Fréttablaðið - 30.05.2011, Side 42
30. maí 2011 MÁNUDAGUR26
VALUR 2-0 BREIÐABLIK
1-0 Matthías Guðmundsson (11.)
2-0 Hörður Sveinsson (76.)
Vodafone-völlurinn, áhorf.: 1358
Dómari: Magnús Þórisson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–9 (6–3)
Varin skot Haraldur 3 – Ingvar 4
Horn 9–5
Aukaspyrnur fengnar 6–10
Rangstöður 5–3
Valur 4–3–3 Haraldur Björnsson 6 - Jónas Tór Næs 7,
Atli Sveinn Þórarinsson 7, Halldór Kristinn Halldórsson 7,
Pól Jóhannus Justinussen 6 - *Haukur Páll Sigurðsson
8, Sigurbjörn Hreiðarsson 5 (63., Andri Fannar 5),
Guðjón Pétur Lýðsson 6 - Christin R Mouritsen 7, Þórir
Guðjónsson 4 (46., Ingólfur Sigurðsson 7), Matthías
Guðmundsson 7 (67., Hörður Sveinsson 7).
Breiðablik 4–3–3 Ingvar Þór Kale 7 - Arnór Sveinn
Aðalsteinsson 5 (77., Rafn Andri Haraldsson - ),
Finnur Orri Margeirsson 4, Elfar Freyr Helgason 4,
Kristinn Jónsson 5 - Guðmundur Kristjánsson 6, Jökull
Elísabetarson 6, Andri Rafn Yeoman 6 (77., Viktor Unnar
-) - Arnar Már Björgvinsson 4 (54., Haukur Baldvinss. 5),
Dylan MacAllister 4, Kristinn Steindórsson 7.
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Vals
verður haldinn þriðjudaginn 7. júní kl.
17:30 að Hlíðarenda.
Á dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
Fyrir fundinum liggur breytingatillaga
frá formanni félagsins um fjölgun í
félagsstjórn. Tillöguna má nálgast á
skrifstofu félagsins og á valur.is
Aðalfundur
Knattspyrnufélagsins Vals
Laugardalsvöllur, áhorf.:1613w
Fram FH
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–10 (4–4)
Varin skot Ögmundur 2 – Hannes 3
Horn 7–7
Aukaspyrnur fengnar 14–11
Rangstöður 0–0
KR 4–3–3
Hannes Þór Halldórs. 7
Magnús Már Lúðvíks. 7
Skúli Jón Friðgeirss. 7
*Grétar Sigfinnur 8
Guðmundur Reynir 8
Baldur Sigurðsson 6
Bjarni Guðjónsson 7
Viktor Bjarki Arnarss. 4
(67., Ásgeir Ólafsson 5)
Óskar Örn Hauksson 7
Kjartan Henry Finnb. 6
Guðjón Baldvinsson 3
(67., Gunnar Örn 6)
*Maður leiksins
FRAM 4–3–3
Ögmundur Kristinss. 6
Alan Lowing 5
Kristján Hauksson 6
Jón Guðni Fjóluson 4
Samuel Lee Tillen 6
Halldór Hermann J. 5
Daði Guðmundsson -
(17., Guðm.Magnúss. 6)
Jón Gunnar Eyst. 6
Kristján Ingi Halld. 7
Arnar Gunnlaugsson 6
(76., Hjálmar Þórar. -)
Almarr Ormarsson 4
0-1 Kjartan Henry Finnbogason (21.)
1-1 Arnar Gunnlaugsson, víti (25.)
1-2 Grétar Sigfinnur Sigurðars. (79.)
1-2
Gunnar Jarl Jónsson (4)
Hásteinsvöllur, áhorf.: 863
ÍBV Víkingur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 20–5 (11–4)
Varin skot Abel 4 – Magnús 9
Horn 6–3
Aukaspyrnur fengnar 16–8
Rangstöður 5–2
VÍKINGUR 4–4–2
Magnús Þormar 5
Walter Hjaltested 6
Mark Rutgers 4
Milos Milojevic 5
Hörður Bjarnason 5
Halldór Smári Sig. 5
Þorvaldur Sveinn Sv. 4
(58., Marteinn Briem 5)
Baldur Aðalsteinsson 5
Sigurður Egill Láruss. 5
(76., Cameron Gayle -)
Helgi Sigurðsson 4
Björgólfur Takefusa 4
(58., Gunnar Helgi 5)
*Maður leiksins
ÍBV 4–3–3
Abel Dhaira 6
Kelvin Mellor 6
Eiður Aron Sigurbj. 7
Rasmus Christiansen 7
Matt Garner 6
Þórarinn Ingi Vald. 7
Tonny Mawejje 7
Finnur Ólafsson 7
*Ian Jeffs 8
(77., Guðm.Þórarins. -)
Tryggvi Guðmunds. 8
(89., Arnór Ólafsson -)
Andri Ólafsson 7
(72., Bryan Hughes -)
1-0 Ian Jeffs (15.)
2-0 Tryggvi Guðmundsson (38.)
