Fréttablaðið - 15.06.2011, Side 16
16 15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Á
hyggjur af því að siðgæði næstu kynslóðar fari hrakandi
eru líklega jafngamlar siðmenningunni. Þeim eldri finnst
oft innprentun góðra siða, gilda og aga hafa tekizt illa
hjá þeim yngri. Samt skrimtir mannkynið og má jafnvel
halda því fram að margt hafi skánað í aldanna rás.
Fréttir af börnum og unglingum snúast oft um einhver vanda-
mál, ógnir og hættur sem að þeim steðja. Fjölmiðlar eru yfir-
fullir af fréttum um kynferðisbrot gegn börnum, áfengisdrykkju
og fíkniefnaneyzlu ungmenna,
námsörðugleika, brottfall úr
skólum, geðraskanir, offitu- og
átröskunar vanda, ólæti og afbrot.
Þess vegna er líka full ástæða
til að taka eftir góðu fréttunum.
Í Fréttablaðinu í gær voru tvær
mjög góðar fréttir af unglingum
á framhaldsskólaaldri.
Önnur var af niðurstöðum evrópsku vímuefnarannsóknarinnar
ESPAD. Samkvæmt þeim hefur áfengisneyzla ungmenna snar-
minnkað undanfarin sextán ár. Í fyrra sögðust 24 prósent 15 til 16
ára unglinga hafa orðið drukkin mánuðinn áður en spurt var, en
árið 1994 sögðust 64% hafa fundið á sér nýlega. Þá kom fram að
aðgangur unglinga að áfengi hefði minnkað mjög á þessu árabili.
Hin fréttin var af nýrri skýrslu rannsóknamiðstöðvarinnar Rann-
sókna og greiningar við Háskólann í Reykjavík, sem sömuleiðis
byggist á ýtarlegri könnun meðal unglinga og samanburði við eldri
kannanir. Hann leiðir meðal annars í ljós að áfengisneyzla hefur
minnkað um tíu prósent á fjórum árum og reykingar um þriðjung
hjá 16 og 17 ára framhaldsskólanemum. Þá hreyfa unglingarnir sig
meira en áður og verja meiri tíma með foreldrum sínum.
Nákvæm gögn vantar um ástandið á foreldrum þessara barna
þegar þeir voru á sama aldri en ýmislegt bendir til að ungmennin
taki foreldrum sínum jafnvel fram í hollu líferni og bindindissemi.
Það er auðvitað ekki bara þeim sjálfum að þakka; þrotlaust for-
varnastarf þeirra sem eldri eru virðist hafa borið nokkurn árangur.
Og börn eyddu varla meiri tíma með foreldrum sínum nema af því
að foreldrarnir gefa sér þann tíma í samveruna.
Í könnun Rannsókna og greiningar er ýmislegt sem telja má
neikvætt; til dæmis kemur fram að lestur 16 og 17 ára krakka á
bæði bókum og blöðum hefur minnkað talsvert á fjórum árum. Jón
Sigfússon, framkvæmdastjóri rannsóknamiðstöðvarinnar, segir við
Fréttablaðið að það kunni að endurspegla að lestur unglinga hafi
færzt yfir á netsíður og ný raftæki á borð við iPad. Það er áreiðan-
lega rétt hjá Jóni. Þessi kynslóð er líkleg til að lesa meira á tölvuskjá
en á pappír og það þarf alls ekki að vera slæmt, ef innihaldið er upp-
byggilegt. En kannanir sem mæla hagi ungmenna þurfa auðvitað
líka að taka mið af slíkum breytingum í samfélagsháttum.
Svo mikið er víst að þeir sem eru nú í framhaldsskóla kunna betur
á tölvur og ýmis tól en foreldrar þeirra flestra geta látið sig dreyma
um að gera. Þeir eru með opnari huga og víðari sjóndeildarhring og
eiga fleiri tækifæri. Sennilega þarf ekki að hafa of miklar áhyggjur
af þeim.
HALLDÓR
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Tímabundið ákvæði í lögum um greiðslu-aðlögun einstaklinga, þess efnis að
frestun greiðslna hefjist við móttöku
umsóknar, fellur niður hinn 1. júlí næst-
komandi. Ljóst er að Alþingi mun
ekki framlengja gildistíma þessa
ákvæðis og mun það því skipta
töluverðu máli fyrir skuldara
hvort þeir sækja um greiðslu-
aðlögun fyrir eða eftir næstu
mánaðamót. Breyting þessi hefur
engin áhrif á þær umsóknir um
greiðsluaðlögun sem berast fyrir
1. júlí.
Það að fá greiðslufrestun þýðir
að ekki má krefja skuldara eða
ábyrgðarmenn um gjaldfallnar
kröfur eða greiðslur af lánum,
ekki má gjaldfella skuldir, gera
fjárnám, framkvæma kyrrsetn-
ingu eða fá eigur seldar nauð-
ungarsölu. Kröfuhafar mega
ekki taka við greiðslum þegar
greiðslufrestun er í gildi.
