Fréttablaðið - 18.05.2011, Blaðsíða 32
Sjá heildarframboð á
www.opnihaskolinn.is
eða hafðu samband við okkur í síma 599 6300
Nýttu þér fjölbreytt námskeið Opna háskólans í HR til að styrkja stöðu þína
og stuðla að nýjum sóknarfærum. Hér má sjá brot af námsframboði vetrarins.
ÞÚ!
ÞETTA SNÝST
UM ÞIG OG FRAMTÍÐ
NÁMSBRAUTIR
Verkefnastjórnun APME
(Applied Project Management Expert)
Nám samhliða vinnu, kennt í fjarnámi
og samsvarar 24 ECTS einingum.
Lögð er áhersla á tölulegar greiningar við
ákvarðanatöku og stjórnun rekstrar og verkefna.
Náminu lýkur með alþjóðlegu IPMA-prófi.
Hefst 13. september.
Markaðssamskipti og almannatengsl
Kennd eru undirstöðuatriði öflugs markaðsstarfs.
Námið er hagnýtt og miðar að því að dýpka
skilning nemenda og efla faglega þekkingu á
viðfangsefninu. Námið er byggt upp í samstarfi
við ÍMARK, SÍA og Almannatengslafélag Íslands.
Hefst 14. september.
NÁMSKEIÐ
Coaching Clinic
Vinnustofa þar sem þátttakendum er veitt hagnýt
þjálfun og innsýn í hugmynda- og aðferðafræði
markþjálfunar (Executive Coaching).
Ágúst
Frumgreinar – háskólagrunnur
Markviss undirbúningur fyrir háskólanám.
Ágúst
Þjálfun og kennsla starfsfólks
Gagnleg kennslufræðinámskeið
fyrir þá sem vinna að þjálfun starfsmanna
og starfsþróun.
September
Excel
Hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja bæta
þekkingu sína og færni í notkun Excel.
September
NÁMSLÍNUR
Viðurkenndir bókarar
Réttindanám fyrir bókara í samvinnu
við fjármálaráðuneytið.
Hefst 19. ágúst.
Rekstrar- og fjármálanám
Hagnýtt nám fyrir þá sem vilja auka færni sína
í fjármálum og rekstri lítilla og miðlungsstórra
fyrirtækja.
Hefst í september.
Viðskipti um vefinn
Námskeið fyrir þá sem stunda
eða hafa hug á að stunda viðskipti á Netinu
og byggja upp farsælan rekstur (með sölu á
vöru og þjónustu) á þessu öfluga markaðstorgi.
Hefst í september.
Lífsviðhorf – Lífsstíll (Well-being)
Árangursmiðað nám fyrir þá sem vilja efla
persónulega færni og viðhorf, m.a. á sviði
fjármála, heilsu, samfélagsábyrgðar og
árangurs í samskiptum.
Hefst í september.
Verðbréfamiðlun I. hluti
Nám til undirbúnings prófa í verðbréfamiðlun.
Hefst í september.
Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu
Nám sem þjónar sérstöðu og tækifærum
íslenskrar ferðaþjónustu.
Hefst í október.
PMD – stjórnendanám HR
Námið er hannað að alþjóðlegri fyrirmynd
og lagað að íslenskum aðstæðum til að efla
faglega þekkingu og færni stjórnenda.
Kennt í Reykjavík og á Akureyri.
Hefst í október.
Greining ársreikninga
Hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja dýpka
skilning sinn á greiningu ársreikninga.
September
Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
Ítarleg kynning á lagalegum, fjárhagslegum og
siðfræðilegum þáttum til að efla faglegan grunn
og ábyrgð stjórnarmanna.
September
Grunnatriði verkefnastjórnunar
Farið er yfir aðferðir við gerð á góðri verkefna-
áætlun og einkenni árangursríkra verkefna.
September
Samningatækni
Þátttakendur fá hagnýta þjálfun
í samningatækni sem höfða til þeirra áskorana
sem samningamenn standa frammi fyrir.
September
Framkoma og tjáning
Þátttakendur eru þjálfaðir í að tjá sig með
skýrum hætti, tala af öryggi fyrir framan hóp
af fólki, leggja áherslur á aðalatriði og auka þar
með áhrifamátt sinn og útgeislun.
September
Samningatækni – framhaldsnámskeið
Lögð er áhersla á hagnýtingu vandaðrar
samningatækni á vinnustað og í einkalífi
með æfingum, raundæmum og umræðum.
Nóvember
7 venjur til árangurs
Vinnustofan byggir á mest seldu stjórnunarbók
allra tíma: 7 Habits of Highly Effective People,
eftir Stephen Covey.
Nóvember