Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 19.05.2011, Blaðsíða 36
04 maí 2011 ERUM Á LEIÐ 30 ÁR AFTUR Í TÍMANN Íslendingum fjölgar, þeir drekka meira og verr, ólöglegi vímuefnamarkaðurinn styrkist og sjúklingarnir sem koma á Vog þurfa enn meiri þjónustu, en stjórnvöld SKERA NIÐUR FÉ TIL MEÐFERÐARMÁLA. Nú þegar er það fé sem varið er til SÁÁ komið niður fyrir það sem það var árið 2000. HEILDARÚTGJÖLD AUKAST EKKI Dregið er úr heildarútgjöldum til heilbrigðismála á Íslandi þrátt fyrir að Íslendingum eldri en 15 hafi fjölgað um 40 þúsund á sama tíma. SKARPUR NIÐURSKURÐUR HJÁ LANDSPÍTALA Fé til Land- spítala nálgast það sem það var 2000 og ef fer sem horfir í niðurskurði til meðferðarmála gæti ástandið hjá Landspítalanum orðið skelfilegt. HEILDARÚTGJÖLD TIL HEILBRIGÐISMÁLA 140 160 100 120 60 80 20 40 0 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 FRAMLÖG TIL LSP 46000000 48000000 42000000 44000000 40000000 36000000 38000000 34000000 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 700000 800000 900000 500000 600000 300000 400000 100000 200000 0 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 MINNA FÉ EN ÁRIÐ 2000 Þrátt fyrir að Íslendingum hafi verulega fjölgað og sjúklingahópurinn sé að mörgu leiti veikari og þurfi meiri meðferð er haldið áfram að skera niður til meðferðarmála. „Á sama tíma og meðalneysla ein- staklinga á áfengi og vímuefnum hef- ur vaxið, íbúum fjölgað og vandamál tengd áfengisneyslu aukist, hefur hið opinbera dregið úr framlögum sínum til SÁÁ,“ útskýrir Þórarinn Tyrfings- son, framkvæmdastjóri SÁÁ og yfir- læknir á Vogi. Tímarnir framundan eru skelfi- legir ef ekki næst að auka skilning stjórnvalda á mikilvægi starfseminn- ar. Þeir sem leita sér hjálpar vegna áfengis- og vímuefnafíknar verða sí- fellt yngri. Hörðu efnin eru að ná enn fastari fótfestu, sprautusjúklingum fjölgar og sá skaði sem áfengis- og vímuefnasjúklingar valda sjálfum sér og samfélaginu verður meiri. Samtökin á krossgötum „Eftir að ríkið hætti að fjármagna ófaglegar meðferðir ævintýramanna hefur þeim fjármunum ekki verið ráð- stafað á skárri staði,“ segir Þórarinn en skemmst er að minnast Byrgisins í því samhengi. Fyrir rúmum þrjátíu árum kom hugsjónafólk á Íslandi af stað fjölda- hreyfingu til baráttu gegn áfengisböl- inu. Hreyfingin varð fljótt að öfluðu almannafélagi og í dag hafa ólögleg vímuefni sett mark sitt á samtökin og meðferðarstarf SÁÁ. Á skömmum tíma tókst að gjörbreyta viðhorfi al- mennings og stjórnvalda til áfengis- og vímuefnasjúklinga og bæta hag þeirra. Nú er komið að öðrum kafla í þeirri barráttu því SÁÁ standa á kross- götum vegna fjárskorts. „Rekstur SÁÁ er óráðinn og svo gæti farið að Ísland færist rúm 30 ár aftur í tímann,“ segir Þórarinn en í þá daga var um helmingur þeirra sem innrituðust á geðdeildir áfengissjúk- lingar. 47 dóu í fyrra Áfengis- og vímuefnaneysla er al- gengasti áhættuþátturinn fyrir glöt- uð góð æviár á Íslandi. Í fyrra dóu 47 manns á Íslandi ótímabærum dauða vegna sjúkdómsins. Í ljósi þess er furðulegt hversu litlum tíma og fjár- munum er eytt til beinna forvarna og meðferðar gegn vímuefnavand- anum. Vandamál áfengis- og vímuefna- neyslu einskorðast ekki bara við sjúk- linga með heilasjúkdóminn fíkn. Fólk sem notar þessi efni lendir beinlínis í slysum vegna neyslunnar þótt ekki sé um fíkla að ræða. Algengasta dánar- orsök þeirra sem eru yngri en 25 ára er áfengisneysla beint eða óbeint. Í þessu samhengi valda löglegu vímu- efnin tóbak og áfengi langmestum skaða þó að ólögleg vímuefni og ávanalyf