Fréttablaðið - 18.05.2011, Side 20
MARKAÐURINN18. MAÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
B A N K A B Ó K I N
Samanburður á
vaxtatöflum bankanna
*Miðað er við 250.000 króna innlegg og sem skemmsta bindingu. A Bundinn í tíu daga. B Bundinn í sjö
daga. C Úttektargjald hjá gjaldkera 0,25%
Athugið að ekki er tekið tillit til árgjalds, sem getur fylgt yfirdráttarreikningum.
Hæstu Yfirdráttarvextir Yfirdráttarlán
innlánsvextir eru hæstir fyrirtækja
Markaðsreikningur
1,25%A
11,25% 11,20%
Vaxtaþrep
1,90%
11,20% 11,20%
Vaxtareikningur
1,15%B
11,20% 11,20%
MP Sparnaður 9,40 til
2,00%
11,05% 11,05%
PM-reikningur 11,10 til
2,00% 11,15% 11,20%
Netreikningur
2,00% C
11,25% 11,25%
Sparnaðarreikningur
2,00%
10,25% Ekki í boði.
Næstu aldamót, móðurfélag raf-
tækjaverslunar Bang & Olufsen
á Íslandi, var úrskurðað gjald-
þrota í Héraðsdómi Reykjavík-
ur 13. apríl síðastliðinn.
Verslunin hefur verið lokuð
um nokkurt skeið og byrgt fyrir
glugga. Forsvarsmenn versl-
unarinnar sögðu í samtali við
Fréttablaðið um miðjan mars
að endurbætur stæðu yfir áður
en nýjar vörur væru teknar upp
úr kössum. Stefnt væri að því
að opna verslunina aftur í apríl.
Óvíst er með skuldastöðu
félagsins. Árið 2009 tapaði fé-
lagið 188 milljónum króna.
Skuldir námu 325,8 milljónum
króna og var eigið fé neikvætt
um 224,5 milljónir. Fram kom í
DV í síðustu viku að eigendur
hefðu fengið 205 milljóna lán til
kaupa á rekstrinum árið 2007.
Guðmundur H. Pétursson,
skiptastjóri þrotabús félagsins,
segir óvíst með rekstur Bang
& Olufsen. Enginn rekstur sé í
versluninni nú. - jab
Óvíst með reksturinn
Forsvarsmenn sögðust bíða nýrra vara í apríl.
DYRNAR LOKAÐAR Forsvarsmenn Bang
& Olufsen sögðust um miðjan mars vera
að rýma fyrir nýjum vörum. Mánuði síðar
varð eigandinn gjaldþrota.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ferðaþjónusta bænda hlaut Útflutningsverðlaun for-
seta Íslands síðastliðinn mánudag. Verðlaunin eru
veitt í viðurkenningarskyni fyrir markvert framlag
til eflingar á útflutningsverslun og gjaldeyrisöflun
íslensku þjóðarinnar.
Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjón-
ustu bænda, tók við verðlaununum úr hendi Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Friðrik Pálsson
hjá Íslandsstofu tilkynnti hver hlyti verðlaunin, en
hann var formaður úthlutunarnefndar. Íslandsstofa
hefur tekið við af Útflutningsráði sem umsjónaraðili
verðlaunanna.
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari fékk sérstaka
heiðursviðurkenningu, sem er ný af nálinni, fyrir að
hafa aukið hróður Íslands á erlendri grundu.
Ferðaþjónusta bænda er hlutafélag í eigu bænda
og hefur starfað að markaðssetningu og sölu í átján
ár. Fyrirtækið er í viðskiptum við um 150 ferðaskrif-
stofur og heildsala um allan heim. - þeb
Útflutningsverðlaun
forseta Íslands til bænda
Hlutafélag í eigu bænda er í viðskiptum við 150 ferðaskrifstofur og
heildsala víða um heim. Sinnir gjaldeyrisöflun fyrir þjóðina.
Á BESSASTÖÐUM Sævar Skaptason og Ólafur Ragnar Grímsson
afhjúpa listaverkið sem er hluti af verðlaununum. Kristinn
Sigmundsson óperusöngvari fylgdist með, en hann hlaut sér-
staka heiðursviðurkenningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bandaríska netfyrirtækið Google
ætlar að sækja sér þrjá milljarða
dala, jafnvirði 350 milljarða
króna, með skuldabréfaútboði.
Þetta er fyrsta skuldabréfaútboð
fyrirtækisins.
Breska viðskiptadagblaðið Fin-
ancial Tims segir hagstætt fyrir
fyrirtæki að fjármagna sig með
þessum hætti, þar sem fjármögn-
unarkostnaður sé nú lágur vestan-
hafs. Stýrivextir í Bandaríkjun-
um hafa staðið í sögulegum lægð-
um síðan í desember 2008. Google
fetar í fótspor hugbúnaðarris-
ans Microsoft, sem hefur sótt á
skuldabréfamarkað síðastliðin tvö
ár með góðum árangri.
Fram kemur í Financial Times
að stjórnendur Google séu hugs-
anlega að safna í sjóð til að hafa
lausafé á milli handanna þegar
óvænt kauptækifæri komi upp.
Óformlegar viðræður fóru fram
á milli stjórnenda Google og
helstu fjárfesta Skype á dögunum.
Google lagði aldrei fram formlegt
tilboð og varð úr að Microsoft
keypti fyrirtækið fyrir 9,5 millj-
arða dala, jafnvirði 980 milljarða
íslenskra króna. - jab
Google sækir sér fé
Bandarísk fyrirtæki nýta sér lágt vaxtastig.
