Fréttablaðið - 15.06.2011, Side 20
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR 15. júní
1829 Dómur fellur í Hæstarétti í Kambsránsmálinu þegar sjö
menn eru dæmdir til hýðingar.
1926 Lög eru staðfest um almannafrið á helgidögum þjóðkirkj-
unnar.
1978 Hussein Jórdaníukonungur kvænist Bandaríkjakonunni
Lisu Halaby, sem í kjölfarið fær nafnbótina Noor drottning.
1952 Byggðasafnið í Glaumbæ í Skagafirði er opnað almenn-
ingi.
1981 Garðar Cortes óperusöngvari hlýtur bjartsýnisverðlaun
Bröstes þegar þau eru veitt í fyrsta sinn.
1985 Minnisvarði um Úlfljót lögsögumann er afhjúpaður að Bæ
í Lóni.
1987 Fyrsta uppboðið fer fram á fiskmarkaðnum í Hafnarfirði.
SÖNGKONAN ELLA FITZGERALD (1918-1996) lést á þessum degi.
„Það skiptir ekki máli hvaðan þú kemur, heldur hvert þú ert að fara. Gefstu ekki upp á
draumum þínum, því þar sem ást og innblástur eru getur ekkert farið úrskeiðis.“
„Mamma var mikill örlagavaldur í
lífi mínu,“ segir Ísfirðingurinn Elsa
Haralds dóttir, spurð hví hún valdi
hárgreiðslu að ævistarfi, en í dag
fagnar hún 40 ára afmæli hárgreiðslu-
stofu sinnar Salon VEH.
„Eftir landspróf ætlaði ég í
kennara nám en þá hafði mamma
beðið Helgu Jóakimsdóttur hár-
greiðslumeistara að taka mig sem
nema. Eftir sveinspróf hélt ég svo
utan til hárgreiðslustarfa í Vínarborg,
en þá vildi mamma fá mig heim og
hafði sigtað út nýtt verslunarhúsnæði
í Glæsibæ þar sem hún hvatti mig ein-
dregið til að opna hárgreiðslustofu,“
segir Elsa sem þá opnaði margfræga
stofu sína í Glæsibæ, með nafni sem
virkar eilítið heimsborgaralegt.
„Salon VEH hljómar kannski
útlenskt og fínt, en er í raun hvers-
dagslegt. Í því felst nafnið mitt, Val-
björg Elsa Haraldsdóttir og í Glæsibæ
rak ég bæði snyrti- og hárgreiðslu-
stofu sem orðið salon stóð fyrir í þá
daga,“ segir Elsa sem færði út kví-
arnar og opnaði Salon VEH í Húsi
verslunar innar 1984.
„Tímabil mín í háriðn hafa varað tíu
ár í senn. Á áratugnum 1970-80 vann
ég marga góða og fallega titla í hár-
greiðslukeppnum heima og erlendis,
og áratuginn á eftir gerðist ég einn
af stofnendum Intercoiffure, en það
eru alþjóðleg samtök hárgreiðslufólks
sem standa fyrir góðum orðstír og
framúrskarandi árangri. Ég var for-
seti þess til tíu ára hér heima, á sama
tíma og ég rak þrjár stofur og var í
innflutningi. Upp úr 1990 var ég svo
komin í aðalstjórn alþjóðlegu sam-
takanna, þar sem ég gegndi ýmsum
embættum til ársins 2008, en stærst
þeirra var listrænn ráðunautur,“ segir
Elsa sem enn á í vændum kaflaskipti
á Salon VEH.
„Ég hef haft mikinn áhuga á því
hvað viðskiptavinurinn gerir við hár
sitt eftir að hann kveður fagmanninn;
hvernig hann blæs hár sitt, mundar
burstann og hvað hann kann, en mín
skoðun er sú að fólk þurfi að njóta
leiðsagnar áfram eftir að heim kemur.
Því er ég nú að láta útbúa nýtt rými á
stofunni þar sem fólk getur valið sér
allar vörur sem viðkoma hár umhirðu,
en nýtur einnig persónulegrar ráð-
gjafar fagfólks sem þjónustar við-
skiptavininn skrefinu lengra þannig
að hann geti óhikað séð um hár sitt
heima á baðgólfi fyrir ólík tækifæri
lífs síns,“ segir Elsa full tilhlökkunar.
„Á þessum fjörutíu árum hef ég
verið svo lánsöm að sjá hvað ein iðn-
grein getur veitt manni mikið. Það
hefur gert mig hamingjusama að
hafa snert allar hliðar hennar og
starfað með samferðafólki sem hefur
í raun og veru haft áhrif á mig og á
þátt í því hvar ég er stödd í dag,“ segir
Elsa sem er ekki síður áhrifavaldur í
lífi íslensks hárgreiðslufólks, því hún
hefur útskrifað yfir 100 nemendur
sem eru enn að stærstum hluta í starfi.
