Fréttablaðið - 28.05.2011, Blaðsíða 85
LAUGARDAGUR 28. maí 2011 57
Söngkonan Amy Winehouse er farin enn eina ferð-
ina í meðferð. Á leiðinni á meðferðarstofnunina
kom söngkonan þó við í verslun og keypti sér
vodkaflösku sem hún drakk á staðnum.
Viðskiptavinur verslunarinnar segist hafa orðið
hissa að sjá Winehouse kaupa sér sterkt áfengi
svo snemma morguns. „Hún leit ekki vel út og var
þvoglumælt. Ég var hissa að sjá hana kaupa áfengi
svo snemma morguns og varð enn meira hissa
þegar ég sá hana staupa sig í versluninni,“ sagði
viðskiptavinurinn í samtali við The Sun.
Winehouse mun að þessu sinni dvelja á
meðferðar heimilinu The Priory, en þangað hafa
stjörnur á borð við Lily Allen, Susan Boyle, Pete
Doherty, Courtney Love, Kate Moss og Robbie
Williams leitað sér aðstoðar.
Tónlistarmennirnir KK og Maggi
Eiríks halda tónleika á Café
Rosenberg í kvöld og stíga þeir
á svið kl. 22. Þar spila þeir ýmis
lög sem hafa notið vinsælda á
löngum ferli þeirra. Í Frétta-
blaðinu í gær kom ranglega fram
að tónleikarnir hefðu verið í gær-
kvöldi og beðist er velvirðingar
á því. KK og Maggi eru báðir
heiðurs meðlimir Blúsfélags
Reykjavíkur og hafa gefið út sex
plötur saman, þar á meðal þrjár
vinsælar Ferðalaga-plötur. Þeir
hafa spilað reglulega á Rosen-
berg um árin enda líður þeim
ákaflega vel þar.
KK og Maggi spila í kvöld
KK OG MAGGI Halda tónleika á Café
Rosenberg í kvöld kl. 22. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bíó ★★
The Hangover: Part II
Leikstjóri: Todd Phillips
Leikarar: Bradley Cooper, Ed Helms, Zach Galifianakis, Justin Bartha,
Ken Jeong, Jeffrey Tambor, Jamie Chung, Paul Giamatti
Reynir of mikið, en samt ekki nóg
Kvikmyndin The Hangover kom út árið 2009 og malaði gull. Ég man hrein-
lega ekki eftir gamanmynd frá fyrsta áratug aldarinnar sem hlaut meiri
athygli og vinsældir en hún. Myndin sagði frá nokkrum félögum sem vökn-
uðu timbraðir eftir steggjun eins þeirra og mundu ekki bofs. Einn þeirra var
týndur, annar hafði misst tönn og í lokin tókst þeim í sameiningu að púsla
saman atburðum kvöldsins áður, sem hafði svo sannarlega verið rosalegt.
Nú er komin framhaldsmynd sem ber hið ágæta nafn The Hangover: Part
II (smellin Godfather-tilvitnun geri ég ráð fyrir). Söguþráðurinn er sá sami,
en nú eru okkar menn staddir í Taílandi. Tilvonandi brúðgumi fyrri myndar-
innar er enn á ný að fara að kvænast, strákarnir steggja hann duglega og
morguninn eftir vakna þeir í Bangkok og enginn man neitt.
Fyrri myndin var ekki jafn sprenghlægileg og margir vildu meina, og
þessi er eins, nema að því leyti að hún fer lengra yfir strikið. Húmorinn er
groddalegri og persónurnar eru orðnar ýktari. Eins og til dæmis Alan (Zach
Gilifianakis), sem er ekki lengur krúttlega furðulegur og spúkí, heldur hall-
ærislega heimskur og á köflum bara hreinlega leiðinlegur.
Þessi annar hluti Hangover-ævintýrisins bætir engu við fyrri myndina
og reynir um of að sjokkera áhorfendur með neðanbeltishúmor. Útkoman
virkar því þvinguð og neistaflug milli leikara er af skornum skammti. En
aðdáendur seríunnar þurfa þó ekki að örvænta því að það er nokkuð fyrir-
séð að The Hangover: Part II mun raka inn seðlum og verða ein vinsælasta
mynd ársins. Hvar ætli þeir vakni næst?
Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Ósköp rislítið og fyrirsjáanlegt. Aðdáendur Billy Joel fá nokkra
óvænta glaðninga.
BÆTIR ENGU VIÐ Annar hluti Hangover-ævintýrisins reynir um of að sjokkera
áhorfendur.
Í MEÐFERÐ Amy Winehouse fékk sér vodka áður en hún hélt
af stað í meðferð. NORDICPHOTOS/GETTY
Staupaði sig fyrir meðferð
Eftirréttir
Amaretto súkkulaði Brownie
Með vanillu gelato.
Lakkríssprengja
Blandaður gelato með fullt af lakkrís og svo
meiri lakkrís – fyrir þá sem elska lakkrís.
Kókossprengja
Blandaður gelato með kókósbollu, ferskum
jarðarberjum, rjóma og súkkulaðisósu.
Forréttir
Ravioli Fritti
Stökkt ravioli með fjögurra osta fyllingu og
bragðmikilli arrabbiata sósu.
Hvítlauksbakaðir humarhalar
Humarhalar bakaðir í hvítlauk, ítalskri
steinselju og parmesan.
Prosciutto með truffluolíu
Ekta ítölsk Prosciutto með karamelluðum furu-
hnetum, baby mozzarella, hægelduðum tómat
og truffluolíu.
Bruschetta Mozzarella
Ótrúlega fersk – tómatar, fersk basilíka og
Mozzarella.
Carpaccio classico
Nautacarpaccio með karamelluðum furuhnetum,
klettasalati, parmesanosti og klettasalatspestó. Aðalréttir
Humar og risarækju Linguini
Linguini pasta með risarækjum, humri,
klettasalati og kirsuberjatómötum í
kraftmikilli sósu.
Túnfisk Rigatoni
Rigatoni pasta með tonno all’olio d’oliva,
tómötum, chili og ferskri basilíku
í arabbiattasósu. Bragðbætt með sítrónu
og ólífuolíu.
Kjúklinga Tagliolini
Tagliolini pasta með steiktum kjúklinga-
bitum, sveppum, spínati og pancetta
í hvítvínsrjómasósu.
Svakalegt kjúklingasalat
Stökkur kjúklingur, fersk basilíka, tómatar,
mangó, cous-cous, karamellaðar furu-
hnetur og UNO dressing.
3ja rétta matseðill
aðeins 2.990 kr.
UNO | Hafnarstræti 1-3 | 101 Reykjavík | Sími 561 1313 | uno.is
Þú velur 1 rétt úr hverjum flokki.
Gildir sunnudaga, mánudaga og þriðjudaga út maí.