Fréttablaðið - 28.05.2011, Síða 78

Fréttablaðið - 28.05.2011, Síða 78
28. maí 2011 LAUGARDAGUR50 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 28. maí 2011 ➜ Tónleikar 16.00 Drengjakór Reykjavíkur heldur vortónleika sína í dag kl. 16. Fjölbreytt efnisskrá. Aðgangseyrir er kr. 2.000. Frítt fyrir 12 ára og yngri. 16.00 Söngsveitin Fílharmónía held- ur tónleika í Skálholti í dag kl. 16. Aðrir tónleikar sveitarinnar fara fram í Áskirkju þriðjudaginn 31. maí kl. 20. Frítt er á tónleikana í Skálholti en aðgangseyrir kr. 1500 í Áskirkju. 22.00 Þungarokkssveitirnar Skálmöld, Atrium og Darknote spila á Sódóma í kvöld kl. 22. Aðgangseyrir er kr. 1.500. 22.00 Margrét Guðrúnardóttir og Bandið hans pabba halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da í kvöld kl. 22. Aðgangseyrir er kr. 1.500. ➜ Opnanir 14.00 Sýningarnar „Samruni” og „Leikur með línu” opna í Kaolin gallerý í dag kl. 14. Báðar standa þær til 14. júní. Opið er mánudaga til föstudaga frá kl. 11-18 og frá kl. 10-15 á laugardögum. 14.00 Í tilefni áttræðisafmælis Braga Ásgeirssonar, listmálara, opnar Gallerí Fold sýningu með verkum lista- mannsins. Sýningin opnar kl. 14 í dag. Sýningin stendur til 12. júní. 17.00 Claus Carstensen opnar sýningu sína í Kling & Bang gallerí í dag kl. 17. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar Reykja- víkur. Sýningarstjóri er Úlfur Grönvold. ➜ Myndlist 14.00 Sýningin „Never Ending Skaga” opnar í Mjólkurbúðinni og Boxi, sal Myndlistarfélagsins í dag kl. 14. Sýningin verður aðeins opin þessa einu helgi. Opið verður á milli kl. 14-17. ➜ Markaðir 11.30 Kór Kristskirkju í Landakoti heldur flóamarkað að Hávallagötu 16 í dag. Markaðurinn hefst kl. 11.30 og stendur til kl. 17, bæði laugardag og sunnudag. Allur ágóði rennur til starfsemi kórsins. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Sunnudagur 29. maí ➜ Tónleikar 14.00 Kammerklúbburinn heldur tón- leika í Gerðubergi í dag kl. 14. Kammer- klúbbinn skipa 20 ungir tónlistarmenn. Aðgangur er ókeypis. 16.00 Kvennakórinn Embla heldur tón leika í Fella- og Hólakirkju í dag kl. 16. Fjölbreytt efnisskrá. 20.00 Kvennakórinn Vox feminae heldur tónleika í Dómkirkjunni mánu- dagskvöldið 30. maí. Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 2.000. ➜ Opnanir 16.00 Ítalska félagið á Íslandi stend- ur fyrir hönnunar- og listasýningu í Saln um í Kópavogi. Sýningin opnar í dag kl. 16. Aðgangur ókeypis. ➜ Dansleikir 20.00 Dansleikur Félags eldri borg- ara í Reykjavík og nágrenni verður í kvöld frá kl. 20-23. Dansleikurinn verður að Stangarhyl 4. Danshljómsveitin Klassík leikur danslög við allra hæfi. ➜ Uppistand 20.00 Listahátíð Reykjavíkur býður til uppistands í Tjarnarbíó í kvöld kl. 20. Uppistandið verður í kringum Ís- lendingasögurnar. Fulltrúar Íslands eru Bergur Ebbi, Halldór Halldórsson og Ugla Egilsdóttir. Aðgangseyrir er kr. 1.500. ➜ Tónlist 16.00 Stórsveit Reykjavíkur heldur tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag kl. 16. Gestur verður bandaríski trompet- leikarinn, stjórnandinn, tónskálið og útsetjarinn Daniel Barry. Aðgangur ókeypis. ➜ Leiðsögn 15.00 Í tilefni aldarafmælis Barböru Árnason, opnaði yfirlitssýning með verkum hennar í apríl. Guðbjörg Kristjánsdóttir verður með leiðsögn um sýninguna í dag kl. 15. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Bækur ★★★ Kafbátakórinn Steinunn G. Helgadóttir Uppheimar Steinunn G. Helgadóttir hlaut ljóðstaf Jóns úr Vör 2011 fyrir ljóðið Kaf, en hafði fram til þess verið þekkt fyrir myndlist. Kaf- bátakórinn er hennar fyrsta ljóða- bók og það leynir sér ekki að hér fer skáld með myndræna sýn á veruleikann. Hér er málað með orðum, dregnar upp smámyndir af innri og ytri veruleika, augna- blikum og áratugum: Sjónhverfing Heitt myrkrið ilmar eins og appelsína. Indigóbláar vatnslitaæðar teikna götur og útlínur veggja, sem leysast