins. tímamót 16 EFNAHAGSMÁL Íslenskir fjárfestar eru farnir að sýna fasteignamark- aðnum aukinn áhuga. Þinglýstum samningum vegna fasteignakaupa hér á landi fjölgaði um 70 prósent á höfuðborgarsvæðinu fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil 2010. Samkvæmt upplýsing- um frá Seðlabankanum hafa útlán þó ekki aukist í samræmi við það. Í Markaðspunktum greiningar- deildar Arion banka kemur fram að þrátt fyrir aukin umsvif á fast- eignamarkaðnum megi ekki greina samsvarandi aukningu í útlánum vegna íbúðakaupa. Í Markaðspunktunum kemur jafnframt fram að þessi auknu umsvif séu ein afleiðing gjaldeyris- haftanna og að aukinn áhuga fjár- festa á fasteignakaupum megi rekja til þess að fáir aðrir fjárfestinga- kostir séu í boði. Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu- maður greiningardeildar Arion banka, segir þó að engar tölur séu til sem staðfesti þessa þróun, en þetta sé engu að síður afar líkleg skýring á þessum auknu umsvifum á markaðnum. Þó að útlán hafi lít- illega verið að taka við sér séu þau ekki í takti við veltuna, sem hefur aukist um allt að 100 prósent á milli ára. „Það hefur verið mikill kippur á síðustu mánuðum og á sama tíma höfum við séð verðið hækka,“ segir Ásdís. Hún segir þetta meðal ann- ars vísbendingu um að fjársterkir einstaklingar séu að kaupa fast- eignir. Gera má ráð fyrir að þessi þróun geri almenningi erfiðara fyrir að kaupa íbúðir, sérstaklega þeim sem séu að kaupa sína fyrstu íbúð. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, tekur undir það að afar líklegt sé að markaðurinn sé að færast í þessa átt. „Með lækk- andi vöxtum virðast vera einhver drög að því að menn séu að fara með innistæðurnar sínar út,“ segir hann. Árni Páll segir að vissulega geti þetta leitt til verðþrýstings upp á við og í hagkerfi sem starfi í umhverfi gjaldeyrishafta sé allt- af hætt við eignabólum. „En þessi þrýstingur er þó að minnsta kosti byggður á raunverulegum eignum,“ segir Árni Páll. „Einhvers staðar verða þessir peningar að finna sér farveg. En það er auðvitað hætta á eignabólum í umhverfi gjald- eyrishafta, þegar peningamagnið í umferð eltir takmarkað magn af eignum.“ Viðskiptaráðherra segir erfitt fyrir stjórnvöld að bregðast við svona þróun þegar um sé að ræða tilflutning á fjármagni á milli ólíkra eignaforma. - sv Gjaldeyrishöft blása upp fasteignaverðið Fátt stendur íslenskum fjárfestum til boða annað en fasteignakaup vegna gjald- eyrishafta. Við blasir að það mun hækka fasteignaverð, að mati Arion banka. Alltaf hætta á eignabólum í umhverfi gjaldeyrishafta, segir viðskiptaráðherra. VÍÐA SKÚRIR Í dag verða víðast austan eða norðaustan 3-10 m/s. Skýjað með köflum og skúrir. Hiti 7-15 stig, mildast SV-til. VEÐUR 4 12 15 7 10 13 Ballið búið Atvinnumannsferill Einars Hólmgeirssonar er á enda. Meiðsli bundu enda á hann. sport 26 Góðir siðir og vondir Áður fyrr stóð stundum karl uppi á kassa á Lækjartorgi, skrifar Jónína Michaelsdóttir. í dag 13 BJÖRGUN Björgunarsveitir voru kallaðir út á sjöunda tímanum í gærkvöldi til að leita manns á Esjunni. Hann fannst rétt fyrir klukkan átta, illa áttaður og aðframkominn. Hátt í hundrað björgunar- sveitar menn tóku þátt í leitinni, enda svæðið stórt og erfitt yfir- ferðar, að því er fram kemur í til- kynningu frá Landsbjörg. Þoka var á svæðinu þegar maðurinn týndist en leitin gekk þó vel þar sem þokunni létti um það leyti sem leitin hófst. Þyrla Landhelgisgæslunnar tók jafnframt þátt í leitinni. Hún sótti manninn og flutti hann á bráðamóttöku Landspítalans. - sh Fluttur með þyrlu á sjúkrahús: Fannst aðfram- kominn á Esju HUNDRAÐ LEITUÐU Fjöldi björgunar- sveitarmanna fór á staðinn og leitaði á stóru illfæru svæði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÆREYJAR Færeyski verksmiðju- togarinn Athena stóð í ljósum logum í bænum Runavík við Skálafjörð í Færeyjum í gær og gekk afar illa að slökkva eldana. Runavík er um ellefu kílómetra norður af Þórshöfn. Öflugar sprengingar hafa orðið í skipinu; eitraðan reyk og mikinn hita lagði frá því og yfir bæinn. Flytja þurfti þúsundir íbúa í nágrenninu burt af öryggis- ástæðum. Eldur kviknaði í skipinu í fyrra- kvöld þar sem það hefur verið í slipp vegna viðgerða. Þrír menn voru um borð í skipinu þegar eldur inn kviknaði, en engan þeirra sakaði. Athena er um átta þúsund tonn að stærð. Skemmdir urðu á skipinu vegna eldsvoða á síðasta ári, en þá var það nýkomið úr allsherjar endur- nýjun í Kína. Eins og myndir frá færeyskum fjölmiðlum sýndu í gær logaði skipið stafna á milli í gær og miklar sprengingar urðu í skip- inu. Yfirvöld hafa mælt með því að skipið verði dregið burt frá höfninni. Ljóst er að skipið er gjörónýtt en þetta er í þriðja skiptið sem kvikn- ar í því. Skipið er í eigu útgerðar- félagsins Thor í Færeyjum. - gb, - shá brúttólestir er stærð Athenu, sem var eitt stærsta verk- smiðjuskip Færeyinga. 8.000 ATHENA BRENNUR Gríðarlegt eldhaf og sprengingar urðu til þess að þúsundum manna var sagt að yfirgefa heimili sín í gær. MYND/KJARTAN MADSEN/DIMMALÆTTING Stór verksmiðjutogari gjörónýtur eftir eldsvoða í höfninni í Skálafirði í Færeyjum: Logaði stafna á milli í höfninni ARNAR GRANT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.