Fréttablaðið - 18.05.2011, Blaðsíða 10
18. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR
Ef þú ert hjá Símanum
skaltu grípa tækifærið
og græja þig upp
fyrir sumarið.
Magnaðir miðvikudagar!
25% afsláttur
af öllum GSM
aukahlutum í dag
Flugöryggisfundur
Fimmtudag 19. maí 2011 kl. 20.00
Flugskýli 25, Geirfugl, Fluggörðum Rvk-flugvelli.
Fundarstjóri: Kristján Sveinbjörnsson
1. Flugmálafélagið hlutverk og verkefni Ágúst Guðmundsson
2. Rannsóknarnefnd flugslysa flugslys og alvarleg flugatvik síðustu missera
Þormóður Þormóðsson og Þorkell Águstsson
3. Flugmálafélagið viðhaldsmál gagnvart flugöryggi. Valur Stefánsson og
Reynir Guðmundsson
4. Flugmálastjórn breytingar varðandi kröfur skírteini - PART-FCL.
Yfirlit um stöðu á viðhaldsmálum í almannaflugi. Einar Örn Héðinsson
6. Nýsköpunarmiðstöð, áhrif gosöskunar á þotumótora. Þorsteinn Ingi Sigfússon
5. Flugbjörgunarsveitin. Nytsemi björgunarstökks og vörufallhlífa FBSR.
Guðjón Ingi Gústavsson
6. Stutt kvikmyndasýning, listflug og fl. Fyrirspurnir í lok hvers dagskrárliðs.
Kaffiveitingar í boði Flugmálafélagsins.
Allt áhugafólk um flugmál velkomið.
Flugmálafélag Íslands Flugmálastjórn Íslands Rannsóknarnefnd
Flugbjörgunarsveitin Öryggisnefnd FIA Flugslysa
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Félagsfundur um nýgerðan kjarasamning VR og FA verður
haldinn í kvöld kl. 18:15 á Hilton Reykjavík Nordica.
Félagsfundur
DANMÖRK „Konungsríkið býst við
að gera tilkall til landgrunnsins á
fimm svæðum umhverfis Græn-
land og Færeyjar, þar á meðal til
sjálfs norðurpólsins,“ segir í drög-
um að sameiginlegri stefnu Dan-
merkur, Grænlands og Færeyja
í norðurskautsmálum næstu tíu
árin.
Danska dagblaðið Information
hefur birt drögin á vefsíðu sinni,
en skjalið átti að vera trúnaðar-
mál. Danska stjórnin hefur stað-
fest að skjalið er ófalsað, en segir
þetta vera vinnuskjal.
Lene Espersen utanríkisráð-
herra segir að endanleg útfærsla
stefnunnar verði ekki afgreidd
fyrr en í júní. Þó staðfestir hún, í
yfirlýsingu sem hún sendi frá sér
í gær, að Danir reikni með að geta
gert tilkall til norðurpólsins.
Í skjalinu er jafnframt tekið
fram, að danska stjórnin leggi
áherslu á friðsamlegt samstarf
við önnur ríki, sem gera tilkall til
norðurpólsins, og víðtækt sam-
starf um málefni norðurskauts-
ins. Hins vegar er einnig lagt til
að danski herinn beini starfi sínu
í auknum mæli að norðurslóðum.
Rússar hafa á síðustu árum gert
tilkall til norðurpólsins og vöktu
mikla athygli þegar þeir sendu
kafara til að setja upp rússneska
fánann á hafsbotni á sjálfum norð-
urpólnum. Þeir voru jafnframt
gagnrýndir fyrir það tiltæki, þótt
einkum hafi það átt að hafa tákn-
rænan tilgang.
Auk Rússa hafa Kanadamenn,
Bandaríkjamenn og Norðmenn
gert tilkall til sjálfs norðurpólsins
í krafti þess að hann sé beint úti
af ströndum þeirra. Danir gera sitt
tilkall í krafti þess að norðurpóll-
inn er beint norður af ströndum
Grænlands.
Mikilvægi norðurslóða hefur
vaxið á síðustu árum, einkum
vegna hlýnunar jarðar sem innan
fárra áratuga mun að öllum líkind-
um valda því að siglingaleiðir yfir
Danir gera tilkall
til norðurpólsins
Danska stjórnin hyggst í fyrsta sinn gera formlegt tilkall til norðurpólsins, í
samvinnu við Grænlendinga og Færeyinga. Búast má við hörðum átökum um
þetta við Rússa auk ágreinings við önnur ríki sem gera tilkall til svæðisins.
RÚSSNESKI FÁNINN Á NORÐURPÓLNUM Danir ætla nú að feta í fótspor Rússa og
gera formlegt tilkall til norðurpólsins. NORDICPHOTOS/AFP
Norður-Íshafið verða greiðfærar
hluta ársins.
Talið er víst að miklar auðlindir
leynist í landgrunninu víða á norð-
urslóðum, meðal annars sé þar að
finna olíu og gas í ríkum mæli.
Vinnsla þeirra auðlinda verður
mun auðveldari þegar ísinn hörfar.
Til þessa hefur ekkert ríki átt
formlegt tilkall til norðurpólsins.
Samkvæmt hafréttarsáttmála
Sameinuðu þjóðanna hafa ríki tíu
ára frest, eftir að þau staðfestu
sáttmálann, til þess að gera til-
kall til alþjóðlegs hafsvæðis áður
en hægt verður að hefja eiginlegar
samningaviðræður um skiptingu
svæðisins. Danir staðfestu sátt-
málann árið 2004.
gudsteinn@frettabladid.is
„Það var áréttað á fundi Norðurskautsráðsins í Nuuk á Grænlandi í síðustu
viku að hafréttarsáttmálinn yrði það tæki sem menn notuðu til að greiða
úr þrætum um landamörk á hafsbotni og þar með auðlindir,“ segir Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
„Hann er í öllu falli farvegur til að komast að niðurstöðu um deilur af
þessu tagi.“
Að sögn Össurar voru engar umræður um kröfu Dana á fundinum í Nuuk.
Greitt úr þrætum