Fréttablaðið - 15.06.2011, Qupperneq 4
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR4
GENGIÐ 14.06.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,0103
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,54 115,08
187,97 188,89
165,33 166,25
22,162 22,292
21,163 21,287
18,158 18,264
1,4274 1,4358
183,59 184,69
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
3 TAPAS AÐ EIGIN VALI OG LÉTTVINSGLAS
miklir tapasréttir í Mat
u úrvali.mikl
w.esjabar. siww
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
790 kr. GILDIR Í 24 TÍMA
1.980 kr.
Verð
60%
Afsláttur
1.190 kr.
Afsláttur í kr.
PI
PA
R\
BW
A
TB
P
•
SÍ
A
•
11
155
31
DÓMSMÁL Jón Ásgeir Jóhannes-
son segir að forsvarsmenn Kaup-
þings hafi teiknað upp viðskipta-
fléttuna sem fól í sér að Baugur
keypti hlutabréf í sjálfum sér
fyrir fimmtán milljarða af stjórn-
endum félagsins. Þetta kemur
fram í greinargerð hans í skaða-
bótamáli sem skiptastjóri Baugs
hefur höfðað vegna milljarðanna
fimmtán.
Fléttan gekk undir nafninu
Project Polo og var liður í stærri
endur skipulagningu Baugs, sem
kölluð var Project Fox.
„Frumkvæðið kom frá stjórn-
endum Kaupþings og var kynnt
af þáverandi forstjóra bankans,
Hreiðari Má Sigurðssyni,“ segir í
greinargerð Jóns Ásgeirs, sem er
skrifuð af lögmanni hans, Gísla
Guðna Hall.
Fléttan gekk út á að Kaupþing
lánaði félaginu 1998 ehf. 30 millj-
arða til að kaupa Haga af Baugi
á miklu yfirverði, að sögn Jóns
Ásgeirs með því skilyrði að fimm-
tán milljarðar af söluverðmæt-
inu yrðu nýttir til að kaupa bréf
í Baugi af félögum stjórnarmann-
anna, sem aftur voru móðurfélög
1998 ehf. Hið háa kaupverð hafi
byggst á því eðli samninganna.
Að því er segir í greinargerð-
inni fluttust með þessu móti fimm-
tán milljarða skuldbindingar af
Baugi og á félög stjórnarmann-
anna. Þetta hafi verið nauðsynleg
björgunaraðgerð til að Kaupþing
myndi ekki gjaldfella lán á Baug.
Enn fremur hafi eingöngu verið
um skuldatilfærslur að ræða en
ekkert reiðufé hafi skipt um hend-
ur. Með þeim rökstuðningi er full-
yrt í greinargerð Jóns Ásgeirs að
skaðabótamálið
sé ekki reist á
neinum grunni.
Baugur hafi
engu fé tapað
og eigendur
félaganna ekk-
ert grætt á við-
skiptunum.
Þvert á móti
hafi Baugur
hagnast og Jón
Ásgeir og hans fólk borið af þeim
tjón.
Í greinargerðinni segjast Jón
Ásgeir og lögmaður hans ekki
gera athugasemd við það að honum
sé einum stefnt í málinu, þótt þeir
telji að fyrir þeirri ákvörðun séu
í raun engin rök, enda beri hann
engu meiri ábyrgð á málinu en
aðrir stjórnarmenn sem allir hafi
samþykkt gerninginn. Enn fremur
hafi ákvörðunin verið borin undir
hluthafafund og samþykkt þar án
mótmæla.
Skiptastjóri hefur þegar höfðað
riftunarmál vegna sömu ráðstaf-
ana á hendur félögunum sem bréf-
in voru keypt af og krefst af þeim
fimmtán milljarða. Þetta er gagn-
rýnt í greinargerð Jóns Ásgeirs
og bent á að hafi einhver
verðmæti runnið til félag-
anna sé skiptastjóranum
í lófa lagið að sækja þau
þangað með riftun. Hins
vegar sé engum slíkum
verðmætum til að dreifa.
Enn fremur er bent á
í greinargerðinni að ef
bæði málin næðu fram
að ganga, og fimmtán
milljarðar fengjust bæði
frá félögunum fimm og úr
skaðabótamálinu gegn Jóni
Ásgeiri, stæði þrotabúið uppi með
30 milljarða þrátt fyrir að skipta-
stjórinn haldi því fram að tjónið
hafi aðeins verið 15 milljarðar.
Ef marka má greinargerðina
kemur þó tæpast til þess, enda
segir þar að Jón Ásgeir hafi
„ekki nokkur tök á að greiða
umkrafða fjárhæð“ enda hafi
eignir félaga í hans eigu nú
brunnið upp. „Málssókn
þessi er óvenjuleg og ómak-
leg,“ segir enn fremur, enda
hafi Gaumur stutt við Baug
alla tíð. Markmið Gaums
og eiganda hans geti því
ekki hafa verið að skaða
Baug. stigur@frettabladid.is
HREIÐAR MÁR
SIGURÐSSON
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON Hefur ekki
nokkur tök á að greiða þrotabúi Baugs fimmtán
milljarða, að því er segir í greinargerð hans.
Skrifstofu fyrirtækisins á Túngötu var lokað í
byrjun árs 2009.
