Fréttablaðið - 19.05.2011, Page 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011
UMHVERFISMÁL „Þeir tala um áhrif aukning-
ar brennisteinsvetnis á virkjanasvæðinu
en minnast lítið á höfuðborgarsvæðið þar
sem meginþorri landsmanna býr,“ segir
Árný Sigurðardóttir hjá Heilbrigðiseftir-
liti Reykjavíkur um frummatsskýrslu vegna
fyrirhugaðrar jarðhitavinnslu við Gráu-
hnúka í Bláfjöllum.
Orkuveitan hyggst nýta jarðhita frá
Gráuhnúkum til að bæta 45 MW við gufu-
aflsvirkjun sína á Hellisheiði. Fyrirtækið
Mannvit vann frummatsskýrslu vegna fram-
kvæmdarinnar. Heilbrigðiseftirlit Reykja-
víkur gagnrýnir vinnubrögðin í skýrslunni
harðlega og er þar í takti við Heilbrigðis-
eftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Áhrif brennisteinsmengunar séu vanmetin
og aðeins stuðst við spálíkön í stað þess að
nota mælingar og rannsóknir sem þó liggi
fyrir.
„Okkur finnst ákaflega óeðlilegt að í
frummatsskýrslunni sé ekkert tekið á
stærsta íbúasvæði landsins sem þó er ekki
langt frá virkjuninni,“ segir Árný. Hún
bendir á að samkvæmt mati heilbrigðiseftir-
litsins geti vinnslan við Gráuhnúka aukið
brennisteinsmagn í lofti um 40 prósent.
Aukningin hefur þegar verið mæld um 140
prósent við Hvaleyrarholt frá því að Hellis-
heiðarvirkjun var tekin í notkun árið 2006.
„Í skýrslunni er ekkert minnst á veðurfar
en hér eru austanáttir og þá leggur brenni-
steinslyktina yfir bæinn,“ útskýrir Árný
sem kveður það ekki síst valda vonbrigð-
um að ekki sé minnst á niðurstöður nýlegra
meistaraprófsrannsókna við Háskóla Íslands
um áhrif loftmengunar á heilsufar. Nið-
urstöðurnar bendi til aukinnar notkunar
astma lyfja og lyfja við hjartaöng í tengslum
við aukna brennisteinsvetnismengun.
„Það er alveg vitað hver eitrunaráhrif
brennisteinsvetnis eru en það þarf að rann-
saka miklu betur áhrifin af lágum gildum
brennisteinsvetnis á heilsufar fólks yfir
lengri tíma,“ segir Árný og gagnrýnir enn
fremur að allt vanti í skýrsluna um nauðsyn-
legar aðgerðir til að vinna gegn menguninni.
„Orkuveitan er að vinna að tilraunum með
hreinsibúnað en ekkert er vitað um árang-
ur af honum. Það er til hreinsibúnaður sem
hentar en hann er dýr og spurning hver vilj-
inn er til að koma honum upp.“ - gar
Fimmtudagur
skoðun 20
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
19. maí 2011
115. tölublað 11. árgangur
Kvarta vegna óþæginda
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær
reglulega kvartanir frá einstak-
lingum sem telja sig verða fyrir
óþægindum vegna aukins styrks
H2S í andrúmslofti.
Úr umsögn
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Skóhönnuðurinn Giuseppe Zanotti er þekktur fyrir íburðarmikla skóhönn-
un. Nú hefur hann hannað í samvinnu við skartgripaframleiðandann Chopard
glæsilegt og rándýrt skópar. Á því verða gullkeðjur, demantar, rúbínsteinar og
bleikir safírar. Fyrirsætan Anja Rubik átti að klæðast skónum á rauða dregl-
inum í Cannes í gærkvöldi en síðan verða þeir boðnir upp í góðgerðaskyni.
Skórnir á myndinni eru eftir Zanotti en þó ekki umræddir demantsskór.
Georg Kári Hilmarsson er ekki leðurtýpa en kann vel við herramannsstíl á flík sem vinur hans hannaði.
Fatnaður fyrir hljómsveitarstjóraÞ etta er stórglæsilegur leðurfatnaður frá honum Guðmundi Jörundssyni sem er að útskrifast úr fatahönnun við Listaháskólann,“ segir Georg Kári Hilmarsson, bassaleikari og tónskáld, um dressið sem hann klæðist á myndinni. „Vestið er úr leðri og ull, buxurnar stungnar og þröngar og jakkinn með bambus-skreytingum. Þetta er reyndar ekki alveg minn stíll, sem er svona frekar hefðbundinn, en mig langar í vestið og er búinn að leggja inn pöntun. Það er annar sem ætlar að kaupa það, en ef hann hættir við hreppi ég hnoss-ið. Og þrátt fyrir að þetta sé leðurdress er á því viss svona herramannsstíll sem ég kann vel við.“Þeir Georg Kári og Guðmundur hafa þekkst síðan í Menntaskólanum við Hamrahlíð og urðu perluvin-ir þegar þeir hófu að leika með hinu merka knatt-spyrnufélagi Mjöðm. Hefur vinátta þeirra haft áhrif á fatastíl Georgs Kára? „Engin spurning. Ég á rosafalleg grá jakkaföt sem hann hannaði fyrir Kormák og Skjöld. Þau föt eru í miklu uppáhaldi hjá mér og ég mun vonandi ganga í fötum frá honum um ókomna tíð. Draumurinn er að stjórna einhvern tíma sinfóníuhljómsveitinni í Hörp-unni í fötum eftir Guðmund,“ segir Georg Kári sem er að klára sitt fyrsta ár í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands, auk þess að vera að semja tónlist við útskriftarverkefni nemanda í Fræði og framkvæmd og leika á bassa með hljómsveit-inni Marcus and the Diversion Sessions.
