Fréttablaðið - 30.05.2011, Qupperneq 4
30. maí 2011 MÁNUDAGUR4
GENGIÐ 27.05.2011
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,7817
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,42 115,98
189,59 190,51
164,22 165,14
22,023 22,151
21,131 21,255
18,431 18,539
1,4234 1,4318
183,84 184,94
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðar dóttir,
forsætisráðherra og formaður
Samfylkingarinnar, segir að ekki
standi á Samfylkingunni að gera
breytingar á flokknum til að hann
geti rúmað alla Evrópusinnaða
jafnaðarmenn landsins, sem nú séu
dreifðir um marga flokka.
Þetta kom fram í ávarpi hennar á
flokksstjórnarfundi Samfylkingar-
innar í gær.
„Hversu lengi ætla Evrópu-
sinnar að starfa í flokkum sem
berjast leynt og ljóst gegn aðildar-
viðræðum?“ spurði Jóhanna.
„Hversu lengi ætla stuðningsmenn
aukins jöfnuðar, aukins lýðræðis,
aukins arðs þjóðarinnar af auðlind-
um landsins og öflugra velferðar-
kerfis að starfa í flokkum sem
leynt og ljóst berjast gegn fram-
gangi þessara mikil vægu mála?“
Jóhanna sagði Samfylkinguna
eiga að standa öllum þessum
hópum opin. „Breytt skipulag, nýtt
nafn, ný forysta eða annað á ekki
að standa í vegi fyrir því,“ bætti
hún við.
Jóhanna sagði að það væru helst
almennir launþegar, lífeyrisþegar
og barnafjölskyldur sem ættu að
njóta aukins hagvaxtar næstu ára.
„Ofurlaunaliðið, fjárglæfra-
mennirnir og stóreignaelítan fær
ekki að soga til sín hagvöxtinn sem
fram undan er ef við fáum að ráða.
Það er nóg að þjóðin hafi þurft að
að greiða fyrir síðasta gleðskap
þessa fólks. Sú svallveisla var
haldin undir lúðrablæstri frjáls-
hyggjutrúboðs Sjálfstæðisflokks-
ins. Lífskjarasóknin sem fram
undan er verður hins vegar á for-
sendum jafnaðar stefnunnar,“ sagði
forsætis ráðherrann.
Jóhanna gagnrýndi útgerðar-
menn harðlega í ávarpinu fyrir að
hóta því að nýta ákvæði í nýgerð-
um kjarasamningum um að stytta
þá úr þremur árum niður í eitt
ef ekki verði komin niðurstaða í
kvótamálin sem er þeim að skapi
fyrir 22. júní. „Þetta er ótrúleg
ósvífni, sem ekki er hægt að líða,“
sagði hún.
Þá gagnrýndi hún LÍÚ jafn-
framt fyrir harða andstöðu þess
við kvótafrumvörp ríkisstjórnar-
innar; fullyrðingar um fjöldagjald-
þrot í sjávarútvegi stæðust ekki og
að breytingarnar væru lykilatriði.
Því væri mikilvægt að stjórnar-
flokkarnir næðu að sigla málinu
í höfn en hins vegar væri ljóst að
sjálfstæðismenn, sem hún kallaði
málsvara LÍU, myndu gera allt sem
í þeirra valdi stæði til að bregða
fæti fyrir málið.
Jóhanna vék einnig að Evrópu-
málum og sagði fullbúinn samning
um aðild Íslands að Evrópusam-
bandinu geta legið fyrir um ára-
mótin 2012-2013. „Allt bendir því
til að við gætum lokið þessu mikil-
væga máli fyrir lok þessa kjör-
tímabils.“ stigur@frettabladid.is
Býður Evrópusinnum allra
flokka yfir í Samfylkinguna
Forsætisráðherra segir að Evrópusinnaðir jafnaðarmenn úr öllum flokkum eigi að sameinast undir einum
hatti. Samfylkingin væri reiðubúin að skipta um nafn og forystu og breyta skipulagi sínu til að ná því fram.
GAGNRÝNDI STJÓRNARANDSTÖÐUNA Jóhanna sagði að af „svartagallsrausi stjórnar-
andstöðunnar“ mætti halda að ríkisstjórnin hefði tekið við góðu búi fyrir tveimur
árum en væri á góðri leið með að koma öllu í kalda kol. MYND/STÖÐ 2
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
24°
27°
27°
19°
27°
29°
18°
18°
21°
16°
25°
33°
32°
16°
24°
15°
17°Á MORGUN
3-10 m/s
Hvassara SA-til.
MIÐVIKUDAGUR
Hægviðri
inn til landsins.
9
6
3
4
3
3
4
7
5
8
2
6
9
8
9
6
8
7
10
2
4
6
10
5 3
3
5 10
7 6
7
8
KÓLNANDI Í dag
og á morgun
verður heldur svalt
á norðanverðu
landinu og úrkoma
gæti fallið sem
slyddu- eða snjóél.
