Fréttablaðið - 18.05.2011, Page 1

Fréttablaðið - 18.05.2011, Page 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011 Miðvikudagur skoðun 14 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Skólar og námskeið Markaðurinn 18. maí 2011 114. tölublað 11. árgangur Næturvaktin í Noregi Þáttaröðin Næturvaktin verður líklega endurgerð fyrir norska ríkissjónvarpið. fólk 34 Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Ferðafélag Íslands stendur fyrir ferðinni Skyggnst í iður jarðar – Eyjafjallajökull á laugardaginn næsta. Lagt er af stað klukkan 8 og komið heim milli 22 og 23 um kvöldið. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara Sigrún Gísladóttir, sem lengi var búsett í Kaupmannahöfn, gefur út bók um borgina.Á ferð um KöbenS igrún Gísladóttir, sem búsett var í Kaupmannahöfn um árabil, hefur gefið út bók um borgina, Kaupmannahöfn – Í máli og myndum.„Þegar ég bjó í Kaupmannahöfn byrjaði ég af tilviljun að taka hópa í göngu um borgina,“ segir Sigrún, sem í framhaldinu fékk meiri áhuga á Kaupmannahöfn. Hún segir að bókin sé að hluta til byggð á gögnunum. „Ég flétta saman staðreyndum sem fólk sér og sögunni aftur í miðaldir. Ég tek það sem mér finnst áhugaverðast, ekki síst fyrir Íslendinga.“Að sögn Sigrúnar byrjar hún á að kynna fólki hvernig það kemst til borgarinnar en tekur síðan miðkjarna hennar fyrir. „Ég segi fólki frá ráðhúsinu og því sem þar er um kring. Svo fer ég um elsta hluta borgarinnar í háskólahverfinu en þar lifðu og störf-uðu okkar frægu menn,“ segir Sigrún og heldur áfram: „Ég fer yfir að Sívala-turni, á Strikið og að Kóngsins Nýjatorgi. Ég fjalla um Norðurbryggju, Christianshavn og Amalienborg þar sem höllin er. Ég fer líka yfir að Jónshúsi og geri því góð skil,“ upplýsir Sigrún og bætir við að einnig fari hún lengra í burtu þar sem hægt sé að finna eitthvað fyrir barnafjölskyldur. martaf@frettabladid.is skólar og námskeið MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2011 Sögurnar... tölurnar... fólkið... Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 H E L S T Í Ú T L Ö N D U M Miðvikudagur 18. maí 2011 – 9. tölublað – 7. árgangur PORTÚGAL HJÁLPAÐ Evrópusambandið samþykkti á mánudag neyðarlán til bjargar Portúgal upp á 78 milljarða evra. Þriðjungur lánsins kemur frá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum, þriðj- ungur úr neyðarsjóði evruríkj- anna en þriðjungur fer á fjárlög ESB. Að meðaltali eru lánin til sjö og hálfs árs með 5,7 prósenta vöxtum. KÍNVERJAR GÁI AÐ SÉR Herm R Hraði! Skilvirkni! Sveigjanleiki! Rannsaka fjörutíu skattaskjólsmál Embætti skattrannsóknarstjóra kemst aðeins yfir brot mála tengdra skattaskjólum. Upplýsingaskiptasamningar til bóta. Íslendingar teknir að yfirg f k tt kjóli Stýrivextir lækk kki VEXTIR KYNNTIR Líklegt er að þrýst verði á að Seðlabankinn horfi fram hjá verri horfum í vaxtaákvörðunum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ísland færist skör neðar Kapphlaup í stígvélum og með sandpoka 4-5 Tækni Dagblöð lesin í farsímanum PFS og Vodafone Deilt um tíðni nýs farsímanets 2 GRÓÐURMOLD - 50 LTR Fáðu fjóra en borgaðu fyrir þrjá. Stykkjaverð, kr 1290 4 fyrir 3 www.listahatid.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA! Forsetafrúin í Ljósinu Dorrit Moussaieff kenndi á matreiðslunámskeiði fyrir ungt fólk með krabbamein. tímamót 18 FÓLK Ridley Scott, sem meðal annars leikstýrði Alien og Gladi- ator, mun leikstýra kvikmynd um leiðtogafund Ronalds Reag- an og Mikhaíls Gorbatsjov í Höfða. Breska fram- leiðslufyrir- tækið Head- line Pictures og Scott náðu samningum um þetta á kvik- myndahátíðinni í Cannes í Frakk- landi. Myndinni hefur verið gefið vinnuheitið Reykjavík en ekki liggur fyrir hvenær tökur munu hefjast. Fjögur ár eru liðin síðan fyrst var greint frá áhuga Scotts á að gera kvikmynd um leiðtoga- fundinn en um tíma var talið að hætt hefði verið við þá mynd. - fgg / sjá síðu 34 Samningar tókust í Cannes: Scott leikstýrir kvikmynd um fundinn í Höfða TÆKNI Um helmingur alls hugbún- aðar sem er uppsettur á tölvum hér á landi er fenginn eftir ólöglegum leiðum. Það er svipað hlutfall og síðustu fimm ár og er meðal þess mesta sem gerist í Vestur-Evrópu. Þetta og fleira