Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 18
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR18
Umsjón: nánar á visir.is
Ótti við hrun krónunnar við
afnám gjaldeyrishafta er ástæðu-
laus að mati Páls Harðarsonar,
forstjóra Kauphallarinnar. Hann
telur afnám haftanna líklegra til
að ýta undir styrkingu gengisins
en hitt.
Páll gagnrýnir harðlega áætl-
un Seðlabankans og stjórnvalda
um afnám gjaldeyrishaftanna og
segir skorta á rökstuðning fyrir
nauðsyn haftanna. Hann flutti
í gær erindi um höftin á opnum
fundi Varðar, fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík.
Páll bendir á að hagstærðir séu
í flestum tilvikum hagstæðar og
ættu fremur að ýta undir styrk-
ingu gengis krónunnar en hitt.
Þannig sé raungengi krónu fimmt-
ungi undir meðaltali síðustu þrjá-
tíu ára og helstu hagstærðir sýni
að gengi hennar sé vanmetið, um
það séu helstu hagfræðingar sam-
mála.
„Höftin gætu haldið genginu
óeðlilega lágu um langt skeið og
þar með dregið úr kaupmætti
almennings,“ segir hann og bend-
ir á að gjaldeyrishöft hækki fjár-
magnskostnað þjóðarinnar, dragi
úr tiltrú á hagkerfinu og takmarki
aðgengi þjóðarinnar að fjármagni.
„Höftin endurspegla trú stjórn-
valda á eigin verk,“ segir Páll og
telur að afnám þeirra myndi leiða
til hækkunar lánshæfismats
landsins og flýta fyrir styrkingu
gengis krónunnar. Þá bendir Páll
á að viðvarandi gjaldeyrishöft og
óskýr áætlun um afnám þeirra
dragi úr aga við ákvarðanatöku
vegna skorts á skýrum mark-
miðum til að stefna að. Þá skýli
gjaldeyrishöft stjórnvöldum fyrir
afleiðingum lélegra ákvarðana,
verji atvinnulífið fyrir samkeppni
og beini einkaaðilum úr arðbær-
um verkefnum í „rentusókn“.
Páll segir erfitt að meta kostnað
við gjaldeyrishöftin, sem í sjálfu
sér búi til hvata til að viðhalda
þeim. „Á Austurvelli er enginn
mælir sem tifar og sýnir hversu
mörgum milljörðum þjóðarbúið
verður af í hverjum mánuði.“
Aðferðafræðin um afnám haft-
anna krefst, að mati Páls, gagn-
gerrar endurskoðunar, en áætlun-
in sem kynnt hafi verið um afnám
hafta sé bæði svartsýn og lítt rök-
studd. Undir það hafi meðal ann-
ars verið tekið í greiningu JP
Morgan í aprílbyrjun. Þá segir
hann veikt gengi á markaði með
aflandskrónur ekki vera vísbend-
ingu um gengisþróun krónunn-
ar. „Gjaldeyrishöftin halda afla-
ndsgenginu lágu,“ segir Páll og
telur að afnema megi gjaldeyris-
höft á nokkrum mánuðum.
olikr@frettabladid.is
Á Austurvelli er
enginn mælir sem
tifar og sýnir hversu mörgum
milljörðum þjóðarbúið verður
af í hverjum mánuði.
PÁLL HARÐARSON
FORSTJÓRI KAUPHALLAR ÍSLANDS
Fylgist með störfum Stjórnlagaráðs og hafið áhrif á endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins.
Bein útsending frá sameiginlegum fundi ráðsins er á hverjum fimmtudegi kl. 13 á vefsíðu ráðsins:
www.stjornlagarad.is. Fundirnir eru opnir almenningi. Öll gögn ráðsins má finna á vefsíðunni.
Stjórnarskrá lýðveldisins varðar okkur öll
Stjórnlagaráð, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík - sími: 422-4400 - netfang: skrifstofa@stjornlagarad.is - vefslóð: www.stjornlagarad.is
Vefslóð Stjórnlagaráðs: www.stjornlagarad.is
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
...ég sá það á Vísi
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
Segir höft halda gengi
krónu óeðlilega lágu
Helstu hagstærðir ættu, að mati forstjóra Kauphallarinnar, fremur að auka
áhuga fjárfesta á Íslandi en letja og ýta undir styrkingu á gengi krónunnar.
Hann segir skorta rökstuðning fyrir nauðsyn á að viðhalda gjaldeyrishöftum.
PÁLL HARÐARSON Forstjóri Kauphallar Íslands segist ekki vita til þess að mat hafi
verið lagt á kostnað við gjaldeyrishöft hér á landi. „Það mat er þá vel falið í skúffu
einhvers staðar,“ sagði hann á fundi í Valhöll í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vodafone hefur fest kaup á þeim
hluta fjarskiptakerfis Fjarska ehf.
sem þjónustar samkeppnismarkað.