Þeir sem sækja um eftir 1. júlí fá
hins vegar ekki greiðslufrestun fyrr en
umsóknin hefur verið samþykkt. Miklu
getur því skipt hvenær sótt er um greiðslu-
aðlögun og því mikilvægt fyrir þá sem telja
sig þurfa greiðslufrestun strax og telja
sig uppfylla skilyrði greiðsluaðlögunar að
sækja um greiðsluaðlögun fyrir 1. júlí.
Fjölmargar fjölskyldur eru í sárum
vegna þess að þær ráða ekki við greiðslu-
byrði skulda sinna. Mikilvægt
er að fólk leiti sér aðstoðar sem
fyrst þegar í þennan vanda er
komið, meðal annars með því að
leita til umboðsmanns skuldara.
Hægt er að leita til embættisins
með því að koma í Kringluna 1
alla daga frá kl. 9-15. Ekki þarf
að panta tíma. Einnig er hægt
að hringja á símatíma milli kl.
13-15. Færir ráðgjafar embættis-
ins veita þeim sem til embættis-
ins leitar ókeypis aðstoð við að
finna það úrræði sem hentar.
Mikill meirihluti afgreiddra
umsókna um greiðsluaðlögun
hefur verið samþykktur, eða
790 umsóknir af þeim 950 sem
afgreiddar hafa verið. Um 8
prósentum umsókna hefur verið
synjað og um 9 prósent hafa verið aftur-
kallaðar að frumkvæði umsækjenda
sjálfra. Að auki hafa verið afgreidd um
500 önnur greiðsluerfiðleikamál, þar sem
leitað er vægari lausna en felast í greiðslu-
aðlögun.
Ekki frestun greiðslna nýrra umsókna
Greiðslu-
aðlögun
Ásta S.
Helgadóttir
umboðsmaður
skuldara
Kröfuhafar
mega ekki
taka við
greiðslum
þegar
greiðslu-
frestun er í
gildi.
TÍMAMÓTATÓNLEIKAR
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR GUSGUS VERÐA Á
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 18. júní.
NÝJA PLATAN ARABIAN HORSE HEFUR FENGIÐ
TOPPDÓMA Á ÍSLANDI OG ERLENDIS OG ÞETTA
ER ÞVÍ EINN AF TÓNLISTARVIÐBURÐUM ÁRSINS.
STÓRVIÐBURÐUR Í ÍSLENSKRI TÓNLIST Í BEINNI
ÚTSENDINGU Á LÍFINU Á VÍSI.
Í BEINNI Á LÍFINU Á VÍSI
Grænu áherslurnar
Yngsti stjórnmálaflokkurinn, Hægri
græn, heldur upp á eins árs afmæli
17. júní. Líkt og við slík tilefni er öllu til
tjaldað og hefur einn forsvarsmanna
flokksins, Guðmundur Franklín Jóns-
son, reifað helstu stefnumál flokksins.
Þar má nefna lækkun
eldsneytisskatta og að
strax verði hafnar stór-
framkvæmdir í Helgu-
vík, á Grundartanga og
Bakka við Húsavík.
Skattalækkanir eru
þekkt stefnumál hægri-
manna, en það verður
að viðurkennast að stór-
framkvæmdirnar ríma
heldur illa við það sem hingað til hefur
verið kennt við grænar áherslur.
Útburðurinn
Ungir sjálfstæðismenn hyggjast
verðlauna einn af spámönnum sínum
og veita frelsisverðlaun kennd við
Kjartan Gunnarsson. Það er allt gott
og blessað, en óneitanlega
vekur athygli að í tilkynningu
frá þeim segir að Kjartan
hafi verið ötull við að
„bera út hugmyndir frjáls-
hyggjunnar“. Hefðu það ekki
átt að vera vinstrimenn
sem fögnuðu því að
frjálshyggjan væri
borin út?
Hvaða ókláruðu verk?
Trúarleiðtoginn Karl Sigurbjörnsson
er umdeildur maður þessa dagana.
Þjáðar konur leituðu til Karls í von um
sálgæslu eftir að hafa sakað trúarleið-
toga Karls á þeim tíma, Ólaf Skúlason,
um kynferðislega áreitni. Ljóst er að
Karl gerði mistök og erfitt er að skilja
það öðruvísi en að hagsmunir trúar-
söfnuðarins hafi verið settir ofar
hagsmunum kvennanna. Karl talar
sjálfur um vantraust á kirkjuna, en
tekur jafnframt fram að hann hlaupi
ekki frá ókláruðu verki. Sá grunur
kann að læðast að mönnum að það
verk snúi að æru Karls sjálfs
en ekki söfnuðar hans.
kolbeinn@frettabladid.is
Er næsta kynslóð jafnvel skárri en foreldrarnir?
Góðar fréttir af
unglingunum