Fréttablaðið - 19.05.2011, Síða 16

Fréttablaðið - 19.05.2011, Síða 16
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR16 16 hagur heimilanna Til að viðhalda ferskleika aspas sem lengst þarf að meðhöndla hann svipað og nýafskorin blóm. Skolið aspasinn og skerið aðeins neðan af stöngl- unum með beittum hníf. Látið aspasinn standa í háu glasi með smá vatni í botninum, breiðið plastpoka lauslega yfir og stingið inn í ísskáp. GÓÐ HÚSRÁÐ ferskur aspas Hvernig geyma á aspas Mikilvægt er að láta fryst kjöt þiðna vel áður en það er sett á grillið. Sé kjúk- lingur ekki alveg þiðnaður getur hann verið hálfhrár að innan þótt svo líti út sem hann sé fulleldaður á grill- inu. Þá er hætta á að mögu- legar bakteríur í kjúklingn- um geti valdið sýkingu. Þetta eru nokkur þeirra atriða sem hafa ætti í huga nú þegar grillvertíðin er hafin. Best er að þíða fryst kjöt í ísskáp en það getur tekið um sólarhring. Marinering bætir oft bragðið en það geta leynst bakteríur úr kjöt- inu í marineringunni. Þess vegna á ekki að pensla kjöt sem tilbúið er á grillinu með vökvanum. Það á heldur ekki að nota mariner- inguna sem efni í sósu nema tek- inn hafi verið frá sérstaklega hluti til sósugerðarinnar. Mikilvægt er að steikja í gegn svínakjöt, kjúkling, hráar pyls- ur og hamborgara. Bakteríur, sem eru á yfirborði kjötstykkis, dreifast um allt kjötið þegar það er hakkað og þess vegna er nauð- synlegt að steikja í gegn alla rétti úr hakki. Gæta þarf þess þó að maturinn brenni ekki því að þá geta heilsuskaðleg efni myndast. Sé kolagrill notað á að bíða þar til kolin verða grá. Ekki þarf að steikja í gegn nautakjöt og lamba- kjöt sem ekki hefur verið hakkað. Nota á önnur áhöld og ílát undir kjötið sem búið er að grilla en þau sem notuð voru undir hráa kjötið. Hafi afgangar verið lengur í stofuhita en í tvær klukkustund- ir á að fleygja þeim. Skiptar skoðanir eru um hvort betra sé að grilla á kolagrilli eða gasgrilli. Gasgrill þykja þægi- legri og verða æ algengari en mörgum finnst sem ekki komi almennilegt grillbragð af matn- um nema grillað sé á kolum. Lóð- rétt kolagrill þykja góður kostur ef menn eru óþolinmóðir. Þeir sem vilja losa sig við gas- kúta fyrir fullt og allt geta yfir- leitt fengið þá endurgreidda eða innleggsnótu samkvæmt upplýs- ingum frá söluaðilum sem hafa lækkað verð á vinsælustu stærð- inni af málmkútum. Það mun hafa verið gert til þess að draga úr áhuga þjófa á þeim. Steikja á grillkjötið vel en ekki láta það brenna Gaskútar og áfylling Verslun 2 kg málmkútur tómur áfylling 5 kg plastkútur tómur áfylling 6 kg málmkútur tómur áfylling 9 kg málmkútur tómur áfylling 10 kg plastkútur tómur áfylling 11 kg málmkútur tómur áfylling Byko 12.500 2.350 12.500 4.490 Ellingsen 1.829 1.516 12.590 2.236 3.500 3.022 13.310 3.996 2.005 4.380 Húsasmiðjan 12.590 3.168 13.311 5.449 2.999 5.753 N1 1.500 1.720 12.550 2.855 3.735 3.430 2.000 4.785 13.305 5.320 4.230 5.840 Olís 1.829 1.516 12.590 2.236 3.500 3.022 13.310 3.996 2.005 4.380 Skeljungur 2.020 1.900 12.950 3.000 3.018 3.340 2.000 4.730 13.390 5.000 4.275 5.480 Allar tölur eru í krónum 57 GRILLMATUR Grilla á rétt til þess að komast hjá sýkingum og