Fréttablaðið - 28.05.2011, Side 68
28. maí 2011 LAUGARDAGUR40
timamot@frettabladid.is
Merkisatburðir
Íþróttafélagið Fylkir var stofnað 28. maí árið 1967 í
Árbæjarhverfi. Bar félagið reyndar í upphafi heitið
Knattspyrnufélag Seláss og Árbæjar, KSÁ, en það
nafn var talið óheppilegt og var því breytt í Fylkir
eftir að félagsmenn kusu það fram yfir nafnið Elliði.
Framfarafélag Seláss og Árbæjar vann að stofnun
Fylkis sem íþróttaerindreki félagsins, Theódór
Óskarsson, gerði meðal annars í samvinnu við börn
og unglinga í hverfinu. Fyrsta æfing félagsins var
haldin undir leiðsögn Þórólfs Beck 11. júlí 1968 á
velli fyrir ofan Rofabæ. Sigurjón Ari Sigurjónsson,
formaður Framfarafélagsins, sagði í samtali við
Þjóðviljann tveimur dögum síðar að þetta væri
upphafið að íþróttastarfi í hverfinu. Sigurjón tók
fram að í Árbæjar- og Seláshverfið væru fluttir
fjögur þúsund íbúar og drengirnir ættu óhægt um
vik að stunda æfingar með sínum gömlu félögum.
Skipulagt starf félagsins fór hægt af stað. Félagið
tefldi í fyrsta sinn fram liði í meistaraflokki árið
1972 og endaði í öðru sæti í þriðju deild.
ÞETTA GERÐIST: 28. MAÍ 1967
Íþróttafélagið Fylkir var stofnað
Jónas Engilbertsson heldur upp á fjöru-
tíu ára starfsafmæli sitt hjá Strætó um
þessar mundir. Hann varð strætóbíl-
stjóri 1. júní 1971. „Ég byrjaði í sumar-
afleysingum á leið tíu í Árbæ. Það er
búið að vera sumar hjá mér síðan.“
Þegar Jónas byrjaði hét fyrir tækið
SVR og voru vagnarnir að sögn oft
smekkfullir. „Neðra Breiðholtið var
komið og Árbærinn. Það var rétt byrj-
að að keyra upp í Fell, sendur bíll þang-
að á klukkutíma fresti,“ segir Jónas en
borgin hefur stækkað mikið og vega-
lengdirnar orðnar mun lengri. „Þetta
voru miklu styttri vegalengdir og jafn-
vel var farið heim í mat í hádeginu.“
Jónas hefur keyrt flestar leiðir síðan
hann byrjaði. „Í dag eru menn enda-
laust að fara á milli leiða og vagna,“
segir Jónas og heldur áfram: „Þetta
var mjög stabílt þegar ég byrjaði. Þá
voru menn yfirleitt á sömu leiðinni og í
sama vagni. Strætóbílstjórar voru eins
og hálfgerður þjóðflokkur, kapteinar
með sitt kaskeiti og þeir áttu bílana
nánast,“ upplýsir Jónas og bætir við
að þegar bílarnir fóru á verkstæði
hafi bílstjórarnir fylgt með. „Þeir
héngu yfir verkstæðismönnunum og
fylgdust með. Ég var reyndar aldrei
svo slæmur. Ég spurði þá stundum af
hverju þeir færu ekki bara með vagn-
ana heim.“
En hvert er eftirminnilegasta atvik-
ið sem þú hefur upplifað? „Á árunum
1977 og fram yfir 80 var Hallærisplan-
ið samkomustaður unglinganna um
helgar. Þarna voru einhver hundruð
krakka sem tóku yfirleitt síðasta
strætó heim. Ég var þá á síðasta strætó
upp í Breiðholt sem var leið þrettán.