„Frá fyrstu tíð hef ég haft gott og
hæfileikaríkt starfsfólk og alltaf ríkt
mikil vinátta og trygglyndi á Salon
VEH. Á sama tíma hef ég ávallt verið
kröfuhörð og kennt á að hægt sé að
gera betur, um leið og ég hef brýnt
fyrir nemum mínum að kynnast við-
skiptavinum sínum og því hvernig
þeir vilja hafa hár sitt. Það er bæði
lykill að velgengni og dýrmætt vega-
nesti fyrir fagmanninn hvert sem
hann fer,“ segir Elsa sem eftir allt
saman fékk útrás fyrir kennaradraum
sinn í hárinu.
„Mamma hafði því rétt fyrir sér, og
sem kennari í háriðn hef ég verið tals-
maður hennar í fjörtíu ár og vona að
framtíðarfólk í íslenskri háriðn hugsi
alltaf stórt og vel um fag sitt.“
Elsa fer daglega í kaffisopa yfir á
Salon VEH en vinnur sjálf á heildsölu
sinni í sama húsi.
„Ég er enn í leiðsögn og ráðgjöf í
starfi mínu þar. Víst er oft beðið um
mig á gólfinu og hver veit hvað verð-
ur? Það getur vel verið að ég taki dag
og dag við stólinn þegar fram líða
stundir, því mér finnst gaman að hafa
hendur í hári viðskiptavina og eiga við
þá yndisleg samskipti, sem ég sakna
mjög. Margir hafa fylgt stofunni
allan tímann og helst vildi ég hitta þá
í hvert sinn sem þeir koma. Á Salon
VEH hefur alltaf verið vel tekið á móti
öllum, en því miður hafa ekki allir
upplifað að fara á góða stofu og láta
sinna sér. Það er notaleg upplifun og
á hárgreiðslustofum eiga allir að fá á
tilfinninguna að þeir séu einstakir.“
thordis@frettabladid.is
ELSA HARALDSDÓTTIR HÁRGREIÐSLUMEISTARI: FAGNAR 40 ÁRUM SALON VEH
Saknar yndislegra samskipta
Á SALON VEH Í 40 ÁR Elsa Haraldsdóttir hárgreiðslumeistari fór eftir sveinspróf til Sviss þar sem hún lærði frönsku meðfram hárgreiðslustörfum
og ól með sér draum um að starfa í hátískuborginni París. Óeirðirnar 1968 gerðu drauminn að engu og hún fór til Vínar í staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AFMÆLI
SIGURJÓN
SIGHVATS-
SON
kvikmynda-
fram-
leiðandi er
59 ára.
PÉTUR
GUNNARS-
SON
rit höfundur
er 64 ára.
SIGRÚN
MAGNÚS-
DÓTTIR
fyrrverandi
borgar-
fulltrúi er
67 ára.
FINNUR
GEIR BECK
fyrrverandi
fréttamaður
er 36 ára.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Jakobsdóttir
Hverahlíð 20, Hveragerði,
áður til heimilis að Dalbraut 17, Bíldudal, lést
miðvikudaginn 8. júní á Landspítalanum. Útför fer fram
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. júní kl. 13.00.
Ásgeir M. Kristinsson Guðjóna Kristjánsdóttir
Guðbjörg Kristinsdóttir
Birna Kristinsdóttir
Jóna Elín Kristinsdóttir Guðbjartur Ólafsson
Guðmundur Kristinsson Guðbjörg Benjamínsdóttir
Kristján Hörður Kristinsson Valdís Valdimarsdóttir
Helga Kristinsdóttir Þórarinn Viðar Hjaltason
ömmu- og langömmubörn
Okkar ástkæri
Friðrik Jens Friðriksson
fyrrv. héraðslæknir, Smáragrund 4,
Sauðárkróki,
er látinn. Útförin verður auglýst síðar.
Oddný Finnbogadóttir Björn Friðrik Björnsson
Emma Sigríður Björnsdóttir Iain D. Richardson
Alma Emilía Björnsdóttir og börn.
Eiginmaður minn,
Hörður Sigurgrímsson
bóndi í Holti,
er látinn.
Anna Guðrún Bjarnardóttir
Alexandrína, drottning Danmerkur og Íslands,
lagði hornstein að byggingu Landspítala
Íslands við hátíðlega athöfn að viðstöddum
miklum mannfjölda fyrir 85 árum.
Til að minnast þeirra tímamóta þegar konur
fengu kosningarétt 1915 ákváðu reykvískar
konur að hefja fjársöfnun til að greiða fyrir
stofnun spítala fyrir landið allt í Reykjavík.
Sjóðirnir urðu reyndar tveir: Landspítalasjóður
Íslands sem var byggingarsjóður og Minningar-
gjafasjóður Landspítala Íslands sem átti að
styrkja sjúklinga í fjárhagslegum vandræðum.
Fimmtán ár liðu frá því byrjað var að safna
fjármunum fyrir byggingu Landspítala Íslands
þar til elsta hús spítalans við Hringbraut var
tekið í notkun.
Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins,
teiknaði bygginguna, sem reis á árunum 1925
til 1930.
Fyrsti sjúklingurinn var lagður inn á Land-
spítalann 20. desember 1930 og við þann
atburð miðast afmælisdagur spítalans.
ÞETTA GERÐIST: 15. JÚNÍ 1926
Hornsteinn lagður að Landspítala