Fréttablaðið - 21.05.2011, Blaðsíða 18
18 21. maí 2011 LAUGARDAGUR
Ritstjóri Fréttablaðsins stökk til varnar kvótakerfinu í leið-
ara og vék að ummælum mínum
um mikilvægi öflugrar sam-
keppni í öllum atvinnugreinum
í þeim tilgangi. Það var gamal-
kunnugt og nánast ósjálfrátt við-
bragð til varnar útgerðinni, en
spyrja má hvort besta vörnin sé
sú sem veitt er af gömlum vana.
Íslenskt atvinnulíf einkennist
af fákeppni á fjölmörgum mörk-
uðum. Saga okkar sýnir hvernig
allt hefur lagst á eitt: Landfræði-
leg einangrun, smæð hagkerfis-
ins, tengsl ráðandi flokka við
fyrirferðarmestu aðila í atvinnu-
lífi, sveiflukennt efnahagslíf og
smæð heimamarkaðar.
Með EES-samningnum náðum
við þeim árangri að brjóta skörð
í varnarvegg um kyrrstöðu í
atvinnulífinu. Heimamarkaður-
inn stækkaði gríðarlega og nýjar
samkeppnisreglur tóku gildi, sem
takmörkuðu kúgunarvald ráð-
andi aðila á markaði. Umræðan
um samkeppnishæfni íslensks
atvinnulífs verður að taka mið af
þessum staðreyndum, en ekki að
lokast inni í slagorðum og frös-
um, eins og gætir í fyrrnefndum
leiðara.
Í tilvitnuðu viðtali í Mark-
aðnum nefndi ég að brjóta þurfi
niður alla múra forréttinda og
sérréttinda í einstökum atvinnu-
greinum og hvetja til nýliðun-
ar og nýsköpunar. Það á við um
allar atvinnugreinar hér á landi
– allar og alltaf. Í fámenninu er
auðvelt að velja sér vini og verja
til dæmis með kjafti og klóm
fákeppni á kostnað neytenda í
mjólkuriðnaði – eins og sjálfstæð-
ismenn gera af mikilli hugsjóna-
gleði – eða telja einhverja aðra
atvinnugrein svo sérstaka að rétt
sé að gera henni sérstaklega hátt
undir höfði og undanskilja hana
almennum leikreglum að ein-
hverju leyti. Almennu reglurnar
eigi vissulega að gilda – bara ekki
núna og ekki um þessa atvinnu-
grein. Þetta er leið fortíðarinnar
– leiðin til samfélags fákeppni og
einhæfra atvinnuhátta.
Grundvallaratriðin eru þau að
útgerðin greiði í sjóð Íslendinga
endurgjald fyrir afnot af auð-
lindinni sem endurspegli eðli-
lega auðlindarentu og að nýliðun
sé möguleg í þessari grein sem
öðrum.
Greinin verður áfram að vera
samkeppnishæf og arðsöm. Nú
ætla ég mér ekki þá dul að halda
því fram að allt sem í nýjum
frumvörpum er að finna sé full-
komin snilld og vafalaust má
sníða agnúa af þeim frumvörp-
um í þinginu. Til þess er líka
gefinn tími. Aðalatriðið er að
ekki má nálgast málið út frá því
sjónarmiði að breytingar í þágu
almannahagsmuna séu óásættan-
legar út frá hagsmunum útgerð-
arinnar. Ef þetta tvennt rekst
á, verða almannahagsmunir að
ráða.
Barátta næstu ára snýst um
hvort íslenskt atvinnulíf verði
í raun alþjóðlega samkeppnis-
hæft atvinnulíf eða hvort hin
dauða hönd kolkrabba, flokks-
hesta og einkavina leggist á ný
yfir íslenskt atvinnulíf. Í þeirri
baráttu þurfa allir áhugamenn
um samkeppnishæft atvinnulíf
að standa saman.
Að styðja við
samkeppni í raun
Þann 31. mars sl. var haldinn fundur í Garðabæ, þar sem
fyrsti áfangi að deiliskipulagi Arn-
arness var kynntur. Vil ég hér með
þakka það vandaða starf sem arki-
tektastofan Hornsteinar vinnur í
tengslum við þessa þróun. Fund-
urinn var áhugaverður, m.a. var
gaman að fá kynningu á hinum
ýmsu menningarverðmætum sem
eru á nesinu, hversu vel skipulagt
Arnarnes var á sínum tíma og
mikil vinna lögð í að skapa þessa
vel heppnuðu byggð.
Mesta athygli vakti þó umræða
um útivistarmál í Arnarnesi.
Garðbæingur steig á svið og studdi
þá hugmynd að leggja tvo stíga á
Arnarnesi til að beina umferð
fólks, hvort sem er hjólamanna
eða gangandi, frá umferðargöt-
um. Annar stígurinn yrði lagður
austan hljóðmanar við Hafnar-
fjarðarveg, einkum fyrir hraða
hjólaumferð. Hinn stígurinn yrði
strandstígur í kringum nesið.
Þessi stígur yrði mikil framför,
þar sem allir íbúar Garðabæjar
fengju jafnan aðgang að stórkost-
legu útsýni og náttúru á nesinu.
Nokkrir eldri Arnarnesbúar
hafa sagt möguleikana á því að sjá
fallegt sólarlagið nú enga þar sem
trén byrgja víða sýn. Þeir komast
ekki niður torfæran sjávarkamb-
inn og í fjöruna og má það sama
auðvitað segja um hreyfihamlaða.
Arnarnesbúi á fundinum lýsti því
yfir að hann vildi ekki hrófla við
neinu á Arnarnesinu, síst af öllu
opna fyrir verslun eða aðra þjón-
ustu á Arnarnesinu, þar sem Arn-
arnesbúar gætu sótt þá þjónustu
annars staðar í Garðabæinn.
