Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 19. maí 2011
Norræni tískutvíæringurinn verð-
ur haldinn í annað sinn í haust. Við-
burðurinn fer í fyrsta sinn fram í
Bandaríkjunum, í Nordic Heritage-
safninu í Seattle. „Þetta verður
rosalega stór kynning á norrænni
fatahönnun, sérstaklega íslenskri,
grænlenskri og færeyskri,“ segir
Ilmur Dögg Gísladóttir, verkefna-
stjóri Norræna tískutvíæringsins.
„Við höfum strax fundið fyrir mikl-
um áhuga úti í Seattle þótt við séum
bara nýfarin af stað með að kynna
þetta.“
Norræni tískutvíæringurinn er
sýning á norrænni tísku- og skart-
gripahönnun með sérstaka áherslu
á Ísland, Færeyjar og Grænland.
Viðburðurinn var haldinn í fyrsta
sinn árið 2009 samhliða Hönnunar-
Mars, að frumkvæði Norræna húss-
ins. Hann fékk mikla athygli bæði
innanlands sem utan og Ilmur býst
ekki við minni áhuga nú.
„Norræni tískutvíæringurinn
snýst um að setja upp sýningu á
tísku á myndlistarlegum forsend-
um. Tíska er ekki bara tíska, hún
getur verið listræn og við erum að
kanna það,“ segir Ilmur og bætir
við að með því sé verið að miðla
tísku á nokkuð annan hátt en á
tískupöllunum. Viðburðurinn er
haldinn á mismunandi stöðum í
hvert sinn. „Við teljum að með því
fáum við alltaf nýjan markhóp.
Þannig kynnast fleiri og fleiri nor-
rænni tísku.“
Ilmur segir að til að kynna við-
burðinn hafi verið ákveðið að halda
fatahönnunarkeppni sem hönnunar-
nemendur frá vesturströnd Banda-
ríkjanna og Kanada geta tekið þátt
í. „Áhersla er lögð á að nemendur
kynni sér norræna hönnun og noti
hana sem innblástur,“ segir Ilmur
og heldur áfram: „Við höfum fengið
nokkur viðbrögð við keppninni og
spurningar vegna hennar.“
Aðspurð segir Ilmur að fólk hafi
mikinn áhuga á Norræna tísku-
tvíæringnum og
framsetningu sýn-
ingarinnar. „Þetta
er fra m a nd i
fyrir amerísk-
an markað og
sérstaklega
Seattle.
Þetta nær
að standa
upp úr. Það eru
náttúrulega tísku-
veislur haldnar um
allan heim í höfuð-
borgum tískunnar
sem hönnuðir þekkja
vel. Við erum að vona
að með því að taka þátt
í svona sérstöku sam-
hengi skapist óvenju-
leg tækifæri..“
martaf@frettabladid.is
Sunna Dögg Ásgeirsdóttir, hönnuðurinn á bak við barnafatamerkið Sunbird,
kynnti sína fyrstu sumarlínu með tónlistarmyndböndum sem hún vann í sam-
vinnu við hljómsveitina Stop Wait Go. Myndböndin skiluðu henni bæði umfjöll-
un í erlendum tímaritum á borð við Vogue bambini og Small Magazine og
hilluplássi í verslunum í London og New York.
„Búðin í New York heitir Babesta, stór og flott verslun í hjarta Tribecca-hverf-
isins. Nú bíð ég bara eftir að frægu leikarabörnin fari að sjást í fötunum,“ segir
Sunna og hlær. Hún ákvað að búa til myndbönd frekar en taka ljósmyndir til að
hugmyndafræðin á bak við línuna skilaði sér sem best.
„Fötin eru bæði lifandi og hreyfanleg og ég vildi sýna það. Tónlistin var samin
sérstaklega og er allt öðruvísi en hljómsveitin er þekkt fyrir, en ég treysti þeim
fullkomlega í verkið, bræður mínir eru í hljómsveitinni,“ segir Sunna.
Myndböndin má skoða á heimasíðunni, www.sunbirdkids.com en von er
á nýju sumarlínunni í verslanir í vikunni. Á döfinni hjá Sunnu er svo að auka
vöruúrvalið.
„Í haust mun ég senda frá mér ungbarnaföt og eins langar mig til að hanna á
unglinga.“ - rat
Selur Sunbird í New York
MYNDBÖND VIÐ TÓNLIST STOP WAIT GO LÖNDUÐU NÝJUSTU LÍNU SUNBIRD-BARNAFATALÍNUNNAR HILLUPLÁSSI Í NEW YORK.
Fyrsta sumarlína Sunbird kemur í versl-
anir í vikunni, meðal annars í Rumpu-
tusku á Laugavegi og Sirku á Akureyri.
Íslensk hönnun í Seattle
Norræn hönnun verður í brennidepli í Seattle í Bandaríkjunum í haust á Norræna tískutvíæringnum.
Ilmur Dögg Gísladóttir segir að sýningin sé góð kynning fyrir íslenska hönnun og mikill áhugi sé á henni.
Ilmur Dögg Gísladóttir segir að
Norræni tískutvíæringurinn snúist um
að setja upp sýningu á myndlistar-
legum forsendum.
Íslensku hönnuðirnir
Hildur Yeoman, Mundi
og Vík Prjónsdóttir
munu meðal annarra
taka þátt í Norræna
tískutvíæringnum.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
vertu vinur á facebook
Erum fluttar í
Skeifuna 8
Alltaf
eitthvað
nýtt og
spennandi
Opið
mán.fim 12–18, fös. 12–16,
Sími 694 7911
Eikjuvogur 29, 104 Rvk.
TÍMI KLOSSANNA
RUNNINN UPP!
VANDAÐIR SÆNSKIR
KLOSSAR Í MÖRGUM
LITUM.
SUSHI OG SÓL !
60 BITA
VEISLUBAKKI VERÐ
KR. 8900,-
OSUSHI -THE TRAIN
Lækjargötu 2a og Borgartúni 29 sími 561 0562 / www.osushi.is
Kjólar fyrir öll tilefni
• Útskriftir
• Brúðkaup
• Afmæli
• Eða bara sumarið
• Ótrúlegt úrval af
nýjum sumarkjólum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R