Fréttablaðið - 19.05.2011, Page 78

Fréttablaðið - 19.05.2011, Page 78
19. maí 2011 FIMMTUDAGUR54 „Ég hef alltaf séð eftir því að hafa ekki lært íslensku þegar ég var lít- ill en ég ætla mér að læra tungu- málið í framtíðinni,“ segir Fredrik Kristján Jónsson Ferrier, hálfís- lensk fyrirsæta sem er að slá í gegn í raunveruleikaþættinum Made in Chelsea í Bretlandi. Þættirnir Made in Chelsea fjalla um líf þrettán ungmenna frá einu af fínni hverfum Lund- únaborgar, nánar tiltekið Chelsea. Samkvæmt lýsingum á þáttaröð- inni á heimasíðu stöðvarinnar E4 eiga þættirnir að varpa ljósi á líf ungmenna þar sem hraðskreið- ir bílar, kampavín og sundlauga- partí eru hluti af hversdagsleik- anum. „Fyrst þvertók ég fyrir að vera með, þar sem raunveruleika- þættir hafa frekar neikvætt orð á sér hér í Bretlandi. Svo lét ég til leiðast en einungis til að sýna fram á að þó að við búum í fínu hverfi þurfum við að takast á við sömu vandamálin og allir hinir. Þátturinn er fullur af drama- tík og innbyrðisdeilum. Eins og raunveruleg útgáfa af Gossip Girl sjónvarpsþáttunum,“ segir Fredrik en um leið og fyrsti þátt- urinn fór í loftið í byrjun maí varð hann umtalaðasti þáttur í heimi á Twitter-samskiptasíðunni. „Ég fór út að skemmta mér um síðustu helgi og endaði með að gera ekkert annað en skrifa eigin- handaráritanir og láta taka af mér myndir allt kvöldið. Mjög furðu- legt en ég nýt þess í botn,“ segir Fredrik, sem ætlar að reyna að draga tökuliðið með sér til Íslands næsta haust þegar upptökur hefj- ast á annarri þáttaröð Made in Chelsea. Faðir Fredriks, Jón Arnór Ferr- ier, er íslenskur en móðir hans er ensk. Systir hans býr hér á landi og sjálfur segist Fredrik reyna að koma til Íslands einu sinni á ári. „Það er alltaf verið að kalla mig íslenskan víking og ég er mjög ánægður með það. Ég held sam- bandi við ömmu og afa á Íslandi og á stóra fjölskyldu en við eydd- um miklum tíma þar þegar ég var barn.“ Fredrik, sem er 22 ára gamall, er í tónlistar- og tungumálanámi við Bristol-háskóla ásamt því að vinna fyrir sér sem fyr- irsæta. „Ég hef starfað í New York og Mílanó nokk- ur sumur í röð og finnst gaman að vera fyrir framan myndavélina en námið á samt hug minn allan núna,“ segir Fredrik, sem spilar á fiðlu og gítar ásamt því að tala spænsku og arabísku. „Ég er mjög stoltur af því að vera íslensk- ur og kynni mig allt- af sem hálfan Íslend- ing, enda skapar það sérstöðu og vekur áhuga fólks á mér,“ segir Fredrik en hann ætlar í sumar til Ísafjarðar, sem er hans uppáhaldsstaður á Íslandi. alfrun@frettabladid.is SJÓNVARPSÞÁTTURINN „Það eru klárlega fótboltaþætt- irnir Sunnudagsmessan og Pepsi-mörkin enda elska ég að horfa á sjálfan mig tala um fótbolta.“ Hjörvar Hafliðason knattspyrnusér- fræðingur Myndir eftir áhugaljósmyndarann Skarphéðin Þráins- son af eldgosunum á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjalla- fjökli hafa verið birtar víða í breskum dagblöðum síð- ustu daga. Blöðin The Guardian, The Independent, Daily Mirror, Daily Express og Daily Telegraph hafa öll birt stórar myndir af eldgosunum í blöðum sínum, Skarphéðni til mikillar ánægju. „Ég gerði samning við fréttaþjónustu í Bretlandi og lét hana hafa myndir og upplýsingar um eldgosin. Þeir höfðu samband um síðustu helgi og síðan hefur þetta farið eins og eldur í sinu um blöðin í Bretlandi,“ segir Skarphéðinn, sem starfar sem véltæknifræð- ingur. Áður hafði hann sett myndir sínar á ljósmynda- síðuna 1x.com og vöktu þær athygli fréttaþjónust- unnar. Myndir Skarphéðins hafa einnig verið birtar í bandaríska blaðinu USA Today og í þýskum og nor- rænum blöðum, auk þess sem stór eldgossmynd hans var keypt af skrifstofu EFTA í Brussel. Ljósmyndadella Skarphéðins hófst