Fréttablaðið - 19.05.2011, Síða 64

Fréttablaðið - 19.05.2011, Síða 64
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR40 folk@frettabladid.is Hasarleikritið Tortím- andi fjallar um sjálfsmynd karla. Verkið er lokaverk- efni Dóra DNA úr LHÍ og hann lofar miklum hasar. „Tíðarandinn er að breytast og sýningin er uppgjör okkar við karl- mennskuna og feðraveldið sem ól okkur upp,“ segir Halldór Hall- dórsson, Dóri DNA, útskriftar- nemi úr fræðum og framkvæmd í Listaháskóla Íslands. Lokaverkefni Dóra, Tortímandi, verður frumsýnt í Kúlu Þjóðleik- hússins á sunnudaginn. Snorri Engilbertsson og Hjörtur Jóhann Jónsson fara með aðalhlutverk í sýningunni, en þeir eru með Dóra í sviðslistahópnum Cobra Kai, sem dregur nafn sitt af slæmu strákun- um í kvikmyndinni Karate Kid. Þá fer grínistinn Steindi Jr. með lítið hlutverk. „Ég mátti ekki blaðra þessu, en hann er að stíga hænu- skref á leiksviðið í sýningunni,“ segir Dóri, sem lofar miklum hasar. „Við erum með rosalegasta bardagaatriði í sögu sviðslistar á Íslandi.“ Cobra Kai-hópurinn vinnur með form sem hann kallar hasarleik- hús. „Við drögum spennumyndir inn í leikhúsformið,“ útskýrir Dóri. „Núna völdum við okkur Termin- ator 2 til að sviðsetja. Svo fáum við margt að láni annars staðar frá, þó að þetta sé algjörlega frumsamið efni.“ Tortímandi fjallar um sjálfs- mynd karla, sem má rekja til spennumynda sem Dóri og félagar í Cobra Kai ólust upp við. „Við erum strákar sem ólust upp við Rambo, Terminator og massaðar hasarfíg- úrur,“ segir Dóri. „Við ákváðum að nota það sem efnivið í sýninguna. Karlmennska í dag er tómt hugtak sem stendur ekki fyrir neitt leng- ur. Það er bara hallærislegt í dag ef einhver er talinn karlmannlegur.“ Dóri segist líta á hasarhetjur níunda áratugarins sem síðustu móhíkanana. „Karlmennska í dag er farin að snúast um mann sem skilar skattskýrslunni á réttum tíma og sækir börnin sín í skól- ann tíu mínútum fyrr,“ segir hann ákveðinn. „Eins og segir í sýning- unni, þá er fólki drullusama um hvað þú ert laghentur því það getur fengið ódýrari Pólverja.“ Ekkert kostar inn á sýninguna og miðasala fer fram í síma 552 5020 og í gegnum netfangið leiklist@lhi. is. atlifannar@frettabladid.is Rosalegt bardagaatriði í Tortímanda Benedikt Brynleifsson úr Vinum Sjonna sat í hnakki þegar hann flutti lagið Coming Home í úrslitum Eurovision í Þýskalandi. „Þetta átti að vera tenging- in við hestamennskuna sem var áhugamál Sjonna og tenging í myndbandið sem var gert í hlöðu,“ segir Benedikt. Þórunn Erna Clausen, ekkja Sjonna, fékk hnakk- inn lánaðan heima á Íslandi og hópurinn flaug svo með hann út. „Það kom á óvart hvað þetta var þægi- legt,“ segir Benedikt spurður hvernig það hafi verið að sitja í hnakkinum. „Ég hélt að þetta yrði óþægi- legt og að hann væri valtur en hann haggaðist ekki.“ Benedikt var líkt við Ryan Giggs úr Manchester United meðan á keppninni stóð og var það ekki í fyrsta sinn sem honum er líkt við fótboltakappann. Sjálfur fylgist hann ekkert með fótbolta. „Tengda- fjölskyldan mín er United-fólk þannig að ég skal bara halda með þeim,“ segir Benedikt og hlær. Þetta var í annað sinn sem hann tekur þátt í úrslitum Eurovision því hann fór til Serbíu með Eurobandinu árið 2008. Þá fór hann ekki upp á svið líkt og á laugardaginn. „Núna var ég í fyrsta skipti að syngja á sviði. Auðvitað var það mikil áskorun fyrir mig, með þessa frábæru söngvara í kringum mig að standa sig.“ Hnakkurinn haggaðist ekki SAT Í HNAKKI Í EUROVISION Benedikt Brynleifsson sat í hnakki þegar hann trommaði með Vinum Sjonna í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HASAR Dóri miðar byssu á skelfingu lostinn Snorra Engilbertsson í sýningunni Tortímandi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Söngkonan Cheryl Cole hefur neitað að hafa látið stækka á sér brjóstin, eftir að orðrómur þess efnis fór af stað. Barmur Cole þótti breyttur þar sem hún sást skokka í Los Ang- eles á dögunum og í kjölfarið birtu nokkrir fjölmiðlar vangaveltur um meinta brjóstastækkun hennar. Talsmaður Cole sendi út yfirlýsingu fyrir henn- ar hönd í gær þar sem fram kom að hún hefði aldrei farið í brjóstastækkun og að slík aðgerð væri ekki á stefnu- skránni. Brjóstin eru raunveruleg Þegar leikarinn Brad Pitt var lítill drengur vildi hann eignast stóra fjölskyldu þegar hann yrði eldri. „Vinur minn átti stóra fjölskyldu þegar ég var lítill. Ég hafði gaman af látunum í kringum morgun- verðarborðið, öllum slagsmálunum og þegar mamman eða pabbinn bökuðu pönnukökur handa öllum,“ sagði Pitt. „Ég ákvað þá að ef ég eignaðist fjölskyldu sjálfur myndi ég fara þessa leið.“ Pitt, sem er 47 ára, á nú sex börn með leikkon- unni Angelinu Jolie, þau Maddox, Zahöru, Shiloh, Pax og tvíburana Knox og Vivienne. „Ég veit að þetta virkar öfgafullt út á við en ég hef alltaf verið svona. Þegar ég er viss um hlutina er ég bara viss. Af hverju að bíða?“ Hann vonast einnig til að leika aftur á móti Jolie í kvikmynd en síðast léku þau saman í grínhas- arnum Mr. and Mrs. Smith. Ástæðan er sú að þá geta þau eytt meiri tíma saman með börnunum sínum. Vildi stóra fjölskyldu VILDI FJÖL- SKYLDU Leikarinn Brad Pitt ásamt Angelinu Jolie og Maddox. NÁTTÚRULEG Fegurð Cheryl Cole er nátt- úruleg, ef marka á yfirlýsingu hennar. 5. SCREAM -myndin verður framleidd, samkvæmt nýjustu fréttum. Fjórða myndin var frumsýnd á dögunum og hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel í Bandaríkjunum, en nógu vel á heimsvísu til að fimmta myndin verði framleidd. FÍFA (Húsgagnahöllinni) – Sími 552 2522 – www.fifa.isOpið: Mán. - Fös: 10-18 Lau.: 10-17 - Sun.: 13-17 Allt fyrir börnin FIMMTUDAG – MÁNUDAGS VORSPRENGJA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.