Fréttablaðið - 30.05.2011, Qupperneq 8
30. maí 2011 MÁNUDAGUR8
MENNTAMÁL Jákvæð samskipti
kennara og nemenda í þremur
skólum í Reykjanesbæ; Njarð-
víkurskóla, Myllubakkaskóla og
Holtaskóla, hafa aukist til muna.
Óæskileg hegðun nemenda hefur
snarminnkað. Þetta eru niðurstöð-
ur nýrrar umfangsmikillar rann-
sóknar á innleiðingu PBS (Positive
Behavior Support) í skólana þrjá
og árangur sem af því hlaust.
Rannsóknin er sú fyrsta sinnar
tegundar sem
gerð hefur verið
á Íslandi og ein
sú umfangs-
mesta í Evrópu.
Kolbrún Ingi-
björg Jóns dóttir
gerði meistara-
ritgerð sína um
rannsóknina
og segir hún
fyrstu niður-
stöður benda til þess að áhrifa
PBS-kerfisins sé strax farið að
gæta í jákvæðri athygli starfs-
fólks, umbun fyrir góða hegðun
og virku eftirliti.
PBS er hannað til þess að
styrkja æskilega hegðun starfs-
fólks og nemenda til þess að fyrir-
byggja og draga úr erfiðri hegðun.
Innleiðing kerfisins tekur um þrjú
til fimm ár og það er yfirleitt ekki
fyrr en í fyrsta lagi á öðru fram-
kvæmdarári sem farið er yfir
notkun starfsfólks á aðferðum til
að breyta hegðun nemenda.
Í niðurstöðunum kom meðal
annars fram að óæskileg hegðun
nemenda á yngsta stigi í kennslu-
stofum skólanna þriggja hefði
minnkað um helming síðan PBS
var innleitt. Jákvæð athygli starfs-
fólks hefur þá aukist til muna og
Þetta er þvert á það
sem maður hefði
haldið að hrunið hefði haft
áhrif á. Þá hefur dregið
stórkostlega úr agavanda-
málum síðan við hófum
innleiðingu kerfisins.
GYLFI JÓN GYLFASON
YFIRSÁLFRÆÐINGUR
BURSTAR í vél-
sópa á lager
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- flestar
stærðir
ENGLAND Sjúkrahúsinnlagnir í
Englandi vegna áfengisneyslu eru
nú komnar í meira en milljón á
ári í fyrsta sinn. Sjúklingum sem
leita læknis vegna áfengis hefur
fjölgað um 12 prósent á milli ára
og eru nær tveir þriðju þeirra
karlmenn. Fréttastofa BBC grein-
ir frá þessu. Sjúkdómar tengdir
áfengisneyslu eru meðal annars
lifrarbilun, krabbamein, geðrösk-
un og sömuleiðis slys og óhöpp.
Í ljósi stöðunnar vilja heil-
brigðis yfirvöld koma á fót bættri
forvarnastefnu síðar á árinu. - sv
Áfengisvandi vex á Bretlandi:
Milljón drekkur
sig í rúmið á ári
1 Hversu mikið fjölgaði öryrkjum
milli 2009 og 2010?
2 Hvað er Fíladelfía gömul?
3 Hvaða hljómsveit hefur samið
leikrit?
SVÖR
FÓLK Um tuttugu þúsund manns
komu til afmælishátíðar Stöðvar 2
í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
á laugardag. Áskrifendum í Stöð 2
Vild var boðið til hátíðarinnar, en
stöðin fagnar 25 ára afmæli um
þessar mundir.
Boðið var upp á fjölbreytt
skemmtiatriði á afmælishátíð-
inni, fyrir börn á öllum aldri.
Meðal þeirra sem komu fram
voru Íþróttaálfurinn, Solla Stirða
og Glanni Glæpur úr Latabæ,
félagarnir Sveppi og Villi og vin-
konurnar Skoppa og Skrítla sem
glöddu yngstu gestina. Söngkon-
an Jóhanna Guðrún tók lagið auk
þess sem Steindi jr. og Ásgeir stigu
á stokk, sem og Friðrik Dór, Jón
Jónsson og Helgi Björnsson.