upp og hverfa. Eins og títt er um fyrstu ljóða- bækur höfunda sem komnir eru af unglingsárum ber bókin þess nokkur merki að ljóðin eru ort á löngu tímabili og nokkurs ósam- ræmis gætir í gæðum þeirra. Þeim virðist þó ekki raðað í tíma- röð, sem kannski hefði verið betra upp á að lesandinn greindi betur þróun skáldsins og hvernig hún öðlast styrkari tök á forminu. Engum blöðum er þó um það að fletta að Steinunn er skáld sem á fullt erindi við lesendur. Hér er ort af næmni og tilfinningu um ástir, einmanaleika, sam- skiptaleysi og dauða, en einnig um fegurð, friðsæld og drauma, sem blómgast á meðan „hárið er þungt af sól“. (bls. 37) Kafbátar eru aftur og aftur notaðir sem myndlíkingar fyrir þær tilfinn- ingar sem undir liggja og grunn- tónn bókarinnar sá að yfirborð og undirdjúp mannshugans eigi harla fátt sameiginlegt. Tónlist er annað gegnumgangandi þema, litir sömuleiðis, og svo er vitnað í „þjóðskáldin“ á dálítið meinleg- an hátt: Íslands þúsund ár Eilíbbð Eilíbbð Declare independence! Eilíbbð Eilíbbð Ljóðin í Kafbátakórnum túlka jöfnum höndum horfinn heim úr þorpum liðinnar aldar og dægur- menningu nútímans. Vísanir í snyrtivörumerki, dægurlög, mann- réttindaforkólfa og skáld stað- setja ljóðin í tíma um leið og þær gefa þeim víðari skírskotun og vitna um það áreiti sem á mann- eskjunni skellur úr öllum áttum. Einmanaleikinn, sem gjarnan er tengdur skáldlegri vitund, vomir hér yfir og allt um kring en skapar ekki það myrkur sem oft vill taka völdin í slíkum ljóðum. Vonin er hér, þrátt fyrir allt, fegurð nátt- úru og mannlífs vegur upp sam- skiptaleysið og „Fjallkonan elsk- ar mig enn“. (bls. 25) Steinunn G. Helgadóttir á sterka innkomu á ljóðasviðið og það er tilhlökkun- arefni að eiga von á fleiri ljóðum frá henni. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Vel ort og myndræn ljóð sem draga upp sterkar myndir, en eru óþægilega misjöfn að gæðum. Tönnum læst í drauma Kvennakórinn Vox feminae hitar upp fyrir söngferð til Ítalíu um miðjan júní með tónleikum í Dómkirkjunni á mánudag. Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir og undirleikari Antonía Hevesi. „Yl og trú andar þú“ er yfirskrift tónleikanna og á efnisskrá er úrval trúarlegra verk eftir jafnt íslenska sem erlenda höfunda. Kórar Margrétar hafa ferðast víða um Evrópu og oftar en ekki hefur leiðin legið til Ítalíu, þar sem hún var við söngnám. Árið 2000 vann Vox feminae til silfurverðlauna í alþjóðlegri kórakeppni sem haldin er á vegum Vatíkansins og tileinkuð tónskáldinu Palestrina. Verkin sem nú verða flutt í Dómkirkjunni eru þau sem hljóma munu í kirkjum og tónleikasölum Verona, Piacenza og Feneyja. Vox feminae mun syngja við messu í Markúsarkirkjunni og koma fram á tónleikum og fjölda annarra tilefna. Tónleikarnir á mánudag hefjast kl. 20, miðasala er við inngang- inn og miðaverð er 2.000 krónur. Vox feminae til Ítalíu SUMARTILBOÐ TVEIR FYRIR EINN 1. JÚNÍ – 25. ÁGÚST Mánud. og miðvikud. kl 7.00 - 8.15 þriðjud. og fimmtud. kl 17.45 - 19.00 Útijóga, miðvikud. kl. 17.30 - 18.30 Ertu “enn á leiðinni” í jóga? Vantar þig orku, einbeitingu, gleði og ró? KUNDALINI JÓGA ÚTI OG INNI Orkugefandi - Markvisst - Umbreytandi Skráning og nánari upplýsingar: www.jogasetrid.is Auður Bjarna 846 1970 L ó t u s J ó g a s e t u r - B o r g a r t ú n i 2 0 , 4 . h æ ð ÞÓRA EINARSDÓTTIR FINNUR BJARNASON GARÐAR THÓR CORTES ÁGÚST ÓLAFSSON JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR AUÐUR GUNNARSDÓTTIR SIGRÍÐUR ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR SNORRI WIUM VALGERÐUR GUÐNADÓTTIR KOLBEINN JÓN KETILSSON VIÐAR GUNNARSSON HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON LEIKSTJÓRI: ÁGÚSTA SKÚLADÓTTIR FRUMSÝNING 22. OKTÓBER 2011 W. A. MOZART MIÐASALA HEFST Á MÁNUDAG KL. 12 Í HÖRPU, Á WWW.HARPA.IS OG Í SÍMA 528 5050
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.