2-0
Guðmundur Ársæll (7)
KR 6 4 2 0 12-6 14
ÍBV 6 4 1 1 8-3 13
Valur 6 4 0 2 7-3 12
Stjarnan 5 2 2 1 9-7 8
Keflavík 5 2 2 1 8-6 8
Fylkir 5 2 1 2 7-8 7
Breiðablik 6 2 1 3 9-12 7
Víkingur 6 1 3 2 3-5 6
FH 4 1 2 1 6-4 5
Grindavík 5 1 1 3 4-8 4
Þór Ak. 4 1 0 3 2-6 3
Fram 6 0 1 5 3-10 1
Í kvöld mætast: FH-Stjarnan (19.15), Fylkir-
Keflavík (19.15) og Grindavík-Þór (20.00)
PEPSI-DEILDIN
FÓTBOLTI Tryggvi Guðmundsson
var aðalmaðurinn á bak við 2-0
sigur ÍBV á nýliðum Víkinga í
blíðun á Hásteinsvellinum í gær,
en Eyjamenn komust upp í topp-
sæti deildarinnar með þessum
sigri. Tryggvi, sem er þríbrotinn
í andliti síðan í síðustu umferð, lék
með sérhannaða grímu í leiknum.
Hún truflaði Tryggva ekki mikið
því hann bjó til bæði mörkin í
leiknum.
Bæði mörk Eyjamanna komu í
fyrri hálfleik; Tryggvi lagði upp
fyrra markið fyrir Ian Jeffs á
15. mínútu og skoraði síðan það
seinna eftir frábæra skyndisókn
og hælsendingu frá Andra Ólafs-
syni.
Eyjamenn voru með völdin í
leiknum frá fyrstu mínútu og
Víkingarnir komust aldrei inn í
leikinn. Þeir náðu ekki upp neinu
spili því Eyjamenn pressuðu þá
hátt og stíft. Besta færi Víkinga
kom undir lok fyrri hálfleiks
þegar Baldur Ingimar átti ágætt
skot utan teigs en Abel varði vel
í markinu.
Andri Marteinsson, þjálfari
Víkinga, var að vonum ekki sátt-
ur við sína menn í leikslok. „Mér
fannst þetta aldrei verða neinn
leikur. Við veittum þeim aldrei
þá mótspyrnu sem við ætluðum
að gera,“ sagði Andri. „Það var
algjört tempóleysi, hugmyndaleysi
og kraftleysi og þá er þetta útkom-
an,“ sagði Andri ókátur.
„Ég er heilt yfir mjög sáttur
við leikinn. Þetta var mikill liðs-
heildarsigur, enginn stóð áberandi
mikið upp úr í leiknum, það voru
í raun allir góðir og enginn léleg-
ur,“ sagði Heimir Hallgrímsson,
þjálfari ÍBV.
Tryggvi Guðmundsson og Ian
Jeffs náðu einstaklega vel saman í
leiknum en þeir spiluðu vel á milli
sín og sköpuðu sér hættuleg færi.
„Hæfileikarnir hjá Ian Jeffs nýtt-
ust mjög vel í þessum leik því hann
er mjög klókur að finna svæði til
að hlaupa í. Hlaupalínurnar eru
góðar og þetta var ekta leikur
fyrir hann,“ sagði Heimir. - vsh
Eyjamenn unnu öruggan 2-0 sigur á Víkingi í blíðunni á Hásteinsvellinum í gær:
Gríman truflaði ekki Tryggva
TRYGGVI GUÐMUNDSSON Kom að
báðum mörkum ÍBV í gær þrátt fyrir að
vera þríbrotinn í andliti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓTBOLTI Grétar Sigfinnur Sigurðarson tryggði
KR 2-1 sigur á Fram á Laugardalsvellinum í
6. umferð Pepsi-deildar karla í gærkvöldi. KR
komst með þessum sigri aftur á toppinn þar
sem Eyjamenn höfðu verið í rúma þrjá klukku-
tíma eftir sigur á Víkingi úti í Eyjum.
Grétar skoraði sigurmarkið með skalla eftir
hornspyrnu Bjarna Guðjónssonar á 79. mínútu
leiksins.
Jafnræði var með liðunum lengst af og skor-
uðu liðin sitt hvort markið í fyrri hálfleik.
Fyrstur á blað var KR-ingurinn Kjartan Henry
Finnbogason en Arnar Gunnlaugsson var fljót-
ur að svara fyrir heimamenn með marki úr
vítaspyrnu. Þegar komið var fram í miðjan
seinni hálfleik náðu KR-ingar yfirhöndinni og
Grétar tryggði gestunum síðan sigurinn.
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var kampa-
kátur í leikslok eftir sigur sinna manna. „Þetta
var frábær sigur í erfiðum leik. Ánægjulegt að
landa þremur stigum. Mér fannst við eiga það
skilið en það tók langan tíma að brjóta þá á bak
aftur. Á köflum sóttu þeir hart að okkur. Við
stýrðum leiknum síðasta hálftímann. Pressuð-
um á þá og búum til fullt af fínum tækifærum.
