Fréttablaðið - 18.05.2011, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 18.05.2011, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 18. maí 2011 13 ÖRYGGISMÁL Slysavarnafélagið Landsbjörg og Olíuverzlun Íslands hf. (Olís) hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Olís verður einn af aðalstyrktaraðilum samtakanna og mun styðja við samtökin bæði fjárhagslega og með verulegum afslætti af eldsneyti og öðrum vörum. Ellingsen, sem er í eigu Olís, er hluti af þessu samkomulagi. En Ellingsen mun bjóða afsláttar- kjör á vélsleðum og fjórhjólum til Landsbjargar. - shá Samningur til þriggja ára: Landsbjörg og Olís í samstarf LÖGREGLUMÁL Göt voru stung- in í topp bifreiðar á Akranesi fyrir nokkrum dögum, líklega með skrúfjárni. Þar voru einnig tvær bifreiðar skemmdar eftir högg eða spark. Þá virðist sem reynt hafi verið að brjótast inn í heimahús með því að spenna upp glugga, sem ekki tókst. Þá ók ölvaður ökumaður niður ljósastaur við Esjubraut. Mað- urinn var talsvert lemstraður og var fluttur á slysadeild SHA en reyndist ekki alvarlega meiddur. - jss Annir hjá Akraneslögreglu: Göt stungin í topp bifreiðar ÍSRAEL Ísraelskir foreldrar nýfædds stúlkubarns sóttu inn- blásturinn í val á nafni fyrir stúlkuna í samskiptasíðuna Facebook. Þeir hafa skírt dóttur sína „Like“. Lior og Vardit Adler sögðu fréttavef BBC að þau hefðu viljað nútímalegt og frumlegt nafn. Notendur Facebook kann- ast flestir við hnapp sem fólk smellir á til að gefa til kynna að því líki við færslur annarra á þessari vinsælu samskiptasíðu. Á íslenska hnappinum stendur „Líkar við“, en á ensku útleggst það „Like“. Foreldrarnir segja þetta frum- lega nafn nútímaútgáfu af nafn- inu Ahava, sem þýðir ást. - bj Foreldrar hrifnir af Facebook: Dóttirin fékk nafnið „Like“ MENNING Alls bárust 26 umsókn- ir um svokallaða skyndistyrki sem menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar afgreiðir í næstu viku. Hæsta styrkbeiðnin er frá textílhópnum Snældunum sem óskar eftir 900 þúsund krónum til að vinna með ull á fjölförn- um stað í hjarta Reykjavíkur í sumar. Sex óska eftir 500 þúsund króna styrkjum, meðal annars vegna tónleikaraðar Gunnars Kvaran á Kjarvalsstöðum, til að taka upp ný kórverk eftir Haf- liða Hallgrímsson og til að stofna nýjan óperuhóp Alþýðuóper- unnar. Sömu upphæð er beðið um handa fyrirtækinu Classical Concert Company Reykjavik sem hyggst starfa með tónlistarhúsinu Hörpu. - gar Umsóknir til menningarráðs: Listamenn vilja 26 skyndistyrki HAFLIÐI HALLGRÍMSSON Taka á upp ný kórverk tónskáldsins og myndlistar- mannsins. Hafðu samband við okkur í síma 444 7000, á arionbanki.is eða komdu í næsta útibú. Við tökum vel á móti þér. ÍS LE NS KA SI A. IS A RI 54 32 7 05 /1 1 4,3% „ Að tóm- stundirnar séu inni í skipulaginu.“ „ Að ég skili góðu dagsverki.“ „ Að geta notið lífsins í rólegheitum.“ „ Að bankinn minn þekki þarfi r mínar.“ Ný íbúðalán Hvað skiptir þig máli? Það skiptir máli að geta fengið íbúðalán á góðum kjörum. Þess vegna bjóðum við hjá Arion banka viðskiptavinum okkar ný íbúðalán. Um er að ræða verðtryggð íbúðalán með föstum 4,3% vöxtum í 25 eða 40 ár. Komdu við í næsta útibúi eða reiknaðu þitt dæmi á arionbanki.is. Jason Kristinn Ólafsson 39 ára „Það skiptir máli að geta gert áætlanir fram í tímann.“ SKATTAMÁL Heildarskattbyrði einstaklinga jókst meira á Íslandi en í nokkru öðru OECD- ríki á milli áranna 2009 og 2010. Þetta kemur fram í árlegri skattaúttekt Efnahags- og fram- farastofnunar Evrópu (OECD). Skattar á ein- staklinga á Íslandi eru þó enn undir meðaltali OECD-ríkjanna. Hækkun á tekjuskatti hefur valdið þyngri skattbyrði á alla tekjuhópa hér á landi en heild- arskattbyrði jókst um 3,3 prósent. Skattbyrðin jókst mest á einstæða tekjulága foreldra með tvö börn en minnst á tekjulága einstaklinga. Í skattaúttektinni eru tekjuskattsgreiðslur og heildarlífeyrissjóðsgreiðslur vinnuveitenda og starfsmanna reiknaðar saman að teknu til- liti til bóta. Skattbyrði jókst í 22 af 34 ríkjum OECD á tímabilinu. Ísland er enn í lægri helmingi OECD þegar kemur að skattbyrði. Í saman- burði við meðaltal OECD er skattbyrðin sér- staklega lág hér á pör með einum vinnandi aðila, tvö börn og meðaltekjur. Í úttektinni kemur einnig fram að skattbyrði hér hefur aukist á alla tekjuhópa fyrir utan einstaklinga með háar tekjur frá árinu 2000. Sú breyting hefur jafnframt orðið frá aldamót- um að einstæðir tekjulágir foreldrar greiða nú meira í skatt en þeir fá í bætur en því var öfugt farið. - mþl Skattar ennþá lægri á Íslandi en að meðaltali í OECD-ríkjunum: Skattar á laun hækkað mest hér á landi TEKJUSKATTUR HÆKKAÐ Skattbyrði einstaklinga jókst um 3,3 prósent á milli 2009 og 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.