VILJA EIGA LAUSAFÉ Google vill hafa
yfir nægu fé að ráða, komi upp óvænt
kauptækifæri. Hér er Sergey Brin, annar
tveggja stofnenda Google. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Tíðnileyfi Vodafone, sem á og rekur sjónvarpsþjón-
ustuna Digital Ísland og dreifir sjónvarpsefni um
örbylgju, rennur út í júlí. Viðræður standa yfir um
endur úthlutun á tíðnisviðinu.
Stjórnendur Vodafone hafa óskað eftir endurnýj-
un til næstu níu ára. Póst- og fjarskiptastofnun (PFS)
segir tíðnibandið, 2,6 GHz, eitt af þeim sem fyrir-
hugað sé að nota fyrir næstu kynslóð í fjarskipta-
tækni, svokallað 4G-gagnaflutningsnet. Fái Voda-
fone sínu framgengt getur það tafið fyrir innleiðingu
tækninnar.
Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar
PFS, segir tíðniheimildir ætíð vera tímabundnar. Ekk-
ert óeðlilegt sé við að þær renni út. Þá standi ekki til
að taka tíðnina af Vodafone, né sé deilt um hvort fyr-
irtækið eigi að fá henni endurúthlutað heldur hversu
lengi. Stefnt er að því að ákvörðun um endurúthlut-
un tíðniheimildar Vodafone liggi fyrir innan tveggja
vikna.
„Þessi umrædda tíðni er hugsuð fyrir þráðlausa há-
hraðafarnetsþjónustu, framtíðarþjónustu fyrir far-
síma. Aðrar tíðnir eru í boði fyrir stafrænar sjón-
varpsútsendingar í lofti. Vodafone hefur fengið út-
hlutað tíðnum á UHF-tíðnisviðinu fyrir stafrænar
útsendingar,“ segir Þorleifur og bendir á að Evr-
ópusambandið hafi ákvarðað fyrir nokkru að sama
tíðni og Vodafone notar til dreifingar á sjónvarpsefni
skuli notuð fyrir næstu kynslóð í fjarskiptatækni, oft
nefnda fjórðu kynslóð sem taki við af 3G-farsímanet-
inu. PFS hlítir ákvörðuninni eins og víða annars stað-
ar þrátt fyrir að Ísland hafi lýst því yfir að ákvörð-
unin verði ekki innleidd að sinni vegna núverandi
notkunar Vodafone. „Þau lönd í Evrópu sem enn nota
sömu tíðni og Vodafone til dreifingar á sjónvarpsefni
eru teljandi á fingrum annarrar handar,“ segir hann.
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi hjá Voda-
fone, segir rök PFS mjög veik. Ástæðan fyrir því
að þetta tiltekna tíðnisvið sé notað í Evrópu fyrir
hluta af fjórðu kynslóð í gagnaflutningsþjónustu sé
einfaldlega sú að tíðnisviðið hafi ekki áður verið í
notkun þar.
Hann segir talsverðan mun á sjónvarpsútsending-
um á UHF-tíðnisviði og því örbylgjutíðnisviði sem
Digital Ísland sendi sjónvarpsefni út á á höfuðborg-
arsvæðinu og hluta Suðurlands. Á síðasttalda tíðni-
sviðinu eru sendar út í kringum sjötíu sjónvarps-
stöðvar. Á UHF-tíðnisviðinu sé aðeins sent út efni
tæplega tuttugu sjónvarpsstöðva. Á sumum stöðum
úti á landi séu þær enn færri. Því yrði Vodafone að
fá mun fleiri tíðnileyfi til að geta sent út efni jafn
margra sjónvarpsstöðva og nú á UHF-tíðnibandinu.
Þá bendir Hrannar á að önnur tíðnisvið henti betur
fyrir háhraðagagnaflutningsþjónustu en 2,6 GHz-
tíðnin. „Tíðnisviðið er hátt og dregur skammt en
lægri tíðnir draga lengra og eru hentugri,“ segir
hann og bætir við að verði hætt að nota örbylgju-
tíðnisviðið verði skiptin kostnaðarsöm, bæði fyrir
Vodafone og viðskiptavini fyrirtækisins; þeir þyrftu
annað hvort að kaupa ný loftnet sem gætu tekið við
UHF-sendingum eða að kaupa netþjónustu til að taka
við sjónvarpsefni um háhraðanet.
PFS segir Vodafone
tefja fyrir 4G-tækni
Örbylgjuútsendingar Digital Íslands gætu heyrt sögunni
til eftir nokkur ár. Kostnaðarsamt fyrir bæði fyrirtækið og
viðskiptavini, segir upplýsingafulltrúi Vodafone.
ÞORLEIFUR JÓNSSON HRANNAR PÉTURSSON
Íslenska sprotafyrir tækið
GreenQloud var nýverið valið
eitt af áhugaverðustu umhverf-
istæknifyrirtækjum heims af
hinu heimsþekkta ráðgjafar-
og greiningarfyrirtæki Gartner.
Fyrirtækið gefur á hverju ári
út skýrslu sem ber heitið Cool
Vendors og tiltekur þar 300
áhugaverðustu sprotafyrirtæki
í heimi, fimm í hverjum flokki.
Að hljóta viðurkenningu frá
fyrirtæki eins og Gartner sem
er leiðandi í rannsóknum og ráð-
gjöf í upplýsingatækni, er mik-
ill heiður fyrir lítið sprotafyrir-
tæki á Íslandi með stórar hug-
myndir,“ segir Eiríkur Sveinn
Hrafnsson, framkvæmdastjóri
GreenQloud.
Fyrirtækið stefnir að því að
opna á næstunni umhverfis-
vænsta tölvuský heims hér á
landi. - þj
GreenQloud í hópi
þeirra áhugaverðustu