Fréttablaðið - 18.05.2011, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.05.2011, Blaðsíða 6
18. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR6 Aðalfundur SÁÁ verður haldinn fimmtudaginn 26. maí 2011 kl. 17:00 í Von, Efstaleiti 7. Dagskrá fundarins er: Skýrsla stjórnar um framkvæmdir og starfsemi samtakanna á liðnu starfsári. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til umræðu og samþykktar. Lagabreytingar ef fyrir liggja tillögur um þær. Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðenda og varaendurskoðenda. Tekin ákvörðun um félagsgjöld. Önnur mál. Öflugur greiðendavefur með hagnýtum upplýsingum s.s. Tekur aðeins 7 mínútur að hella upp á 2,2 lítra FRÉTTASKÝRING Hvað á enn eftir að gera við kvóta- frumvörp ríkisstjórnarinnar? Ríkisstjórnin telur sig hafa nokk- uð öruggan meirihluta fyrir kvóta- frumvörpunum tveimur sem lögð verða fram á Alþingi á næstu dögum. Óvíst er hins vegar hve- nær þau munu koma til afgreiðslu, þótt reyna eigi til þrautar að klára að minnsta kosti hið fyrra áður en þingið fer í sumarfrí um miðjan júní. Tveir þingmenn Samfylkingar- innar lýstu yfir efasemdum um til- tekna þætti frumvarpanna í Morg- unblaðinu í gær, einkum að þau væru ekki nógu markaðsmiðuð og veittu stjórnmálamönnum – ráð- herrum og fulltrúum sveitarfélaga – of mikil völd til úthlutunar úr svokölluðum pottum. Sú útfærsla hefur á hinn bóginn mælst vel fyrir hjá Vinstri grænum og ólík- legt að henni fáist breytt. Þessar efasemdir enduróma þær fjölmörgu athugasemdir sem fram komu á þingflokksfundi Samfylk- ingarinnar á mánudag, þar sem frumvörpin voru kynnt og síðan samþykkt til framlagningar á þingi. Samfylkingarmenn fara enda ekki í grafgötur með að þeir séu síður en svo himinlifandi með frumvarpið. Með því hefði þurft að ganga lengra í endurúthlutun á aflaheimildum, að þeirra mati, þótt menn geri sér grein fyrir því að stjórnmál snúist um málamiðl- anir, hugmyndir þeirra njóti ein- faldlega ekki nægs fylgis og því verði ekki komist lengra að sinni. Búast við stuðningi annarra En jafnvel þótt stöku þingmenn Samfylkingarinnar kynnu að ganga úr skaftinu við atkvæða- greiðslu um málið óttast forystu- menn stjórnarinnar ekki að frum- vörpin verði felld. Þeir treysta meðal annars á stuðning Atla Gíslasonar og Ásmundar Einars Daðasonar, nú utan flokka, sem eru tæpast taldir vilja leggja stein í götu frumvarpa sem komin eru frá sjávarútvegs- ráðuneyti Jóns Bjarnasonar, náins samherja þeirra frá tímanum í Vinstri grænum. Þá er sömuleiðis búist við því að framsóknarmenn, að minnsta kosti hluti þeirra, muni styðja málið á þingi, jafnvel þótt sumir liðsmenn hafi gagnrýnt það opin- berlega. Enn fremur er ekki talið útilok- að að Hreyfingin styðji frumvörp- in á endanum þótt fulltrúar hennar ætli fyrst að reyna fyrir sér með sitt eigið. Gæti tafist fram á haust Ríkisstjórnin hefur fengið sex hagfræðinga, undir forystu Axels Hall, lektors við Háskólann í Reykjavík, til að vinna álitsgerð um hagræn áhrif frumvarpanna, verði þau að lögum. Í bókun um skipan hópsins segir að tekið skuli mið af álitinu við meðferð málsins í þinginu, og, eins og það var orðað við blaðamann, að ef það sýndi fram á að lagabreyt- ingarnar myndu rústa íslenskan sjávarútveg – sem útvegsmenn hafa haldið fram – þá verði að sjálfsögðu tekið tillit til þess. Þetta þýðir að fyrra frumvarpið verður ekki afgreitt fyrr en álitið liggur fyrir. Upphaflega stóð til að það yrði í byrjun júní, en hins vegar þykir afar hæpið að sú tíma- setning standist. Tefjist vinnan við álitið mjög gæti tíminn orðið naumur. Þingið á að starfa til 15. júní en svigrúm er til að starfa nokkra daga til viðbótar ef mikið liggur við, líkt og gert var í fyrra. Það vilja menn þó helst forðast, enda rækist það þá á annað á dagskrá þingmanna og ráðherra, svo sem hátíðahöld á 17. júní. Þá er ekki heldur með öllu úti- lokað – sérstaklega ef gera þarf miklar breytingar á frumvörpun- um – að afgreiðsla þess fyrra tefj- ist fram á haust. Sumarþinginu lýkur ekki fyrr en með tveggja vikna þingfundi í september og þess vegna þyrfti ekki að leggja frumvörpin fram að nýju. Nýtt fiskveiðiár verður þá reyndar hafið, en þetta er þó talið mögu- legt þar sem breytingarnar í frum- varpinu