Þegar hungrið sagði til sín gátu
allir fengið sér pylsu og svala-
drykk.
- mmf
Stöð 2 fagnaði aldarfjórðungsafmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum:
20 þúsund sóttu afmælishátíð
LÍF OG FJÖR Áskrifendur Stöðvar 2 Vildar gerðu sér glaðan dag ásamt fjölskyldum
sínum á laugardag.
1. 200. 2. 75 ára. 3. Pollapönk.
Óæskileg hegðun nemenda
er helmingi minni en áður
Jákvæð samskipti kennara og nemenda á Reykjanesi hafa aukist til muna eftir innleiðingu svokallaðs PBS-
kerfis. Þetta eru niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar, þeirrar fyrstu sinnar tegundar hér á landi.
SKÓLABÖRN Hegðun barna á öllum skólastigum var mæld í rannsókninni og voru
marktækar breytingar á hegðun á öllum stigum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DÓMSMÁL Karlmaður á fimm-
tugsaldri hefur verið dæmdur í
Héraðs dómi Reykjavíkur í átján
mánaða fangelsi, meðal annars
fyrir rán og frelsissviptingu. Þá
var hann dæmdur til að greiða
fórnar lambinu 450 þúsund krónur
í miskabætur.
Ofbeldismaðurinn neyddi fórn-
arlambið, í félagi við tvo aðra
menn, með ofbeldi til að millifæra
110 þúsund krónur yfir á reikning
eins þeirra. Að auki söfnuðu ráns-
mennirnir verðmætum í íbúðinni,
þar á meðal 80 þúsund krónum í
peningum. Mál þess sem nú var
dæmdur var skilið frá málum hinna
tveggja og dæmt sérstaklega.
Þremenningarnir sviptu mann-
inn frelsi á heimili hans við Hring-
braut í Reykjavík í desember 2009.
Þeir beittu hann ofbeldi í því skyni
að ná frá honum verðmætum, slógu
hann í andlitið, tóku hann hálstaki,
fjötruðu hendur hans og tróðu
tusku upp í munn hans og kefluðu
hann.
Sá sem nú var dæmdur játaði sök
fyrir dómi. Hann var jafnframt
fundinn sekur um að hafa tekið
bíl í heimildarleysi og sett á hann
skráningarmerki, sem hann stal af
öðrum bíl.
Maðurinn á langan sakaferil og
hefur meðal annars hlotið fimmtán
refsidóma. - jss
Karlmaður dæmdur í átján mánaða fangelsi og til greiðslu miskabóta:
Kefluðu mann og rændu hann
BUNDNAR HENDUR Ofbeldismennirnir
bundu hendur fórnarlambsins. Myndin
tengist fréttinni ekki beint.
Tilgangur rannsóknarinnar var að meta árangur PBS-kerfisins með svoköll-
uðum beinum áhorfsmælingum. Það felur í sér að hegðun er metin og
skráð eftir ákveðnum skilgreiningum og samræmi milli skráningarmanna
er metið reglulega. Kolbrún segir sambærilega rannsókn ekki hafa verið
gerða og jafnmiklum gögnum um hegðun nemenda og starfsfólks hefur
ekki verið safnað, hvorki á Íslandi né annars staðar í heiminum svo vitað
sé til.
Búið er að safna gögnum hverja önn síðan um haustið 2007, þrjár vikur
í senn. Mælt var á öllum svæðum skólanna, stigum, göngum, matsal,
útisvæðum og kennslustofu. Tilviljun réð því með hverjum var fylgst en
dregið var í bekki og hegðun mæld í þeim öllum.
Öll aldursstig voru mæld. Yngsta stig er frá 1. til 3. bekkjar, miðstig frá 4.
til 7. bekkjar og elsta stig frá 8. til 10. bekkjar.