„Samningurinn var gerður
í kjölfar útboðs, eftir að stjórn
Fjarska ákvað að draga fyrirtækið
út úr samkeppnisrekstri og sinna
framvegis eingöngu sérhæfðri
öryggisfjarskiptaþjónustu vegna
raforkukerfisins,“ segir í sameig-
inlegri tilkynningu fyrirtækjanna,
en Fjarski er hluti Landsvirkjunar-
samstæðunnar.
Vodafone tekur yfir allar skuld-
bindingar Fjarska gagnvart núver-
andi viðskiptavinum fyrirtækis-
ins. Með kaupunum er Vodafone
sagt eignast fjarskiptakerfi sem
nái til flestra landshluta.
„Verður nýja kerfið viðbót við
núverandi grunnnet Vodafone sem
byggir á 1.800 kílómetra löngum
ljósleiðara sem liggur hringinn
í kringum landið, þar með talið
um Vestfirði,“ segir í tilkynningu
fyrirtækjanna og áréttað að Voda-
fone eigi jafnframt „fjölmarga
fjarskiptastaði á hálendinu“ sem
séu „undirstaða langdrægs GSM
kerfis fyrirtækisins“. - óká
Vodafone á Íslandi kaupir samkeppnisrekstur Fjarska, fyrirtækis Landsvirkjunar:
Kerfi sem nær til flestra landshluta
UNDIRSKRIFT Bjarni Maríus Jónsson og Ómar Svavarsson gengu í fyrradag frá
samningi um kaup Vodafone.
„Þegar fólk hringir með okkar
tækni á ferðum sínum erlendis þá
getur það lækkað símakostnað-
inn um 98 prósent,“ segir Birkir
Marteinsson, einn stofnenda
sprotafyrirtækisins Amivox.
Fyrirtækið hefur gert sam-
komulag við Landspítalann sem
veitir starfsfólki spítalans aðgang
að símaþjónustu Amivox og ann-
arri símatækni sem fyrirtækið
hefur þróað. Með samningnum
geta starfsmenn Landspítalans
hringt mjög ódýrt á milli landa.
Til að nýta sér símtækni Ami-
vox þarf að sækja hugbúnað í net-
verslun og setja hann upp í far-
síma. Hugbúnaðurinn gerir þeim
sem hafa sett hann upp kleift að
hringja á milli landa með mun
ódýrari hætti en áður. Birkir tekur
sem dæmi að um 350 krónur kosti
að hringja úr farsíma heim frá
Bandaríkjunum. Með tækni Ami-
vox kosti símtalið hins vegar sjö
krónur.
Rúmlega 21 þúsund manns í
öllum heimsálfum nýtir sér tækni
Amivox í dag, að sögn Birkis. - jab
Landspítalinn getur lækkað símakostnað mikið:
Nota íslenskan hug-
búnað fyrir farsíma
LÆKKA KOSTNAÐ Starfsfólk Lands-
spítalans getur lækkað símkostnað sinn
verulega á ferðum sínum erlendis, segir
Birkir hjá Amivox. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Færeyski bankinn BankNordik,
áður Föroya Bank, hefur keypt
Amagerbanken í Danmörku. Ama-
gerbanken fór í þrot í febrúar og
varð úr að danska bankasýslan tók
hann yfir. Danska fjármálaeftir-
litið á eftir að samþykkja kaupin.
Gangi allt eftir greiðir BankNor-
dik 235 milljónir danskra króna,
jafnvirði um 5,2 milljarða króna.
Færeyingarnir taka aðeins yfir
ákveðna starfsemi Amagerbank-
en en skilja verstu partana eftir
hjá bankasýslunni. Þar á meðal
eru skuldir tvö hundruð fyrrum
viðskiptavina hans sem nema tólf
milljörðum danskra króna.
Danska viðskiptablaðið Bör-
sen hafði í gær eftir Janus Peter-
sen bankastjóra að kaupin væru í
samræmi við stefnu BankNordik
um að vaxa í Danmörku.
Í blaðinu kemur fram að efna-
hagsreikningur bankans stækki
um rúman helming. Þar af fari
innstæður úr 8,9 milljörðum
danskra króna í 14,2 milljarða.
- jab
Færeyingar kaupa banka sem fór á hliðina í febrúar:
BankNordik verður
helmingi stærri
EINBEITTUR BANKASTJÓRI Janus Peter-
sen, bankastjóri BankNordik, sem hér er
fremstur á myndinni, segir stefnuna að
stækka í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
213 ER SKULDATRYGGINGARÁLAG RÍKISSJÓÐS Það hefur ekki verið lægra í tæp þrjú ár. Hæst fór það í um 1.500 stig í bankahruninu í október 2008. Þetta merkir að leggja þarf fram
2,13 prósent af nafnvirði skuldabréfa til fimm ára til að tryggja þau gegn greiðslufalli.