Fréttablaðið - 15.06.2011, Síða 23

Fréttablaðið - 15.06.2011, Síða 23
Reynsluboltarnir Knútur Bjarnason, Hans Henttinen og Sigursteinn Ingvar Rúnarsson taka vel á móti viðskiptavinum. MYND/GVA Persónuleg þjónusta, vandaðar vörur og gott verð eru kjörorð Golfskálans Mörkinni 3. Fyrir skemmstu bættist ný versl- un við flóru golfverslana lands- ins, Golfskálinn í Mörkinni 3. Eig- endurnir eru allir reynslu boltar í golfi, þeir Steinþór Jónasson, Ingibergur Jóhannsson og Hans Henttinen, sem var einn eigenda Nevada Bob á sínum tíma. Hann hefur fyrir þeim orðið. „Okkar mottó er góð þjónusta, vara og verð,“ segir Hans og getur þess að eigendurnir hafi í upphafi ákveðið að einskorða sig við litla verslun og ódýran rekstur til að geta haldið álagningunni í lág- marki. „Sú ákvörðun virðist hafa hitt í mark þar sem viðbrögð við- skiptavinanna hafa ekki látið á sér standa, ummælin eru jákvæð og salan fer vel af stað.“ Hann tekur fram að þótt verslun in sé ef til vill ekki stór í fermetrum talið sé vöruúrvalið ágætt. „Hérna er allt til alls í golfið, flest stóru merkin og bún- aður við allra hæfi. Auk þess að- stoðum við kylfinga við val á kylf- um og leyfum þeim að spreyta sig með þær í sérstöku æfingarými í búðinni,“ segir Hans og lætur þess getið að þeir séu jafnframt öflugir í merktum varningi fyrir golfklúbba og fyrirtæki. Hvernig stóð á því að þið fóruð út í rekstur? „Brennandi golf- áhugi. Aðdragandinn var reynd- ar stuttur. Þetta var bara ákveðið um áramótin og svo farið af stað,“ segir Hans, sem snýr nú aftur í smásölubransann eftir fimm ára hlé. „Ég var orðinn þreyttur á þessum bransa fyrir fimm árum og við seldum reksturinn á Nevada Bob sem stóð í blóma. Golfáhuginn dvínaði þó aldrei og leiddi okkur félagana svo saman út í þennan rekstur. Enda er ég búinn að fá mína hvíld og mæti tvíelfdur til leiks.“ Það er hverju orði sannara þar sem Hans og félagar ætla að standa fyrir golfmóti undir merkj- um Golfskálans í næsta mánuði. „Þetta verður stórt og flott mót hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ sem við ætlum að gera að árlegum viðburði,“ segir hann, en skrán- ing fer fram á heimasíðu Golfsam- bands Íslands á slóðinni www.golf. is. Nánari upplýsingar um Golf- skálann er hins vegar að finna á golfskalinn.is og á facebook. Góð þjónusta og betra verð Græjufíklar koma ekki að tómum kofanum í Golfskálanum Mörk- inni 3. Nýlega tók verslunin til sölu fjarlægðarmælinn ParGate PG 1500 CX sem hefur hlotið veru- lega góðar undirtektir, að sögn Hans Henttinen eins eigenda Golf- skálans. „Fólk er verulega ánægt með þessa nýjung sem kemur frá Sví- þjóð enda með því fullkomnara sem fæst um þessar mundir,“ segir Hans og lýsir sérstöðu fjar- lægðarmælisins nánar. „Hann er til dæmis búinn sér- stökum eiginleika sem kallast SmartScan og kemur í veg fyrir að hlutir úr umhverfi trufli þegar verið er að mæla í flagg.“ Hans bendir á að hefðbundið Scan geri notanda kleift að ýta einu sinni á takkann á mælinum og mæla ýmsa hluti í einni skoðun og fá mismunandi lengdir. „Hins vegar er hægt að ýta tvisvar sinnum á takkann á ParGate PG 1500 CX og fá ávallt stystu mælinguna í hvert sinn. Þetta er mjög handhægt.“ Hans tekur fram að ParGate PG 1500 CX mæli frá tólf upp í 950 metra með +/- 1 meter í skekkju á innan við 270 metrum. Einn- ig stækki PG 1500 CX sjöfalt á meðan flestir fjarlægðarmælar eru með fimm til sexfalda stækk- un. Kíkirinn vegur aðeins 200 grömm og fer vel í hendi. „Svo er liturinn líka skemmtilegur og áberandi og því engin hætta á að hann týnist,“ segir Hans kíminn. Nánari upplýsingar á www.golf- skalinn.is. Frábær viðbót í græjusafnið ParGate PG 1500 CX er búinn ýmsum góðum eiginleikum. • Ecco Street skór Verð frá 18.800 kr. • Titleist ProV1 (dúsín) Verð 9.800 kr. • Rife pútterar Verð frá 16.400 kr. • Clicgear kerrur Verð 37.800 kr. Mörkin 3 | Sími 578 0120 | www.golfskalinn.is GOLF

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.