taki ekki nema að litlu leyti til næsta fiskveiðiárs. Óttast ekki riftun kjarasamninga Nokkur þrýstingur er hins vegar á að ljúka málinu í júní vegna tengsla þess við nýgerða kjarasamninga. Samtök atvinnulífsins létu setja ákvæði í samningana um að þau gætu rift þeim einhliða fyrir 22. júní, ekki síst vegna óvissunnar um afdrif kvótamálsins. Í stjórnarliðinu hafa menn reynd- ar ekki teljandi áhyggjur af því að reyna muni á riftunarákvæðið. Bent er á að stór hluti aðildarfélaga Sam- taka atvinnulífsins hafi samþykkt kjarasamningana og víða þar innan- búðar hafi gætt nokkurrar óánægju með það hversu mikil áhrif kvóta- málin virtust ætla að hafa á samn- ingana. Að lokum hafi verið knúið á um samningsgerðina og ólíklegt sé að útgerðarmenn fái aftur að koma kjaramálunum úr farvegi, hvað sem hótunum um það líði. Þá geti það jafnvel dregið enn úr líkunum á að samningunum verði rift að láta málið hanga í lausu lofti fram á haust, enda geti atvinnurek- endur þá skýlt sér á bak við það að málið sé enn breytingum háð. Svona hljóðar alltént stöðumatið í herbúðum ríkisstjórnarflokkanna, með þeim fyrirvara að í sjálfu sér megi eiga von á hverju sem er. stigur@frettabladid.is Búast við öruggum meirihluta á Alþingi Innan stjórnarflokkanna er talið að þingmenn utan þeirra muni tryggja að kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar verði örugglega samþykkt. Vonast er til að það takist í júní, en gæti þó tafist fram á haust. SA hótar riftun kjarasamninga. KERFISBREYTINGAR Í FARVATNINU Atvinnurekendur eru ekki par sáttir við fyrirætlanir stjórnvalda. Fæstir þingmenn eru sérstaklega kátir heldur, en margir sættast á að leiðin sem mörkuð hefur verið sé sú illskásta í stöðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ■ Fyrra frumvarpið snýst um breytingar á núgildandi fiskveiðistjórnunar- lögum. Í því er kveðið á um 70 prósenta hækkun veiðigjalds strax í haust og 100 prósenta hækkun á fiskveiðiárinu sem hefst 2012. Þá er kveðið á um að sveitarfélög fái rentu af gjaldinu og verði heimilt að framselja byggðakvótann. ■ Síðara frumvarpið er til nýrra fiskveiðistjórnunarlaga. Það er því eðli málsins samkvæmt mun víðtækara og kveður á um grundvallarkerfis- breytingar. Samkvæmt því fara 15 prósent kvótans í leigupotta og gerður verður nýtingarsamningar við útgerðirnar til fimmtán ára. Frumvörpin tvö DÓMSMÁL Þrír ungir menn hafa verið dæmdir í sex til átta mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnað rán. Tveir mannanna fóru að kvöldi þriðjudagsins 1. febrúar síðastlið- ins inn í Bónusvídeó við Lóuhóla með andlit sín hulin og ógnuðu starfsmanni og hópi ungmenna með vopnum. Annar mannanna beindi hnífi að starfsmanninum og skipaði honum að opna pen- ingakassann. Er starfsmaðurinn hafði gert það tók maðurinn pen- inga úr kassanum og síðan sígar- ettupakka úr skáp og setti í bak- poka. Meðan á þessu stóð ógnaði hinn ræninginn ungmennunum í söluturninum með kúbeini. Menn- irnir höfðu á brott með sér 30 til 40 þúsund krónur í peningum og 15 til 20 sígarettupakka. Þriðji maðurinn beið í bíl á meðan þeir frömdu ránið og ók þeim síðan á brott. Mennirnir ját- uðu sök. Þeir voru dæmdir til að greiða starfsmanninum 165 þús- und í skaðabætur, þar sem atvikið olli honum andlegri vanlíðan. - jss Ógnuðu starfsmanni og hópi ungmenna með hnífi og kúbeini: Þrír dæmdir fyrir vopnað rán BÓNUSVÍDEÓ Í LÓUHÓLUM Sölu- turninn sem mennirnir rændu. Hefur þú heimsótt tónlistar- húsið Hörpu? JÁ 13,7% NEI 86,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Finnst þér ásættanlegt að heræfingar séu haldnar hér á landi? Segðu skoðun þína á visir.is SAMGÖNGUMÁL Von er á metfjölda skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar í sumar. Alls hafa 35 skip hafa boðað komu sína þangað. Fyrsta skemmtiferðaskipið, MV Athena, lagðist að bryggju þar í gær. Þetta kemur fram á vefnum bb.is. Mikið er um stór skip, og fimm þeirra eru með yfir þúsund manns um borð. Kristjana Milla Snorradóttir, framkvæmdastjóri Vesturferða, segir að annríkið verði mest í júlí og séu til dæmis þrjú skip vænt- anleg sama daginn, 14. júlí. - þeb Skemmtiferðaskip á Ísafirði: Búist við met- fjölda í sumar KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.