Vagnarnir voru alveg troðnir. Svo fóru
þeir að rústa vögnunum, rúður voru
brotnar, bjöllurnar voru rifnar niður
og sætunum var ýtt fram. Þetta gerð-
ist nokkur skipti,“ segir Jónas, sem gat
ekkert annað en haldið áfram. „Það
þýddi ekkert að bíða eftir lögreglu sem
kæmi eftir fimmtán eða tuttugu mín-
útur.“
Jónas hefur starfað með mörgum í
gegnum tíðina. „Sumir voru í lengri
tíma en aðrir bara rétt millilentu. Ég
er alltaf að hitta einhverja sem muna
eftir mér. Það líður yfir þá þegar ég
segi þeim að ég sé þarna enn þá.“
martaf@frettabladid.is
JÓNAS ENGILBERTSSON: HEFUR VERIÐ STRÆTÓBÍLSTJÓRI Í 40 ÁR
Voru kapteinar með kaskeiti
EKIÐ STRÆTÓ Í 40 ÁR Að sögn Jónasar voru strætóbílstjórar eins og hálfgerður þjóðflokkur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KYLIE MINOGUE söngkona er 43 ára
„Markmiðið með vinnu minni er að skemmta fólki og láta það líta út fyrir að vera auðvelt, svo
ég býst við að það séu þeir þættir sem fólk sér sjaldnast sem gera mig stoltasta.“
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi
Hilmar Ágústsson
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar mánudaginn
23. maí. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
föstudaginn 3. júní kl. 14.00.
Árný Friðgeirsdóttir
Ágúst Hilmarsson María Ketilsdóttir
Jóhanna Hilmarsdóttir Birkir Már Ólafsson
Hrönn Hilmarsdóttir Rafn Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir færum við
öllum þeim sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu og studdu okkur á
þessum erfiðu tímum við andlát og
útför elskulegs sonar okkar, bróður,
frænda og mágs
Eyþórs Stefánssonar
Stekkjargötu 3, Neskaupstað.
Guð blessi ykkur öll.
Hallbjörg Eyþórsdóttir Stefán Pálmason
Pálmi Þór Stefánsson Guðrún Björg Víkingsdóttir
Ingibjörg Stefánsdóttir Ólafur Sveinbjörnsson
og fjölskyldur
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna fráfalls Ásgeirs okkar.
Dr. Erlendur Ásgeir
Júlíusson
Studiegången 13, Gautaborg, Svíþjóð.
Guðrún Stephensen
Jökull Ásgeirsson
Júlíus Sigurðsson Jóhanna Ellý Sigurðardóttir
Hildur Júlíusdóttir
Júlíus Þór Júlíusson Íris Guðrún Ragnarsdóttir
Davíð Júlíusson Kristín Inga Guðmundsdóttir
Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com
GRANÍT OG LEGSTEINAR
Fallegir legsteinar
á einstöku verði
Frí
áletr
un
Gjótuhrauni 8, 220 H fnarfirði Sími 571 400 ranit@granit.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Ólöf Ragnhildur
Guðmundsdóttir
frá Streiti í Breiðdal, síðast til heimilis
á Hrafnistu í Reykjavík,
lést að kvöldi föstudagsins 20. maí síðastliðinn.
Útför hennar verður frá Árbæjarkirkju mánudaginn
30. maí n.k. og hefst athöfnin kl. 13. Aðstandendur
vilja færa starfsfólki deildar A3 á Hrafnistu í Reykjavík
þakkir fyrir alúð og góða umönnun.
Dagný Stefánsdóttir Magnús Jónsson
Unnþór Stefánsson Margrét Guðlaugsdóttir
Stefán Stefánsson
Gunnar Stefánsson Anna Þorgilsdóttir
Ása Björg Stefánsdóttir Þórður Jónsson
Jóhanna Ósk Breiðdal Jóhann Sævar Kjartansson
og fjölskyldur þeirra
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Lárus Árnason
frá Ási, Skagaströnd,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi laugardaginn
21. maí. Útförin fer fram frá Hólaneskirkju á Skagaströnd
mánudaginn 30. maí klukkan 13.00.
Sigurlaug Jónsdóttir
Kári Sigurbjörn Lárusson Kristín Sigurðardóttir
Guðrún Ásdís Lárusdóttir Ingimundur Bernharðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
640 Severínus verður páfi.
1118 Ísleifur Gissurarson bisk-
up deyr í Skálholti.
1357 Pétur fyrsti verður kon-
ungur Portúgals.
1871 Parísarkommúnan fell-
ur.
1971 Saltvíkurhátíðin hefst
en þar komu saman um
tíu þúsund unglingar og
skemmtu sér um hvíta-
sunnuna.
1982 Fimmtán pólskir flótta-
menn og átta börn
koma til Íslands. Helm-
ingur hópsins var farinn
ári síðar.
1983 Eldgos hefst í Gríms-
vötnum í Vatnajökli en
stendur stutt yfir. Nor-
ræn dagblöð létu í ljós
ótta um að Vatnajökull
myndi bráðna og suð-
austurhluti Íslands færi
í kaf.