Hegðun í skólunum skráð í fjögur ár
hefur hlutfallið nær þrefaldast.
Óviðeigandi hunsun starfsfólks
hefur einnig minnkað um helm-
ing.
Gylfi Jón Gylfason, yfir-
sálfræðingur hjá Fræðsluskrif-
stofu Reykjanesbæjar, fékk hug-
myndina að rannsókninni ásamt
Zuilmu Gabríelu Sigurðar dóttur.
Tildrög rannsóknarinnar var
mastersritgerð Ragnheiðar Sifjar
Gunnarsdóttur, sem sá um verk-
efnið fyrstu árin og safnaði gögn-
um áður en innleiðing PBS hófst.
Rannsóknin er unnin í samstarfi
Reykjanesbæjar og Háskóla
Íslands.
Gylfi Jón segir einar merkileg-
ustu niðurstöðurnar vera þær að á
sama tíma og hér gangi yfir efna-
hagshrun og atvinnuleysi, þar sem
Reykjanesbær varð hvað verst
úti, séu kennarahóparnir almennt
jákvæðari í dag en fyrir hrun.
„Þetta er þvert á það sem maður
hefði haldið að hrunið hefði haft
áhrif á. Þá hefur dregið stórkost-
lega úr agavandamálum síðan við
hófum innleiðingu kerfisins, “
segir Gylfi Jón. „Svona hugarfar
ætti að vera öðrum til fyrirmynd-
ar.“ sunna@frettabladid.is
GYLFI JÓN
GYLFASON
www.
ring.is
/ m
.ring.
is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
Þ að hljómar kannski kuldalega að
hátta sig ofan í rúm undir frost-
marki, en engu að síður staðreynd
að gisting í snjóhúsum nýtur
fádæma vinsælda hvar sem hún býðst. Eftir
áramót sýnir Vetur konungur oft grimm-
ustu klærnar og hrúgar niður snjó á mestu
snjósöfnunarstaði veraldar. Því fagna ferða-
menn sem dýrka vetrar ríkið og þrá að upp-
lifa eitthvað nýtt og framandi, en einnig að
komast í mikla nánd við náttúruna. Vinsæl-
ar snjóhúsabyggðir eru í Lapplandi, Sviss,
Slóveníu og Japan, þar sem hin ægifagra
Kamakura-hátíð er haldin í febrúar ár hvert
í Yokote í Akitahéraði í norðaustur Japan.
Mikil snjókoma er í Yokote og ekki óalgengt
að falli allt að 30 sentimetra snjór yfir nótt.
Snjóhúsin sjálf kallast kamakura og inni í
þeim er reist altari til tilbeiðslu vatnsguðs-
ins, þar sem fólk biður fyrir góðri uppskeru,
öryggi fjölskyldunnar, velgengni og vernd
gegn eldum. Ólýsanlega fagurt er á kvöld-
in á Kamakura þegar kertaljós lýsa upp
snjóhúsin, en hvarvetna ræður rómantík
ríkjum á snjóhúsaslóðum og vinsælt meðal
elskenda að gefast hvort öðru undir bleik-
lilluðum stjörnuhimni og glitrandi frostrós-
um.
-þlg
JANÚAR 2011
FRAMHALD Á SÍÐU 4
OFURSVALT INÚÍTALÍF
Snjóhús eru með fegurstu mann-
gerðu smíðum náttúrunnar, en
efniviðurinn hverfull eftir veðri
og vindum. Um víða veröld er
hægt að upplifa andrúmsloft
inúíta í hnausþykkum, listilega
smíðuðum snjóhúsum, til að mat-
ast, vera og njótast.
Góður markaður Íslendingar geta nú nýtt
sumarfríið til að leigja út íbúðir sínar í gegnum
fyrirtækið Iceland Summer.