Á morgun má
búast við vaxandi
vætu eftir því sem
líður á daginn og á
miðvikudaginn eru
horfur á rigningu
eða skúrum í öllum
landshlutum.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
Jóhanna varði nokkru púðri í að ræða stóriðjumál í ávarpi sínu. Hún sagðist
reikna með að nú styttist verulega í að tilkynnt yrði um framkvæmdir í
tengslum við orkufrekan iðnað á Norðurlandi, eins og Katrínu Júlíusdóttur
iðnaðarráðherra hefur orðið tíðrætt um síðustu misseri.
„Ég er líka orðin mun bjartsýnni en áður um að Norðurál nái að semja við
HS orku og Orkuveituna um nægilega orku til að álver þeirra í Helguvík geti
orðið að veruleika með tilheyrandi framkvæmdum við Hverahlíðarvirkjun,
Reykjanesvirkjun og línulagnir í tengslum við orkufrekan iðnað á Suður-
nesjum,“ sagði Jóhanna.
Ef öll verkefni í orkufrekum iðnaði verði að veruleika sé útlit fyrir fjár-
festingar og virkjanaframkvæmdir fyrir 300 til 400 milljarða á næstu þremur
til fimm árum og sex til sjö þúsund ársverk við uppbygginguna.
Vonast til að stóriðja glæði efnahaginn
Ofurlaunaliðið,
fjárglæframennirnir og
stóreignaelítan fær ekki að
soga til sín hagvöxtinn sem
fram undan er ef við fáum að
ráða.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
MALTA, AP Íbúar Möltu sam-
þykktu á laugardag að sett yrðu
lög sem leyfðu hjónaskilnaði.
Lawrence Gonzi, forsætisráð-
herra landsins, segir að þingið
muni virða vilja þjóðarinnar og
lögleiða skilnaði. Þar með verður
Malta ekki lengur eina ríki
Evrópu þar sem ólöglegt er fyrir
hjón að skilja.
Talið er að um 52 prósent Malt-
verja hafi greitt atkvæði með
lögleiðingunni í þjóðaratkvæða-
greiðslunni. Íbúar Möltu eru
að mestum hluta kaþólskir og
eru áhrif kaþólsku kirkjunnar á
þjóðina mikil. Til að mynda eru
fóstur eyðingar bannaðar í land-
inu. - fb
Maltverjar vilja breyta lögum:
Skilnaðir verða
leyfðir á Möltu
MALTA Íbúar Möltu samþykktu um
helgina að hjónaskilnaðir yrðu heimil-
aðir í landinu.
Ranghermt var í laugardagsútgáfu
Fréttablaðsins að Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra hefði ávarpað
aðalfund Landverndar. Það var Svan-
dís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
sem sat fundinn.
LEIÐRÉTTING
MISSOURI, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti segir að fólkið
sem lifði af skýstrókinn í bænum
Joplin í Missouri hafi sýnt heim-
inum hvernig eigi að sýna sam-
stöðu. Obama var viðstaddur
minningarathöfn í Joplin í gær,
viku eftir að rúmlega 130 íbúar
bæjarins fórust og hundruð slös-
uðust af völdum skýstróksins.
Enn er að minnsta kosti fjörutíu
manna saknað, en skýstrókurinn
er sá mannskæðasti í Bandaríkj-
unum í áratugi.
Obama sagði að bandaríska
þjóðin myndi standa þétt á bak
við íbúa Joplin í þeirri sorg sem
þeir glímdu við. „Þetta er ekki
bara ykkar harmleikur. Þetta er
harmleikur allrar þjóðarinnar og
það þýðir að þjóðin mun taka þátt
í endurreisninni,“ sagði hann.
Forsetinn sagði ómögulegt
að sjá fyrir slíkar hörmungar
en hrósaði bæjarbúum fyrir að
hjálpa hver öðrum og setja sjálfa
sig um leið í mikla hættu. Bætti
hann við að allt um kring væru
hetjur sem væru tilbúnar að láta
gott af sér leiða.
Rúmlega sex hundruð sjálf-
boðaliðar og fimmtíu hópar með
hunda hafa leitað að fórnarlömb-
um í rústunum síðan skýstrókur-
inn gekk yfir. - fb
Barack Obama heimsótti bæinn Joplin sem mannskæður skýstrókur gekk yfir:
Stappaði stálinu í heimamenn
BARACK OBAMA Forseti Bandaríkjanna
stappaði stálinu í heimamenn í bænum
Joplin í Missouri. MYND/AP
ELDGOS Margar skepnur á
bænum Kálfafelli I, rétt austan
við Kirkjubæjar klaustur, urðu
blindar vegna ösku úr eldgos-
inu í Grímsvötnum. Kom þetta
fram í fréttum Stöðvar 2 í gær-
kvöldi.
Hátt í tuttugu lömb urðu auk
þess að heimalningum vegna
eldgossins þegar þau misstu
eða týndu mæðrum sínum.
Heimalningarnir fúlsa við öllu
nema heitri mjólk sem þarf að
gefa þeim fjórum til fimm sinn-
um á dag. Bændurnir þurfa því
að metta sjötíu til níutíu munna
á dag. - mmf
Metta sjötíu munna á dag:
Blindar skepnur