veikindum vegna heilsuspillandi efna. þúsund krónum eyðir hvert heimili að meðaltali í mat í hverjum mánuði samkvæmt vef Hagstofu Íslands. „Verstu kaupin munu vera Marc Jacobs skór sem ég keypti í New York fyrir sex árum,“ segir Ástríður Viðarsdóttir skrifta í Kastljósi á RÚV. „Sagan er sem sagt þannig að ég var stödd í Saks á Fifth Avenue, flott á því með Valdísi vinkonu minni. Nema hvað, ég sé þessa yndislegu skó og afgreiðslumaður sem var eldri maður, frekar virðulegur og fallega klæddur, kemur til mín og dásamar skóna og spyr hvort ég vilji ekki máta. Ég hélt það nú og lagið „Move on up“ byrjaði að hljóma í höfð- inu á mér. Svo kemur hann með skóna og klæðir mig mjúklega úr skónum sem ég var í og í nýju, fínu skóna. Ég stend upp og finn þá strax að þeir eru vægast sagt óþægilegir – en horfi á starfsmanninn, lít á verðmiðann og bara keypti skóna á 550 dollara. Ég hef einu sinni notað þá í barnaafmæli sem var á milli fimm og sjö.“ Ástríður er líka viss um hver bestu kaupin hafi verið. „Það er auðvitað iPhone 4 síminn. Það er hægt að gera allt í þessum síma. Ég læt hann minna mig á alls konar mikilvæga hluti, er með myndavél og upptökuvél í góðum gæðum, sem hefur oft komið sér vel.“ Þar að auki segist Ástríður nota símann eða forrit í símanum sem hluta af skemmtiatriði, og nefnir sér- staklega forritið Cassius. „Svo er auðvitað hægt að skella sér hvar sem er og hvenær sem er á netið, en það sem mér finnst ótrúlegast er forritið Shazam sem virkar þannig að ef þú heyrir gott lag geturðu notað forritið og síminn segir þér hvað lagið heitir. Svo er síminn líka svo smart!“ NEYTANDINN: ÁSTRÍÐUR VIÐARSDÓTTIR Hægt að gera allt í iPhone 4 tímanlega. Ekki geyma það til síðasta dags skila atkvæði þínuMundu að FLÓABANDALAGIÐ ATH! Atkvæði í póst skilist í síðasta lagi 20. maí 24. maí er síðasti dagurinn sem þú hefur til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana Samkvæmt lögum um neytendakaup (þegar neytandi kaupir af fyrirtæki) er kvörtunarfrestur vegna hluta sem ætlaður er verulega lengri endingartími ýmist tvö eða fimm ár, að því er fram kemur á vef Neytendasamtakanna. Ekki má semja um styttri tíma eða nefna styttri frest í skilmálum eða á kvittun. Þetta þýðir að ef neytandi kaupir gallaðan hlut getur hann kvartað ef gallinn kemur fram innan tveggja ára frá kaupunum. Þessi tveggja ára regla gildir því jafnt um rafhlöður og hleðslutæki eins og annað. Hins vegar þarf að leiða líkur að því að um galla sé að ræða, en ekki til dæmis eðlilegt slit eða skemmdir vegna rangrar notkunar. Komi galli fram innan sex mánaða frá kaupum er þó litið svo á að gallinn hafi verið til staðar við kaupin, nema seljandi sanni annað. Ef um galla er að ræða ber því seljanda að bæta úr því ef hleðslutæki eða rafhlaða í fartölvu eða síma reynist gölluð. Sú skylda fellur hins vegar niður ef ekki er um galla að ræða, ef til að mynda sýnt er fram á að þessi tæki séu notuð vitlaust eða skemmd eða ef um eðlilegt slit er að ræða. ■ Rafhlöður og hleðslutæki Minnst tveggja ára ábyrgð Hafi afgangar verið lengur í stofuhita en í tvær klukkustundir á að fleygja þeim.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.