Fréttablaðið - 18.05.2011, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 18.05.2011, Blaðsíða 54
18. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR34 „Norðmennirnir eru mjög áhuga- samir og endurgerðin lítur mjög vel út þar. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að þeir hafa ekki keypt sýningarréttinn, þeir vilja gera sína eigin útgáfu,“ segir Kjartan Þórðarson, framkvæmda- stjóri Saga Film. Norska ríkissjón- varpið, NRK, hefur í hyggju að endurgera hina íslensku Nætur- vakt. Ekki liggur þó fyrir hvenær það verður. Mikið hefur verið rætt og ritað um endurgerð Næturvaktarinnar í Bandaríkjunum í fjölmiðlum og ekki er langt síðan greint var frá því að gamanleikarinn Jack Black væri þar með í ráðum. Nú stend- ur hins vegar yfir hið svokallaða „pilot“-tímabil þegar stóru sjón- varpsstöðvarnar prófa nýja þætti, en Næturvaktin var ekki meðal hinna útvöldu. Kjartan segir að Ameríkuævintýrið hafi komið svolítið óvænt upp í hendurnar á Vaktarmönnum og áhugi Banda- ríkjamanna hafi komið þeim í opna skjöldu; sjónvarpsstöðvar á Norðurlöndunum hafi til að mynda verið fyrri til að sýna áhuga. „Það er búið að skrifa tvö mismunandi handrit fyrir Ameríkumarkað og samkvæmt þeim vildu þeir flækja aðeins hlutina, fá inn fleiri pers- ónur og hafa fleiri staði en bara eina bensínstöð. Við vorum ekkert allt of hrifnir af þeirri hugmynd; vinsældir Næturvaktarinnar byggja að mörgu leyti á einfald- leika þáttanna.“ Kjartan bendir jafnframt á endurgerð Glæpsins eða Forbrydelsen í Bandaríkjun- um og segist hafa viljað sjá Næt- urvaktina fara í þá áttina. „Þeir halda sig mjög nálægt upprunan- um, aðalpersónurnar eru til dæmis danskir innflytjendur og umhverfi þáttanna er allt mjög „danskt“. Það lék líka lykilhlutverk í vinsældum þáttanna.“ Næturvaktin var sýnd á BBC Four í síðustu viku og Kjartan segir það nánast lygilegt hversu miklum árangri það hafi skilað; síminn hafi varla stoppað í höfuð- stöðvum Saga Film. „Þegar við vorum að reyna að selja þáttaröð- ina á sínum tíma fengum við allt- af að heyra að tungumálið myndi vefjast fyrir áhorfendum. Með þessu framtaki BBC eru aðrar sjónvarpsstöðvar reiðubúnar að endurskoða það, því það hefur aug- ljóslega verið horft á þættina og menn hafa myndað sér skoðanir á þeim. Við vorum til að mynda í síð- ustu viku að kynna þættina fyrir 43 dagskrárstjórum hjá sjónvarps- stöðvum í Evrópu. Fyrir sýning- arnar á BBC höfðum við ekki haft aðgang að slíkum fundum.“ freyrgigja@frettabladid.is BESTI BITINN Í BÆNUM „Metro, hann hefur hjálpað mér að komast yfir þá sorg að McDonald‘s sé ekki lengur til á Íslandi.“ Júli Heiðar Halldórsson poppstjarna. NORSK ÚTRÁS Næturvaktin verður væntanlega endurgerð í Noregi en norska ríkis- sjónvarpið hefur ekki keypt sýningarréttinn að þáttunum þar sem það vill gera sína eigin útgáfu. Þeir Georg, Daníel og Ólafur Ragnar gætu því eignast norska frændur í náinni framtíð. KJARTAN ÞÓRÐARSON: SÝNINGARNAR Á BBC SKILUÐU MIKLU Norska ríkissjónvarpið vill endurgera Næturvaktina Breski leikstjórinn Ridley Scott virð- ist hafa tekið miklu ástfóstri við Ísland. Samkvæmt erlendum kvikmyndavefjum tókust samningar milli framleiðslufyrir- tækisins Headline Pictures og Scotts á kvikmyndahátíðinni í Cannes um að hann myndi leikstýra kvikmynd um leiðtoga- fund Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík. Það vakti mikla athygli á Íslandi fyrir fjórum árum þegar Scott viðraði þá hug- mynd