fridrikab@frettabladid.is
30%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM STÍGVÉLUM
teg. 98880 - mjög mjúkur og þægilegur í BC skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.990,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14.Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.misty.is
Vertu vinur
S T Ó R G L Æ S I L E G U R
SÁÁ bjargaði
lífi mínu
Álfurinn til bjargar Ég var enginn alki
BLAÐ IÐ
1228
Erum á leið
30 ár aftur
í tímann
SÁÁ blaðið
fylgir í dag
www.listahatid.is
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA!
GRENSÁSVEGI 10 108 Reykjavík www.rizzo.is 577-7000
Kringlukast
20–50% afsláttur
Nýtt kortatímabil
Opið til 21 í kvöld
Hita upp fyrir Eagles
Magnús og Jóhann hita upp
fyrir Eagles á tónleikum í
Nýju Laugardalshöllinni.
fólk 54
Rússnesk kvenremba
Elísa Björg Þorsteinsdóttir
ræðir um konur í rússneskri
myndlist.
tímamót 28
SNJÓKOMA eða slydda
norðanlands en rigning eða skúrir
sunnanlands. Strekkingur eða all-
hvasst vestan og norðan til annars
hægari vindur. Kólnandi veður.
VEÐUR 4
8
2 3
4
8
Óttast áhrif brennisteinsgufu
á heilsufar höfuðborgarbúa
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir heilsufarsógn stafa af brennsteinsvetni frá jarðhitavirkjunum. Frum-
matsskýrsla vegna áætlaðrar vinnslu Orkuveitunnar við Gráuhnúka fær falleinkunn og er sögð illa unnin.
Ætla að vinna riðilinn
Stelpurnar okkar mæta
Búlgaríu á Laugardalsvell-
inum í kvöld.
sport 46
Á HVOLFI Fimleikafélagið Björk fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni af því verður haldin
afmælissýning í íþróttahúsinu við Strandgötu á laugardaginn kemur. Þessir ungu parkour-piltar voru við stífar
æfingar fyrir sýninguna þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í Bjarkarhúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL „Höftin endur-
spegla trú stjórnvalda á eigin
verki,“ segir Páll Harðarson, for-
stjóri Kauphallarinnar. Hann
telur gjaldeyrishöft halda gengi
krónunnar óeðlilega lágu. Afnám
þeirra muni líklega styrkja krón-
una og leiða til þess að lánshæfis-
mat ríkissjóðs hækki.
Páll flutti erindi á fundi Varð-
ar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík, í gær. Hann
segir mikilvægt að endurskoða
áætlun um afnám gjaldeyris-
hafta. Þau valdi efnahagslíf-
inu skaða; fjármagnskostnaður
þjóðarinnar hækki, þau dragi úr
tiltrú á hagkerfið og takmarki
aðgang landsins að fjármagni.
„Á Austurvelli er enginn mælir
sem tifar og sýnir hversu mörg-
um milljörðum þjóðarbúið verður
af í hverjum mánuði,“ segir Páll
og bendir á að erfitt sé að meta
kostnaðinn við höftin, sem búi til
hvata til að viðhalda þeim.
- jab / Sjá síðu 18
Afnám gjaldeyrishafta myndi styrkja krónuna, segir forstjóri Kauphallarinnar:
Þjóðin verður af milljörðum
BEIRÚT, AP Forseti Sýrlands,
Bashar Assad, segir að öryggis-
sveitir ríkisins hafi gert mis-
tök í aðgerðum sínum gegn
mótmælendum í landinu. Hann
kenndi illa þjálfuðum lögreglu-
mönnum að hluta til um harka-
leg viðbrögð sem orðið hafa 850
manns að bana undanfarna tvo
mánuði. Í viðtali í blaðinu Al-
Watan sagði hann að verið væri
að endurþjálfa þúsundir lög-
reglumanna. Í gær birtust þó
frásagnir af því að sýrlenskir
hermenn hefðu notað þungar
vélbyssur til að ráðast á hverfi í
borginni Homs.
Drápin á almennum borgur-
um hafa vakið hörð viðbrögð á
alþjóðavettvangi og undirbúa
Bandaríkin og Evrópusamband-
ið nú nýjar refsiaðgerðir gegn
ríkisstjórn Sýrlands. -kh
Sýrlandsforseti í viðtali:
Segir morðin
vera mistök