valdi líka miklum líkamleg- um skaða og þjóðfélagsvanda. Fíknisjúkdómar valda víðtæku heilsutjóni og dauða. Áfengis- og vímuefnafíklar slasast oft, fremja sjálfsvíg, nota óhreinar sprautur og verða fyrir ofbeldi. Sjúklingarnir valda öðrum heilsutjóni með ofbeldi, ölvunarakstri og óbeinum reykingum svo dæmi séu tekin. Vandamálið er stórt og ósýnilegi kostnaður samfélagsins gríðarlegur. Fíknisjúkdómar eru heilasjúkdómur og samkvæmt viðurkenndum banda- rískum rannsóknum kosta þeir sam- félagið jafn mikið heilasjúkdómarnir geðklofi, altzheimers og heilablóðföll samanlagt. Er stríðið að tapast? Í ljósi niðurskurðar stjórnvalda má lít- ið út af bera á stofnunum SÁÁ. Með- ferðarstarf á Íslandi er að færast aftur um áratugi og samkvæmt tölum frá OECD eru stjórnvöld búinn að koma Íslandi á tossalista hvað meðferðar- mál varðar. „Er það álitleg framtíðarsýn að alkóhólistar eigi ekki í önnur hús að vernda en geðsjúkdómasvið Land- spítalans, sem einnig glímir við stjór- nlausan niðurskurð?“ spyr Þórar- inn sem segir að vandamálið í dag sé einnig að erfiðara sé að fanga athygli stjórnvalda sem gefa hryllilegri stöðu í meðferðarmálum ekki gaum. -MT FRAMLÖG TIL SJÚKRAREKSTURS SÁÁ Á milli fimmtán og tuttugu prósent Íslendinga eru alkóhólistar: 3 AF HVERJUM 20 UNGLINGUM MUNU FARA Á VOG Íslendingum fjölgar stöðugt á sama tíma og fjárframlög til SÁÁ minnka og sókn í þjónustuna sem samtökin veita eykst. Gagnagrunnur Vogs er einstakur og samkvæmt honum eru um 15-20% líkur á áfengis- og/eða vímuefnasjúkdómum. Viður- kenndar erlendar rannsóknir staðfesta þetta. Ef nýgengistölur frá Vogi eru skoðaðar nánar kemur í ljóst að líkurnar á því að einstaklingur á Íslandi leiti til sjúkrahússins eru um 15,6% sem merkir að 3 af hverjum 20 Íslendingum munu fara á Vog einhvern tíma á lífsleiðinni. Að sjálfsögðu eru líkurnar mismunandi eftir aldri og kyni en samkvæmt niðurstöðunum eru 18,6% líkur á því að karlmaður, sem nú er 15 ára, leiti sér meðferðar vegna áfengissýki eða ann- arrar vímuefnaneyslu. Þegar konur eiga í hlut eru líkurnar 9,6% að þær innritist á Vog. Sjúklingahópur SÁÁ hefur breyst mikið frá upphafi og sífellt fleiri stórneytendur á önnur vímuefni en áfengi koma á sjúkra- húsið. Samt minnkar áfengisdrykkja ekki en þróaðri ólöglegur vímuefnamarkaður hefur sett mark sitt á starf SÁÁ og íslenskt samfélag. FJÖLDI ÍSLENDINGA 15 ÁRA OG ELDRI 250.000,00 260.000,00 230 000 00 240.000,00 220.000,00 . , 200.000,00 210.000,00 190.000,00 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 ÍSLENDINGUM FJÖLGAR Á sama tíma og stjórnvöld skera niður fé til SÁÁ fjölgar þeim sem þurfa á þjónustunni að halda. HELMINGUR SJÚKLINGA Á BÓTUM Starfsemi SÁÁ stendur á tímamótum. Samtökin fá nú hlutfallslega minna fé til áfengis- og vímuefnameðferðar en árið 2000 en vandamálin eru meiri og erfiðari viðfangs. „Einstaklingum yfir 25 ára hefur fjölgað um 40 þúsund síðan 2000,” segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, sem tekur á móti yngra fólki en áður og mun fleiri sjúklingar sem koma á Vog eru félagslega óvirkir vegna geð- eða hegðunarvandamála. Frá 1990 hefur sjúklingahópurinn á Vogi breyst mjög mikið. Það ár voru til dæmis einungis 2% sjúklinga á örorkubótum en þeir eru nú 25%. Í heildina eru 55% sjúklinga á Vogi annað hvort atvinnulausir eða á örorkubótum. Á SAMA TÍMA OG MEÐALNEYSLA EINSTAKLINGA Á ÁFENGI OG VÍMUEFNUM HEFUR VAXIÐ, ÍBÚUM FJÖLGAÐ OG VANDAMÁL TENGD ÁFENGISNEYSLU AUKIST, HEFUR HIÐ OPINBERA DREGIÐ ÚR FRAMLÖGUM SÍNUM TIL SÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.