Fréttablaðið - 19.05.2011, Page 41
09maí 2011
ur og ólatur við að elda fyrir vini og
kunningja.
„Ég elska fjölskylduna mína og
hef aftur náð að tengja við mömmu,
fósturpabba og bræður mína yndis-
legu,“ segir Marteinn aðspurður um
hvað gefi lífinu gildi. „Ég hef líka
gaman af því að veiða og hlakka til að
fara seint í sumar, norður í Kolku og
Hjaltadalsá að veiða sjóbirting með
fjölskyldunni. Eva gaf mér píanó sem
ég stefni á að læra einhvern tíma að
spila á, svona þegar ég kemst yfir Pla-
ystation fíknina.“
Hann drakk bara mikið
Lífið hefur verið mikið ferðalag hjá
Marteini Þórssyni. Hann byrjaði
sjálfur að drekka sextán ára og fannst
það ekki gott þótt hann hafi fljótlega
komist upp á lagið með það.
„Fyrsta alvöru fylleríið mitt var á
árshátíð Lúðrasveitar Verkalýðsins
og þau urðu ansi mörg áður en yfir
lauk. Áfengi var geðlyf fyrir mér, ég
öðlaðist frið við að drekka, losnaði
við minnimáttarkennd, þunglyndi
og feimni. Ég lærði að elska Bakkus
meira en allt annað en ég bar þetta
ágætlega (þrátt fyrir mörg slæm fyll-
erí) þangað til uppúr þrítugu. Ég fékk
hreinlega nóg og ég var orðinn mjög
mjög slæmur undir það síðasta og
bara gafst upp, en það tók nokkrar
tilraunir eins og ég hef sagt þér. Tvö
föll og ég vona innilega að ég falli
aldrei aftur. Ég er ekki búinn að vera
edrú nema í tæplega 2 ár.“
Það þyrfti fleiri síður til að fara
yfir feril Marteins. Hann menntaði
sig í Ryerson University og starf-
aði lengi í Kanada eins og fyrr seg-
ir. Hann vann einnig við gerð Sigla
himinfley eitt sumarið og átti við-
komu í gamla góða Dagsljósi Sjón-
varpsins og framleiddi og þróaði
fréttaskýringarþáttinn Kompás með
Jóhannesi Kr. Kristjánssyni, en þeir
félagar hlutu Edduna fyrir þáttinn
árið 2006.
Honum er minnistætt að hafa
látið blóðföður sinn gera sig gjald
þrota sumarið 1993. Karlinn var
nýbúinn að kaupa Kjörbúð Pétu
horni Laugavegs og Skólavörðust
(þar sem nú er pöbbinn Kofi Tó
asar frænda).
„Ég hafði ekki hugmynd um að
pabbi væri alkóhólisti á þessum
tíma. Hann drakk bara mikið,“ segir
Marteinn án nokkurrar beiskju.
Fræðsla um alkóhólisma
Sjálfur vissi Marteinn lengi ekki hvað
það var að vera alkóhólisti og honum
finnst skorta á fræðslu hvað varðar
ungt fólk og sjúkdóminn.
„Þetta er nefnilega sjúkdómur,”
segir Marteinn og mikilvægt að Ís-
lendingar geri sér grein fyrir því: „Al-
veg frá barnaskóla og upp úr. Enn
þann dag í dag laumumst við mik-
ið með þennan sjúkdóm, alkóhól-
isma.”
Marteini datt til dæmis ekki í hug
að hann væri alki af því að honum
gekk vel í skóla og vinnu og bara í líf-
inu almennt.
„Alkar voru í mínum huga fólk
sem var í ræsinu og/eða á geðdeild-
um. Þegar ég var í Kanada, þar sem
ég byrjaði að drekka daglega, þá
drakk ég bara eins og aðrir Kanada-
menn. Maður fór og fékk sér bjór
eftir vinnu, fékk áfengi í öllum partí-
um, enda snérust öll vinnupartí um
áfengi. Það var auðvitað fullt af ölk-
um í kring (þar á meðal ég) en þarna
var samt enginn einasti alkóhólisti.”
Þakklátur reynslunni
Margir alkóhólistar ná síðan aldrei að
kynnast batanum frá sjúkdómnum.
Pabbi Marteins var drykkjumaður
þar til hann lést fyrir rúmum tveimur
árum. Hann fór þó á Silungapoll í af-
vötnun nokkrum sinnum.
„Hann fann aldrei friðinn sem
fylgir sannri edrúmennsku en hann
hef ég fundið. Ég elska að vera edrú,
ég elska að finna hjartað slá í takt við
lífið sjálft. Það gerist eitthvað stór-
kostlegt þegar maður losnar við böl-
ið, því þetta er böl fyrir alkóhólista.
Við erum öðruvísi en annað fólk. Í
dag finnst mér gaman að vera alkó-
hólisti og mér finnst gaman að taka
þátt í starfi SÁÁ og tólf spora sam-
tökum almennt. Ég hefði ekki vilj-
að missa af þessu. Þetta er alveg
stórkostlegt líf ef maður losnar við
áfengið. Ég get ekki þakkað nógu oft
né nógu mikið fyrir SÁÁ og það starf
sem er unnið á Vogi. Það bjargaði lífi
mínu.“
Þú saknar ekki Bakkusar?
„Nei. En ég er þakklátur fyrir
reynsluna sem Bakkus fylgdi. Í mínu
starfi er það eitthvað sem nýtist
óendanlega,“ segir Marteinn og bætir
því við að lokum að maður verði svo
að geta horft kómískum augum á líf-
ið: „Þau eru svo mörg höggin en þau
mýkjast ef maður getur brosað að því
hvað þetta er allt saman skrýtið.”
MT
-
þá
rs á
ígs
m-
-
NDINA ROKLAND VIÐ GÓÐAR VIÐTÖKUR OG HANN ER MEÐ MÖRG JÁRN Í ELDINUM ENDA MIKLU ORKUMEIRI EN HANN HEFUR VERIÐ ÁRUM SAMAN.
VOGUR ER
DÁSAMLEGASTA
STOFNUN SEM
HÆGT ER AÐ
HUGSA SÉR.
LITLI KÚTUR Marteinn
ólst upp í Mosfellsbæ og hér
er hann sakleysið uppmálað.
ÁSTRÍÐAN Marteinn og vinur hans Jeff (með
skeggið) við tökur á One Point O en hún fór alla leið
í aðalkeppni Sundance kvikmyndhátíðarinnar.
Á GLÖÐUM DEGI Það er auðvitað allt annað líf að
vera án áfengis. Hér eru bræðurnir Matti, Jói og Palli
að syngja fyrir mömmu, Guðrúnu Sigursteinsdóttur.
ROKLAND
Bíómyndin fékk
góðar viðtökur.