Hér koma nokkrar spurningar
til íbúa Arnarness: Eiga nokkrar
sjávarlóðir í Garðabæ einkarétt
á útsýni yfir Arnarnesvoginn?
Þó að fullfrískt fólk geti klöngr-
ast niður í Arnarnesfjöru eins og
ástandið er nú, er þar víða erfitt
yfirferðar og útsýnispunktar eða
stikur sem eiga að þjóna sem ein-
hver millibilslausn koma engan
veginn í staðinn fyrir útsýnisstíg,
þar sem fólk getur valið sjálft
hvar það staldrar við.
Önnur spurning: Finnst Arn-
arnesbúum það sanngjarnt að
sækja alla þjónustu, hvort sem
er til verslunar, mennta, úti-
veru eða menningar, í aðra hluta
Garðabæjar og á sama tíma neita
öðrum Garðbæingum um að
njóta strandarinnar og útsýnis
þaðan í sínu eigin byggðarlagi?
Og í framhaldinu: Myndi það ekki
auðga Arnarnesið að fá til sín líf
frá öðrum hverfum bæjarins, líf
sem hefur auðgað önnur nes sem
hafa verið í svipaðri stöðu, s.s.
Kársnes.
Að lokum þetta: Á fundinum
steig fuglaáhugamaður á svið,
sem hefur auðgað fuglalíf í kring-
um sig í fjölda ára með fram-
kvæmdum við hús sitt, m.a. með
stórum krana í fuglslíki, og lýsti
yfir áhyggjum sínum yfir sam-
lífi fugla og manna yrði slíkur
stígur lagður. Þessi hugulsemi er
þó óþörf þar sem í næsta hverfi,
Sjálandinu, njóta íbúar hins fjöl-
breytta fuglalífs sem þar ríkir
með greiðum aðgangi strand-
stígsins sem þar er. Kannski er
mannlífið ekki síður mikilvægt
en fuglalíf ef út í það er farið. Á
fundinum kom fuglaáhugamað-
urinn jafnframt fram með niður-
stöður framhaldsrannsókna sinna
um að mun minna fuglalíf væri
í Kársnesi en í Arnarnesi. Gæti
ekki bara verið að fuglunum
þyki jafnvel ennþá betra að búa
í Garðabæ?
Arnarnes fyrir alla
Deiliskipulag
Jóhannes Kári
Kristinsson
íbúi í Garðabæ
Sjávarútvegur
Árni Páll
Árnason
efnahags- og
sjávarútvegsráðherra
Björgun ehf. til sölu
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hf., hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í Björgun ehf. Björgun rekur
sanddæluskip og búnað til að stunda verktöku, einkum hafnardýpkanir,
og er umfangsmikill efnissali til þeirra sem sinna mannvirkjagerð
á Íslandi.
og sýnt geta fram á fjárfestingargetu að upphæð 400 milljónum króna.
Skilyrði fyrir þátttöku í söluferlinu er að fjárfestar fylli út upplýsinga-
þau gögn ásamt frekari upplýsingum um söluferlið og félagið á vef
Landsbankans, www.landsbankinn.is.
Tímafrestur til að skila inn óskuldbindandi tilboðum rennur út
kl. 12:00, föstudaginn 3. júní 2011.
Þeim fjárfestum sem skila inn hagstæðustu tilboðunum að mati seljanda
verður boðin þátttaka í öðru stigi söluferlisins. Tímafrestur til að skila inn
skuldbindandi tilboðum rennur út kl. 12:00, miðvikudaginn 29. júní 2011.
Stefnt er að því að söluferlinu ljúki fyrir lok júlí 2011.
Um Björgun
Björgun var stofnað 11. febrúar árið 1952. Félagið er leiðandi framleiðandi
úr námum, bæði á hafsbotni með uppdælingu efnisins og á landi með
athafnasvæði félagsins við Sævarhöfða í Reykjavík.
Björgun hefur um árabil stundað verktöku af ýmsu tagi, svo sem hafnar-
dýpkun, uppdælingu á efni til landfyllinga og uppdælingu á efni til frekari
nýtingar á vegum annarra. Á síðari árum hefur Björgun staðið að landa-
þróunarverkefnum, bæði á eigin vegum og í samvinnu við aðra. Verkefnin
eiga það sammerkt að felast í uppbyggingu sjávarlóða á höfuðborgarsvæðinu.
Lagerhúsnæði til leigu.
Lagerhúsnæði er til leigu að Fosshálsi1, 110 Reykjavík og er til afhendingar
fljótlega.
Um er að ræða samtals 1.069,3 m2 að grunnfleti sem skiptast í 189,4 m2 kæli,
138,6 m2 frystigeymslu og 741,3 m2 vörulager.
Vörulagerinn inniheldur hillurekka fyrir 669 vörubretti.
Ein rafdrifin innkeyrsluhurð er inn á sameiginlegan gang og eru dyrnar 3,7 m á
hæð og 5,5 m á breidd. Frá þessum gangi eru dyr inn í kælinn sem eru 2,4 m
á breidd og 2,3 m á hæð og inn í vörulagerinn sem eru 1,8 m á breidd og 2,4
á hæð. Gengið er inn í frystinn úr kælinum í gegn um dyr sem eru 1,8 m
breidd og 2,1 m á hæð. Lofthæð í rýmunum þremur er 4,3 m.
Aðgangur er að salerni í sameign og að sameiginlegu mötuneyti. Næg
bifreiðastæði.
Nánari upplýsingar gefur Bjarni Stefánsson í síma 575-6000.