Ég var ánægður með karakter leikmanna og
það að gefast ekki upp. Við héldum áfram þrátt
fyrir að hafa lent í örlitlu mótlæti í fyrri hálf-
leik,“ sagði Rúnar.
Framarar eru því áfram á botni deildarinnar
með eitt stig í húsi af átján mögulegum.
„Við spiluðum ágætlega í dag en fengum því
miður lítið út úr því. Við eigum í erfiðleikum
það er alveg ljóst,“ sagði Þorvaldur Örlygsson,
þjálfari Fram, en liðið hefur nú tapað þremur
leikjum í röð í Pepsi-deildinni. - ari
KR-ingar eru áfram á toppnum eftir karaktersigur á lánlausu Framliði á Laugardalsvellinum í gærkvöldi:
Grétar skallaði KR aftur upp í toppsætið
SKALLAÐI KR Á TOPPINN Grétar Sigfinnur Sigurðarson
fagnar sigurmarki sínu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Valsmenn unnu frábæran
sigur, 2-0, gegn Íslandsmeisturum
Breiðabliks í sjöttu umferð Pepsi-
deildar karla í knattspyrnu, en
leikurinn fór fram að Hlíðarenda
í gærkvöldi. Matthías Guðmunds-
son og Hörður Sveinsson skoruðu
sitt markið hvor fyrir Valsmenn í
leiknum, en þeir hafa verið nokk-
uð kaldir fyrir framan markið í
sumar. Spurning er hvort framherj-
ar Valsmanna eru komnir í gang.
Valsmenn mættu grimmir til
leiks og voru ekki lengi að setja
mark sitt á leikinn en eftir rúm-
lega tíu mínútna leik skoraði
Matthías Guðmundsson fyrsta
mark leiksins.
Blikar voru eilítið vankaðir
eftir markið og voru nokkuð lengi
að komast í takt við leikinn, en
smám saman byrjuðu þeir að spila
sinn leik og jöfnunarmarkið virt-
ist liggja í loftinu. Í síðari hálfleik
fengu gestirnir mörg góð tækifæri
til að jafna metin en lukkudísirnar
voru ekki með þeim að þessu sinni.
Valsmenn beittu öflugum
skyndisóknum og sköpuðu einn-
ig góð marktækifæri, en annað
mark Valsmanna kláraði leikinn
gjörsamlega. Ingólfur Sigurðs-
son, leikmaður Vals, náði lag-
legu skoti að marki Blika, boltinn
stefndi samt sem áður framhjá en
Hörður Sveinsson, leikmaður Vals,
var réttur maður á réttum stað og
stýrði knettinum í netið. Frábær
sigur hjá Hlíðarendapiltum, sem
virðast vera komnir aftur á beinu
brautina.
„Eftir sex umferðir erum við
fimm stigum á undan Íslands-
meisturunum, það er vel gert af
okkar hálfu,“ sagði Kristján Guð-
mundsson, þjálfari Vals, eftir leik-
inn.
„Við vörðum af kappi í kvöld
og héldum hreinu í fjórða leikn-
um í sumar, en góður varnarleik-
ur skilaði okkur þessum sigri. Ég
er heilt yfir virkilega sáttur við
frammistöðuna hjá leikmönnunum
í leiknum í kvöld. Markmið okkar
eru mörg hver að nást og ég er
bara virkilega sáttur við hvernig
sumar ið hefur byrjað hjá liðinu.
Það væri ofboðslega gaman að
vera í toppbaráttunni í allt sumar
og jafnvel koma einhverjum á
óvart,“ sagði Kristján.
„Það sem réði kannski úrslitum
í kvöld var einbeitingarskortur hjá
mínum drengjum,“ sagði Ólafur
Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks,
eftir leikinn í gær.
„Valsmenn voru góðir í ákveðn-
um atriðum, vörðust vel sem lið
og nýttu þau færi sem þeir fengu
einnig vel. Við vorum líka fínir í
ákveðnum atriðum en það sem
stendur eftir er að þeir unnu leik-
inn,“ sagði Ólafur, sem segir Blika-
liðið vera að fá á sig allt of mörg
mörk.
„Við sem þjálfarar þurfum að
kíkja á hvað er að fara úrskeiðis
og reyna að laga það. Núna verð-
um við að klemma rasskinnarn-
ar aðeins saman og fara að halda
markinu hreinu, það gengur ekki
að við fáum á okkur mark í hverj-
um einasta leik.“ - sáp
Fimm stigum á undan meisturunum
Valsmenn unnu 2-0 sigur á Íslandsmeisturum Blika á Vodafone-vellinum í gær. Valsmenn hafa því unnið
fjóra af fyrstu sex leikjum sínum í sumar og eru nú aðeins tveimur stigum á eftir toppliði KR.
KOM VAL Í 1-0 EFTIR TÍU MÍNÚTNA LEIK Matthías Guðmundsson sést hér fagna
marki sínu sem kom Val á bragðið á móti Blikum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það væri ofboðslega
gaman að vera í
toppbaráttunni í allt sumar
og jafnvel koma einhverjum
á óvart.
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
ÞJÁLFARI VALS