Fréttablaðið - 15.06.2011, Page 23
Reynsluboltarnir Knútur Bjarnason, Hans Henttinen og Sigursteinn Ingvar Rúnarsson taka vel á móti viðskiptavinum. MYND/GVA
Persónuleg þjónusta,
vandaðar vörur og gott
verð eru kjörorð Golfskálans
Mörkinni 3.
Fyrir skemmstu bættist ný versl-
un við flóru golfverslana lands-
ins, Golfskálinn í Mörkinni 3. Eig-
endurnir eru allir reynslu boltar
í golfi, þeir Steinþór Jónasson,
Ingibergur Jóhannsson og Hans
Henttinen, sem var einn eigenda
Nevada Bob á sínum tíma. Hann
hefur fyrir þeim orðið.
„Okkar mottó er góð þjónusta,
vara og verð,“ segir Hans og getur
þess að eigendurnir hafi í upphafi
ákveðið að einskorða sig við litla
verslun og ódýran rekstur til að
geta haldið álagningunni í lág-
marki. „Sú ákvörðun virðist hafa
hitt í mark þar sem viðbrögð við-
skiptavinanna hafa ekki látið á sér
standa, ummælin eru jákvæð og
salan fer vel af stað.“
Hann tekur fram að þótt
verslun in sé ef til vill ekki stór í
fermetrum talið sé vöruúrvalið
ágætt. „Hérna er allt til alls í
golfið, flest stóru merkin og bún-
aður við allra hæfi. Auk þess að-
stoðum við kylfinga við val á kylf-
um og leyfum þeim að spreyta sig
með þær í sérstöku æfingarými
í búðinni,“ segir Hans og lætur
þess getið að þeir séu jafnframt
öflugir í merktum varningi fyrir
golfklúbba og fyrirtæki.
Hvernig stóð á því að þið fóruð
út í rekstur? „Brennandi golf-
áhugi. Aðdragandinn var reynd-
ar stuttur. Þetta var bara ákveðið
um áramótin og svo farið af stað,“
segir Hans, sem snýr nú aftur
í smásölubransann eftir fimm
ára hlé. „Ég var orðinn þreyttur
á þessum bransa fyrir fimm
árum og við seldum reksturinn
á Nevada Bob sem stóð í blóma.
Golfáhuginn dvínaði þó aldrei og
leiddi okkur félagana svo saman
út í þennan rekstur. Enda er ég
búinn að fá mína hvíld og mæti
tvíelfdur til leiks.“
Það er hverju orði sannara
þar sem Hans og félagar ætla að
standa fyrir golfmóti undir merkj-
um Golfskálans í næsta mánuði.
„Þetta verður stórt og flott mót hjá
Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ
sem við ætlum að gera að árlegum
viðburði,“ segir hann, en skrán-
ing fer fram á heimasíðu Golfsam-
bands Íslands á slóðinni www.golf.
is. Nánari upplýsingar um Golf-
skálann er hins vegar að finna á
golfskalinn.is og á facebook.
Góð þjónusta og betra verð
Græjufíklar koma ekki að tómum
kofanum í Golfskálanum Mörk-
inni 3. Nýlega tók verslunin til
sölu fjarlægðarmælinn ParGate
PG 1500 CX sem hefur hlotið veru-
lega góðar undirtektir, að sögn
Hans Henttinen eins eigenda Golf-
skálans.
„Fólk er verulega ánægt með
þessa nýjung sem kemur frá Sví-
þjóð enda með því fullkomnara
sem fæst um þessar mundir,“
segir Hans og lýsir sérstöðu fjar-
lægðarmælisins nánar.
„Hann er til dæmis búinn sér-
stökum eiginleika sem kallast
SmartScan og kemur í veg fyrir
að hlutir úr umhverfi trufli þegar
verið er að mæla í flagg.“ Hans
bendir á að hefðbundið Scan geri
notanda kleift að ýta einu sinni
á takkann á mælinum og mæla
ýmsa hluti í einni skoðun og fá
mismunandi lengdir. „Hins vegar
er hægt að ýta tvisvar sinnum á
takkann á ParGate PG 1500 CX og
fá ávallt stystu mælinguna í hvert
sinn. Þetta er mjög handhægt.“
Hans tekur fram að ParGate PG
1500 CX mæli frá tólf upp í 950
metra með +/- 1 meter í skekkju
á innan við 270 metrum. Einn-
ig stækki PG 1500 CX sjöfalt á
meðan flestir fjarlægðarmælar
eru með fimm til sexfalda stækk-
un. Kíkirinn vegur aðeins 200
grömm og fer vel í hendi. „Svo
er liturinn líka skemmtilegur og
áberandi og því engin hætta á að
hann týnist,“ segir Hans kíminn.
Nánari upplýsingar á www.golf-
skalinn.is.
Frábær viðbót
í græjusafnið
ParGate PG 1500 CX er búinn ýmsum
góðum eiginleikum.
• Ecco Street skór
Verð frá 18.800 kr.
• Titleist ProV1 (dúsín)
Verð 9.800 kr.
• Rife pútterar
Verð frá 16.400 kr.
• Clicgear kerrur
Verð 37.800 kr.
Mörkin 3 | Sími 578 0120 | www.golfskalinn.is
GOLF