kemur fram í nýútgefinni skýrslu Business Software Alliance (BSA), alþjóð- legra samtaka hugbúnaðarfram- leiðenda sem hefur innan sinna vébanda mörg stærstu fyrirtæki heims á þessu sviði, þar á meðal Microsoft og Adobe. Um er að ræða árlega rannsókn sem hefur verið framkvæmd með sama hætti frá árinu 2003. Meðal þess sem þar kemur fram er að sjö prósentustiga aukning hefur orðið í notkun á ólöglegum hugbúnaði á heimsvísu frá árinu 2006. Þá var hlutfall ólöglegs hug- búnaðar í tölvum 35 prósent, en í fyrra var hlutfallið 42 prósent. Er aukningin helst rakin til auk- innar tölvueignar í þeim þróunar- löndum sem hafa verið í sem mest- um vexti undanfarin ár. Hæst hlutfall ólöglegs hugbún- aðar mældist í Georgíu, 93 pró- sent, en lægst var það í Banda- ríkjunum, Japan og Lúxemborg, 20 prósent. Hlutfallið á Íslandi í fyrra var 49 prósent sem er mjög svipað og hefur verið frá 2006. Friðrik J. Skúlason, tölvunar- fræðingur og forritari, segir í samtali við Fréttablaðið að þessar tölur komi sér ekki á óvart. „Það eru allt of margir sem alast upp við það að það sé ekki þjófn- aður að taka verk annarra í heim- ildarleysi.“ Friðrik segir að úrbætur í þess- um efnum felist fyrst og fremst í hugarfarsbreytingu en líka í bættu aðgengi að löglegu efni. „Það er ákveðinn hluti fólks sem stelur aldrei og ákveðinn hluti sem finnst það eðlilegt að stela. Hinir á milli kaupa efni löglega þegar þeir geta. Ef aðstæður hér á landi breyt- ast þannig að auðveldara verður að ná sér í höfundarvarið efni á lögleg- an hátt, ætti það að draga úr stuld- inum. Þá hefur fólk ekki þá afsökun að geta ekki keypt og verði því að stela, sem er afskaplega hallæris- leg afsökun.“ Friðrik segir að í raun sé hug- búnaðarbransinn þegar farinn að breytast því að fyrirtæki séu að nokkru leyti hætt að selja forrit til uppsetningar á tölvum. „Þau eru í auknum mæli farin að selja netþjónustu í stað forrita. Þá er engu að stela heldur verður þú að skrá þig á netinu til að nota þjón- ustuna. Þannig verður það í fram- tíðinni. Það nennir enginn að skrifa forrit ef öllum finnst svo eðlilegt að stela verkunum þeirra.“ - þj Helmingur forrita stolinn Tæplega helmingur alls hugbúnaðar í íslenskum tölvum er fenginn eftir ólöglegum leiðum, að því er kemur fram í nýrri alþjóðlegri könnun. Tölvufræðingur segir að hugarfarsbreytingar sé þörf hér á landi. Það eru allt of margir sem alast upp við það að það sé ekki þjófnaður að taka verk annarra í heim- ildarleysi. FRIÐRIK J. SKÚLASON TÖLVUNARFRÆÐINGUR VÆTA NA-TIL Í dag verða víða norðaustan 8-13 m/s en hægari syðra. Væta N- og NA-lands en léttir til SV-til. Kólnar í veðri. VEÐUR 4 9 3 5 7 7 RIDLEY SCOTT ÁLFUR BREGÐUR Á LEIK Hin árlega álfasala SÁÁ hefst á morgun. Álfurinn er tileinkaður ungu fólki og rennur söfnunarféð til rekstrar unglingadeildar Vogs. SÁÁ leitar þessa dagana að áhugasömu sölufólki fyrir þennan verðuga málstað. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG FJÁRMÁL Bryndís Kristjánsdóttir skatt- rannsóknarstjóri segir að embætti sitt komist ekki yfir að leysa öll þau mál sem til rannsóknar eru og tengjast svokölluð- um skattaskjólum. Um fjörutíu mál eru nú til rannsóknar. Bryndís segir að málin séu afar þung í vöfum og aðallega sé það vegna þess að nauðsynlegar upplýsingar hafa ekki bor- ist, þrátt fyrir upplýsingaskiptasamninga við þau lönd sem í hlut eiga. Hver rann- sókn getur tekið á annað ár, enda er það leikið eftir að tefja afhendingu gagna. „Við erum til dæmis með upplýsinga- skiptasamning við Jómfrúaeyjar en upp- lýsingarnar er ekki að finna þar þótt félag sé skráð þar til heimilis. Þar er kannski bara eitthvert box en félagið sjálft stað- sett í Lúxemborg.“ Um mikla fjármuni er að tefla, einkum í Lúxemborg, að sögn Bryndísar. Þeim, sem eiga eignir og fjármuni erlendis og eru skattskyldir hér á landi, ber að telja allt fram. - ibs, shá / sjá Markaðinn Skattrannsóknarstjóri kemst ekki yfir að rannsaka öll mál tengd skattaskjólum: Erfitt að upplýsa skattaskjólsmál BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR Yfir læk fyrir milljón Valsmenn borguðu KR vel fyrir hinn 18 ára Ingólf Sigurðsson. sport 30

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.