SÍÐA 2
Skemmtileg lífs-
reynsla Lilja Björk
Jónasdóttir starfaði
við sumarbúðir
barna í Banda-
ríkjunum síðasta
sumar og ætlar
aftur í vor.SÍÐA 6
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 11. mars 2011
Helicopter vekur athygli
Á rúmstokknumTískan á pöllunumÁrshátíðarförðunin
Fríða María Harðardóttirer sannur eyjarskeggi
Kr.
TILBOÐ
117.950
FRÁBÆRT FARTÖLVUTILBOÐ
15.6”
Skand
ínavísk
hönnu
narvei
sla
Mikil
hönnu
narsýn
ing er
haldin
í Stok
k-
hólmi
í febrú
ar. Þar
eru he
lstu ný
jungar
hönnu
narhei
msins
kynnt
ar. Sýn
ingin þ
ykir
gefa g
óða m
ynd af
þeim
straum
um se
m
einken
na ska
ndinav
íska hö
nnun o
g þang
að
flykkis
t fólk f
rá öllu
m heim
shornu
m.
Sýning
arsvæ
ðið er
stórt o
g yfirg
ripsm
ikið
en ein
nig er
u sýn
ingar
víðs v
egar
um
borgin
a. Í ár
var við
ur alls
ráðan
di, ein
s og
oft áð
ur end
a grun
nefni
í skan
dinaví
skri
framl
eiðslu
. Nát
túrule
gar á
ferðir
og
umhve
rfisvæ
nar fr
amleið
sluaðf
erðir n
utu
sín í b
land v
ið skæ
ra og s
terka
liti. Ei
nnig
voru p
astelli
tir áb
erand
i og m
á segj
a að
hvítt o
g svar
t sé á u
ndanh
aldi.
Það g
ætir a
fturhv
arfs t
il eldr
i tíma
hjá un
gum f
yrirtæ
kjum
en me
ð sam
tíma
framle
iðsluh
áttum
. Efni
eins o
g kopa
r og
messi
ng sáu
st víð
a svo
ekki s
é min
nst á
prjóna
ða, he
klaða
og ofn
a ull. Þ
ægind
i og
mýkt
voru á
beran
di í m
ótsögn
við ha
rðar
línur m
ódern
isma s
em he
fur ve
rið vin
æll
undan
farin á
r. Skan
dinaví
sk hön
nun er
þó
alltaf
stílhr
ein og
einfa
ldleik
inn í f
yrir-
rúmi e
n í ár
var ha
nn óve
nju hlý
legur.
- she
EVERYTH
ING MAT
TERS.
heimi
li&
hönnu
n
febrúar
2011
FRAM
HALD
Á SÍÐ
U 4
Klassís
k
hönnu
n í
nýju lj
ósi
Ungir
hönnu
ðir
létu ljó
s sitt s
kína í
Stokkh
ólmi. Þ
eirra
á með
al var
Jaeuk
Jung.
SÍÐA 6
Mikill
græjuk
arl
Ásgeir
Kolbe
insson
útvarp
smaðu
r kann
vel
við sig
í miðb
ænum
.
SÍÐA 2
menning[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
mars 2011
Íslensk menningarpólitík nefnist bók eftir Bjarka Valtýs-
son, doktor í boðskipta- og menningarfræðum, sem kom
út á vegum Nýhil á dögunum. Í bókinni er íslensk menn-
ingarstefna greind fræðilega og sett í samhengi við al-
þjóðlegar menningarstefnur. Bjarki varar við ofuráherslu
á hina einhæfu íslensku menningarvitund, sem oft og
tíðum dragi listamenn í dilka klisjunnar. l FRAMHALD Á SÍÐU 6
DRÖGUM VARLA FLEIRI ÍSJAKA TIL PARÍSAR
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DÆMI
Á djúpum miðumRagna Sigurðardóttir rýnir í sýningarnar
Viðtöl um dauðann og Hljóðheimar.
SÍÐA 2
Útsprungnar rósir Kjartan Guðmundsson dustar rykið af fyrstu plötu The Pogues.
SÍÐA 2
matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]mars 2011
Dekrað við bragðlaukana
Albert Eiríksson færir ljúffenga döðluköku í
nútímalegra og heilsusamlegra horf.