Segir Kaupþingsmenn hafa
teiknað upp „Project Polo“
Jón Ásgeir Jóhannesson segir fráleitt að Baugur hafi tapað á fléttunni sem skiptastjóri telur að hafi kostað
félagið fimmtán milljarða. Viðskiptin hafi verið að frumkvæði Kaupþings til að forðast gjaldfellingu lána.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
24°
23°
19°
26°
23°
18°
18°
23°
19°
28°
27°
37°
19°
22°
18°
17°
Á MORGUN
5-10 m/s.
17. JÚNÍ
3-8 m/s.
4
4
6
5
5
8
8
8
8
10
14
5
10
8
12
6
9
8
9
4
6
5
6
6 9
12
13
12
14
10
10
6
SVIPAÐ ÁFRAM
Norðaustlægar
áttir verða við lýði
næstu dagana með
þokkalega björtu
og mildu veðri
syðra en norðan til
verður skýjað og
svalara. Spáin fyrir
17. júní er fín fyrir
Suður- og Vestur-
land, en einhver
væta er í kort-
unum um landið
norðanvert.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
NÁTTÚRAN Rjúpum fækkaði um nær
allt land á milli áranna 2010 og 2011
og nemur meðalfækkun rjúpna
á öllum talningarsvæðum um 26
prósentum. Mat á veiðiþoli stofns-
ins mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar
mælinga á varpárangri, afföllum
2010 og 2011 og veiði 2010.
Fækkunin varð sérstaklega
hröð á Norðausturlandi, þar sem
stofninn helmingaðist á milli ára.
Á Suður-, Suðvestur- og Vestur-
landi virðist stofninn hafa verið
í hámarki 2009 og talningar sýna
kyrrstöðu á milli 2010 og 2011. Á
sex af átta talningar svæðum í frið-
landinu á Suðvesturlandi var kyrr-
staða eða aukning á milli ára.
Rjúpur voru taldar á 43 svæðum
í öllum landshlutum. Alls voru
taldir 1.285 karrar, sem eru um 2%
af áætluðum heildarfjölda karra í
landinu samkvæmt nýlegu stofn-
stærðarmati. Talið var á um 3%
af grónu landi neðan 400 metra
hæðar línu. Talningarnar voru
unnar í samvinnu við allar nátt-
úrustofur landsins, Þjóðgarðinn á
Þingvöllum, Vatnajökulsþjóðgarð,
Fuglavernd, Skotvís og áhugamenn.
Um 65 manns tóku þátt í talning-
unni að þessu sinni. Náttúruleg
lengd stofnsveiflu íslensku rjúp-
unnar er um ellefu ár. Stofninn var
í hámarki vorið 1998 og aftur tólf
árum síðar, árið 2010. - kóp
Rjúpnastofninn á Norðausturlandi helmingast á milli ára:
Rjúpum fækkar um 26 prósent
RJÚPUR Rjúpum fækkar um nær allt
land á milli áranna 2010 og 2011. Mat
á veiðiþoli stofnsins mun liggja fyrir í
ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
VINNUMARKAÐUR Alþýðusamband
Íslands, Ríkisskattstjóri og Sam-
tök atvinnulífsins kynntu í gær
átak til eflingar góðra atvinnu-
hátta sem sérstaklega er beint
gegn svartri atvinnustarfsemi.
Kveðið var á um slíkt átak í
nýgerðum kjarasamningum.
„Það er mat Ríkisskattstjóra
að svört atvinnustarfsemi hafi
færst hér í aukana á síðustu miss-
erum og styðja SA og ASÍ það
mat,“ segir Skúli Eggert Þórðar-
son ríkisskattstjóri. Átakið ber
yfirskriftina: Leggur þú þitt af
mörkum? Því er ætlað að hvetja
atvinnurekendur og launafólk
til að standa rétt að samningum
sín á milli. Skúli segir að 12 til
14 einstaklingar muni fara út í
nokkur hundruð lítil og meðal-
stór fyrirtæki á næstu þremur
mánuðum og verði kröftunum
beint að þeim atvinnugreinum
þar sem líkur á svartri atvinnu-
starfsemi eru taldar mestar. - mþl
Taka höndum saman:
Átak gegn
svartri vinnu
DANMÖRK Lögreglan í Kaupmanna-
höfn fann eitt og hálft kíló af
sprengiefnum ásamt skotvopnum
og hluta af lögreglubúningum í bíl
í gær. Í bílnum var allt sem þarf
til að búa til öfluga sprengju, að
sögn lögreglunnar.
Lögreglan reynir nú að komast
að því hvað ökumaður bílsins
ætlaðist fyrir. Maðurinn er 27 ára
gamall og er frá Bröndby. Hann
er á sakaskrá en ekki fyrir brot
af þessu tagi. Hann hefur neitað
að segja frá því hvers vegna efnin
voru í bíl hans. - þeb
Stöðvaður í Kaupmannahöfn:
Með sprengiefni
og skotvopn
VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi á
Íslandi mældist 7,4 prósent í apríl
og lækkaði um 0,7 prósent milli
mánaða. Þá er atvinnuleysið 0,9
prósentum minna en á sama tíma
í fyrra.
Algengt er að atvinnuástandið
batni milli mars og apríl vegna
árstíðabundinna þátta, að því er
segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
Atvinnuleysi á höfuðborgar-
svæðinu er 8,2 prósent en 6,1 pró-
sent á landsbyggðinni. Mest er
atvinnuleysið á Suðurnesjum eða
12,1 prósent en minnst á Norður-
landi vestra eða 3,2 prósent.
Atvinnuleysi meðal karla er
7,7 prósent en 7,1 prósent meðal
kvenna. - mþl
Færri atvinnulausir:
Atvinnuleysi 7,4
prósent í apríl