sína um að gera kvikmynd um þenn- an merkilega fund sem talinn er hafa lagt grunninn að því að kalda stríðið lognaðist út af. Fyrri framleiðendur myndarinnar áttu fund með þáverandi borgarstjóra, Vil- hjálmi H. Vilhjálmssyni, um að fá afnot af Höfða en þeir eru nú horfnir á braut. Og síðan hefur ekkert frést af gangi mála og almennt var talið að Scott væri hreinlega hættur við verkefnið og það dottið upp fyrir. Bloggsíða kvikmyndavefsíðunnar Indiewire greinir frá þessu á heimasíðu sinni og vitnar í kvikmyndaritið Screen Daily. Þar kemur fram að vinnuheiti myndarinnar sé Reykjavík. „Allir héldu að þetta væri dautt en nú virðist hafa verið blásið nýju lífi í það. Þetta gæti orðið Frost/Nixon-mynd frá Scott. Ef það kemur ekkert meira spennandi í staðinn,“ skrifar blaðamaður Indie Wire. Scott var staddur hér á landi fyrir skemmstu að skoða tökustaði fyrir kvik- mynd sína, Prometheus, og því gæti það allt eins orðið að leikstjórinn yrði viðloð- andi hérlendis í dágóðan tíma. - fgg Leiðtogafundurinn á hvíta tjaldið Íslenska Norska Já sæll! ......... Ja, hej! Eigum við að ræða það eitthvað? ......... Skal vi snakke om det, eller? Gugga (gella) að smíða geimflaugar? ......... Er jenta at konstruera romskip? Ég er með fimm háskólagráður. ......... Jeg har fem universitetsgrader. Hvers konar steik (vitleysingur) ert þú? ......... Hva er du for en galen fyr? NORSKIR FRASAR SÖGULEGUR FUNDUR Fundur Ronalds Reagan og Mikhaíls Gorbatsjov í Reykjavík var sögulegur í meira lagi. Nú hyggst Ridley Scott gera kvikmynd um hvað fór fram á bak við hinar luktu dyr Höfða sem heimsbyggðin beið eftir að myndu opnast. „Hann var rosalega kammó og fannst gaman að spjalla,“ segir leikarinn Theódór Júlíusson, sem hitti kollega sinn, hinn danska Mads Mikkelsen, á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes. Þeir hittust í hádegismat sem skipuleggjendur eins af aðal- flokkum keppninnar, Quinzaine des Réalisateurs, stóðu fyrir. „Ég heilsaði honum og sagði honum að ég væri að leika í bíómynd sem væri að keppa á hátíðinni og að hann væri í miklu uppáhaldi hjá mér,“ segir Theódór, sem fer með aðalhlutverkið í myndinni Eld- fjall. Mikkelsen er einn þekktasti leikari Dana. Hann lék þorparann í Bond-myndinni Casino Royale fyrir nokkrum árum og einnig í sjónvarpsþáttunum vinsælu Rejse- holdet. Theódór sá fleiri stjörn- ur á vappi í Cannes, þar á meðal félagana Frank Hvam og Casper Christensen úr þáttunum Klovn og enska leikarann Jude Law, og hafði gaman af. „Þetta var æðislega gaman en rosalega mikil vinna,“ segir Theó- dór, sem hafði í nógu að snúast við kynningu á Eldfjalli þá daga sem hann var staddur í Cannes. „En ég fann ekkert fyrir mikilli þreytu fyrr en á leiðinni heim.“ - fb Hitti Mads Mikkelsen í Cannes HITTUST Í CANNES Theódór Júlíusson og Mads Mikkelsen á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Faxafeni 14 www.heilsuborg.is Verð 5.800 kr. Skráning á mottaka@heilsuborg.is eða í síma 560 1010 Erla Gerður Sveinsdóttir, yfirlæknir HNLFÍ og Heilsuborgar Magna Fríður Birnir, hjúkrunarforstjóri HNLFÍ Sigrún Ása Þórðardóttir, sálfræðingur og verkefna- stjóri HNLFÍ og Heilsuborgar Hvað er til ráða? DANSLEIKHÚSVEISLA 20.-21. maí Einstakt hátíðarverð: 5000 kr. fyrir miða á báðar sýningarnar. Verði þér að góðu 20. maí kl. 22 21. maí kl. 22 Við sáum skrímsli 20. maí kl. 19 21. maí kl. 20 Miðasölusími: 551 1200
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.