af fullum krafti fyrir fjórum árum þegar hann keypti sér sína fyrstu alvöru myndavél. Síðan þá hefur hann verið duglegur við að mynda, sérstaklega í kringum eldgosin þegar hann fór meðal annars upp í þyrlu og myndaði. Spurður hvort hann fái ekki mikið borgað fyrir myndirnar segist hann fá aðeins upp í bensínkostnað og tækjakaup. Annars sé þetta fyrst og fremst gert ánægjunnar vegna. Skarphéðinn vonast til að mynda eldfjöll á Havaí í framtíðinni en hefur ekki ákveðið hvenær af því verður. - fb Áhugaljósmyndari hittir í mark VINSÆLAR MYNDIR Myndir Skarphéðins Þráinssonar hafa vakið mikla athygli í Bretlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Þetta kom okkur skemmtilega á óvart,“ segir tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sigmundsson. Hann og Jóhann Helgason, sem skipa dúettinn Magnús og Jóhann, hita upp fyrir bandarísku hljómsveitina Eagles í Nýju Laug- ardalshöllinni 9. júní. „Það voru sendar út upptökur af íslenskum hljómsveitum og þeir völdu Magnús og Jóhann, okkur næstum því til undrunar því það er mikið af frambærilegu fólki hérna heima,“ segir Magn- ús Þór. Hann hefur lengi verið aðdáandi Eagles. „Ég man eftir því að einhvern tímann fór ég til New York til að kynna mig og Jóhann. Ég fór og talaði við Merc- ury Records og fleiri útgefendur og spilaði fyrir þá Mary Jane. Þeir voru mjög hrifnir en á einum staðnum man ég eftir því að einn starfsmaður sagði við mig: „Jú, þetta hljómar mjög vel en það sem við erum að leita að er eitt- hvað svona.“ Þá „blastaði“ hann á mig Take It Easy með Eagles,“ segir Magnús Þór. Jóhann Helgason er að vonum spenntur fyrir tónleikunum. „Eagles hefur trónað á topp tíu hjá mér. Þetta eru frábærir lagasmiðir, söngvarar og hljóð- færaleikarar,“ segir hann og viðurkennir að raddanir hljóm- sveitarinnar hafi haft áhrif á lagasmíðar hans og Magnúsar. Ísleifur B. Þórhallsson tón- leikahaldari upplýsir að enn séu eftir 200 miðar á A-svæði. „Þetta er tilkomið af því að það voru ósóttar pantanir sem við getum sett í sölu og við munum tilkynna það innan nokkurra daga hvernig þessu verður hagað.“ - fb Magnús og Jóhann hita upp fyrir Eagles ÓVÆNT ÁNÆGJA Magnús og Jóhann hita upp fyrir Eagles í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FREDRIK KRISTJÁN JÓNSSON FERRIER: NÝT ÞESS Í BOTN Íslenskur strákur stjarna í breskum sjónvarpsþætti NÝTUR FRÆGÐAR- INNAR Hinn hálfíslenski Fredrik Kristján Jónsson Ferrier er ein af stjörnum raunveruleikaþátt- arins Made in Chelsea í Bretlandi. Fredrik gerir mikið úr íslenskum uppruna sínum, sem hann segir að veki mikla athygli. Sun 29.5. Kl. 20:00 Allir synir mínir (Stóra sviðið) Mið 18.5. Kl. 20:00 Síð. sýn. Sun 5.6. Kl. 20:00 Aukasýn. Lau 11.6. Kl. 20:00 Aukasýn. Sun 22.5. Kl. 14:00 Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Bjart með köflum (Stóra sviðið) Fim 19.5. Kl. 20:00 Fös 3.6. Kl. 20:00 Lau 4.6. Kl. 20:00 Fim 9.6. Kl. 20:00 Fös 10.6. Kl. 20:00U Ö Ö Ö Brák (Kúlan) Fös 3.6. Kl. 20:00 Aukasýn. Fös 20.5. Kl. 22:00 Lau 21.5. Kl. 22:00 Fös 3.6. Kl. 19:00 Lau 4.6. Kl. 20:00 Verði þér að góðu (Kassinn) Ö Ö Haze (Stóra sviðið) Fim 2.6. Kl. 20:00 Við sáum skrímsli (Stóra sviðið) Fös 20.5. Kl. 19:00 Lau 21.5. Kl. 20:00 Big Wheel Café (Stóra sviðið) Subtales – Söngur millistéttarinnar (Kassinn) Þri 24.5. Kl. 18:00 Ö Góði dátinn Svejk (Stóra sviðið) Fim 26.5. Kl. 20:00 Fös 27.5. Kl. 20:00 „Þessi leiksýning hefur allt sem þarf til að skapa vel heppnað og eftirminnilegt leikverk.“ I.Þ., Mbl. „Critics choice“ Time Out, London Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX AUKASÝNINGAR FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRA AF LANDSBYGGÐINNI Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.