SÍÐA 2
Hreinn unaður
Kristín Eik Gústafsdóttir býr til
fádæma flotta tertu sem allir geta
spreytt sig á.SÍÐA 4
Með sunnudagskaffinuKökur, huggulegheit og samvera.
DÆMI
Ívar Örn Hansen
S: 5125429 ,
gsm 6154349
ivarorn@365.is
Sigríður Dagný
S: 5125462,
gsm 8233344
sigridurdagny@365.is
Sigríður Hallgríms
S: 5125432,
gsm 6924700
sigridurh@365.is
AUGLÝSING Í SÉRBLÖÐUM SKILAR ÁRANGRI!
fjölskyldan[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ]
Þ órður Hermannsson sækir Hitt húsið með dóttur sína Karitas Lóu 6 mánaða. Þórður er 23 ára nýútskrifaður tónsmiður frá LHÍ. „Karitas Lóa er mitt fyrsta barn en kærastan mín átti tvö börn fyrir svo við erum með þrjú börn heima. Ég er í fæðingarorlofi núna og finnst mjög gott
að geta hitt aðra foreldra og þá hittir hún
líka aðra krakka.“ Þórður segir þá fræðslu sem boðið er
upp á koma sér vel fyrir unga nýbak-
aða foreldra en annanhvern miðvikudag
eru faglegir fyrirlestrar eða kynning-
ar. Hann segir félagsskapinn ekki síður
mikilvægan.
„Það er gott að hafa stuðning af fleiri
ungum foreldrum en það eru ekki marg-
ir vinir mínir komnir með börn. Hópur-
inn sem hittist er á aldrinum 18 til 25 ára.
Við erum öll með okkar fyrsta barn og að
ganga í gegnum svipaða hluti. Það er alltaf
febrúar 2011
Í hundunum Theodóra Róbertsdóttir sýnir á stærstu hundasýningu heims í næsta mánuði.
SÍÐA 2
FRAMHALD Á SÍÐU 4
Ungir kenna fullorðnum
Nemendur úr sjöunda bekk Grandaskóla kenna fullorðnum á tölvur.
SÍÐA 6
Alla miðvikudaga milli klukkan 14 og 16
geta ungir foreldrar mætt með börnin sín í Hitt húsið, rætt málin og fengið faglega ráðgjöf varðandi umönnun ungbarna. Starfið ber yfirskriftina Ungt
fólk með ungana sína.
Gott að hitta aðra unga foreldra
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
okkar.is
ze
br
a
Sérblöð Fréttablaðsins eru fjölbreytt
og höfða til fólks á öllum aldri. Fjöldi
mismunandi sérblaða kemur út í
hverjum mánuði. Leitaðu ráða hjá
ráðgjöfum okkar um hvar auglýsingin
þín nær best til markhópsins.
AUGLÝSINGAR
Í SÉRBLÖÐUM
VÍSINDI Töluvert magn fannst af
kolmunna á landgrunnskantinum
fyrir suðvestan og sunnan land í
leiðangri Hafrannsóknastofnunar
sem lauk nýverið. Um ársgamlan
kolmunna var að ræða.
Við Íslands-Færeyjarhrygg-
inn var þennan árgang einnig að
finna en hins vegar var nánast
ekkert vart við fullorðinn kol-
munna í leiðangrinum. Þessar
niðurstöður gætu því verið vís-
bending um að loks sé að koma
upp sæmilegur árgangur af kol-
munna en allir árgangar frá og
með 2005 hafa verið mjög litlir.
Leiðangurinn er hluti af sam-
eiginlegri leit og bergmálsmæl-
ingum Íslendinga, Norðmanna,
Færeyinga, Rússa og Evrópusam-
bandsins á útbreiðslusvæði kol-
munna og Norsk-íslenkri síld. - shá
Hafrannsóknastofnun:
Töluvert magn
af kolmunna
VEISTU SVARIÐ?