Fréttablaðið - 30.05.2011, Side 18
Hollenski hönnuðurinn Maarten Baas kynnti nýja útgáfu
af leirhúsgögnum sínum í Mílanó í síðasta mánuði. Línan kall-
ast The Plain Collection og er úr lituðum leir. Í húsgögnunum
má greina fingraför þess sem mótaði leirinn. Í línunni er að
finna stóla, lampa, borð og spegla.
Your rainbow panorama kallast nýtt verk eftir Ólaf Elías-
son sem vígt var á þaki listasafns Árósa ARos á föstudag-
inn síðastliðinn. Mannvirkið er 150 metra manngeng-
ur regnbogi sem myndar hring á þaki safnins og er raun-
ar eins og hringurinn svífi yfir safninu. Hringurinn er 52
metrar að þvermáli og er haldið uppi af 3,5 metra háum
stólpum.
Ásýnd listaverksins breytist í takt við sólargang, veður-
far og eftir sjónarhorni þess sem virðir það fyrir sér og
því mikil upplifun að ganga einn hring. Verkið mun sjást
víða að og verður lýst upp að næturlagi.
Vinna við byggingu verksins hófst árið 2009 en það
kostar fullklárað 60 milljónir danskra króna, eða um 1,3
milljarða íslenskra króna.
Á laugardaginn var mannvirkið opnað almennum gest-
um safnsins, sem fengu að ganga hringinn og sjá borg-
ina og umheiminn í öllum regnbogans litum, en litir
glerveggsins spanna allt litrófið.
Regnbogaupplifun Ólafs Elíassonar
VERK EFTIR LISTAMANNINN ÓLAF ELÍASSON VAR OPNAÐ Á FÖSTUDAGINN SÍÐASTA Á ÞAKI LISTASAFNS ÁRÓSA. NÚ GETA GESTIR
SAFNSINS VIRT FYRIR SÉR BORGINA OG SÉÐ HANA Í NÝJU LJÓSI.
Ásýnd regnbogans breytist eftir tíma, staðsetningu og veðri. Útsýnisboginn er 150 metra langur og 52 metrar í þvermál.
Það þarf ekki að vera dýrt að gera
heimilið eilítið röndótt því í IKEA
til að mynda fást blómapottar
sem þessir í sumarsins litum.
Boðið upp í
línudans
Hönnuðir um víða veröld hafa fyrr og nú leikið sér
með rákir; skellt þeim upp á endann og látið þær
spila saman þvers og kruss. Rákirnar um þessar
mundir eru ýmist skærlitaðar, svo sem bleikar og
grasgrænar eða í dempaðri tónum. Einhverra hluta
vegna eru rendur sýnilegri í húsbúnaði á sumrin og
vorin. Fréttablaðið skautaði yfir randavöllinn.
„Stálviður“ heitir
nýr gripur úr smiðju
þeirra Ronans og
Erwans Bouroullec-
bræðra. Viðurinn er
upp á rönd.
Einn þekktasti gler-
listamaður Svía, Lena
Bergström, er líka kunn
fyrir textílhönnun og
hefur hannað mottur og
kolla úr ull. Þessi motta
kallast UMAN og er ný af
nálinni frá Design House
Stockholm.
Önnur einföld leið til að fá rendur
inn í líf sitt er að hengja upp röndótt
sturtuhengi sem þetta, en hengið er úr
IKEA.
Þeir hjá Normann Copenhagen eru
óhræddir við að framleiða hluti í
hressilegum litum svo sem þessi
herðatré sem fást bæði skærbleik
og skærgræn.
Kertastjaki frá Design House Stockholm
eftir Marie Thurnauer sem hægt er að
leika sér með – taka hann í sundur og
setja hann saman.
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
10%
20%
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir,
ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur
sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér
allt sem Vísir hefur upp á að bjóða.