Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 26
15. JÚNÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR4 ● golf ● kynning Hin taívanska Yani Tseng styrkti stöðu sína á heimslista kvenna í golfi þegar hún vann sinn fimmta alþjóðlega titil á þessu ári um helgina. Tseng, sem situr á toppi listans, er 22 ára og vann keppni í Illinois í Bandaríkjunum á LPGA- mótaröðinni á laugardag. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem hún vinnur á LPGA mótaröðinni en einnig sjöundi titill hennar á LPGA mótaröðinni á fjórum árum. Í viðtali eftir sigurinn á laugar- dag sagðist Tseng ekki hugsa lengur um stöðu sína á toppi heims listans þar sem það væri markmið sem hún hefði nú þegar náð. „Mér hefur gengið frekar vel svo ég hugsa ekki lengur um það, vegna þess að það eru svo margir góðir golfarar á LPGA- mótaröðinni,“ sagði hún. - mmf Tseng trónir enn á toppnum Yani Tseng er 22 ára og situr á toppi heimslista kvenna í golfi. NORDICPHOTOS/AFP ● ELSTU GOLFLEIÐ BEININGARNAR Hug- leiðingar sem læknaneminn Thomas Kincaid skrifaði í dag- bók sína árið 1687 eru álitnar vera elstu leiðbeiningarnar um golfspilun. Hann spilaði golf á golfvellinum í Bruntsfield Links nærri háskólanum í Edinborg. Dagbókarfærsla Kincaid frá 20. janúar það ár inniheldur meðal annars hugleiðingar um golfkerfi fyrir fatlaða. Þá segist hann hafa farið út á golfvöll eftir kvöldmat og lýsir golfsveiflunni á þennan veg: „Ég uppgötvaði að eina leiðin til að spila golf væri að standa eins og maður gerir í skylmingum með litla sverðið, beygir hnén lítið eitt og heldur fótunum, bakinu og höndunum beygðum, föstum eða stífum og slakar alls ekki á meðan slegið er.“ ● HVAÐ ER GOLF? Golf er íþrótt þar sem leik- menn reyna að koma kúlu í holu í sem fæstum högg- um og er notast við kylfur með mismunandi fláa. Golf er ein af fáum íþróttum sem ekki eru spilaðar á ákveðið stórum velli eða vallarhelmingi, stærðin fer eftir stærð golf vallarins. Golf er talið vera frá Skotlandi og hefur verið spilað í að minnsta kosti 500 ár á Bretlandseyjum. Elsti golfvöllur í heimi er Old Links völlurinn við Musselburgh. Golf eins og við þekkjum það í dag hefur verið spilað á Old Links síðan 1672, svipaðar íþróttir voru þó leiknar nokkrum öldum fyrr. Heimild: wikipedia.org Sólstöðuhátíð víkinga í Hafnarfirði 16.- 20. júní 2011 Víkingamarkaður - Leikhópur Bardagavíkingar - Erlendir víkingar Víkingaveitingastaðir í tjöldum Kraftajötnar - Handverksvíkingar Dansleikir - Víkingasveitin Glímumenn - Eldsteikt lamb Víkingaveislur öll kvöld, o.fl.o.fl. Fimmtudagur 16. júní. 13.00 Markaður opnaður. 14.00 Bardagasýning Kynning á viðburðum næstu daga, sögumenn, götulistamaður, bogfimi, tónlist, o.s. frv. 18.00 Bardagasýning. 20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum. 21.00 Lokun markaðar. 23.00 Dansleikur Ólafur Árni Bjarnason Trúbador og víkingur. 03.00 Lokun. Föstudagur 17. júní. 13.00 Markaður opnaður. 14.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 14.30 Víkingaskóli barnanna. 15.00 Bardagasýning. 16.00 Víkingasveitin 16.30 Bogfimikeppni víkinga. 17.00 Bardagasýning. 18.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 19.00 Bardagasýning. 20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum. 20.00 Lokun markaðar. 22.30 Dansleikur í Fjörukránni. Gylfi, Rúnar Þór og Megas halda uppi gleðinni. 04.00 Lokun. Laugardagur 18. júní. 13.00 Markaður opnaður. 13.00 Kraftakeppni Magnúsar Ver 14.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 14.20 Kraftakeppni Magnúsar Ver 14.40 Víkingaskóli barnanna. 15.00 Bardagasýning. 15.30 Sagnafólk í Hellinum 16.00 Rósin okkar Þjóðleg tónlist 16.00 Kraftakeppni Magnúsar Ver 16.30 Bogfimikeppni víkinga. 17.00 Bardagasýning. 18.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 19.00 Bardagasýning. 20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum. 20.00 Lokun markaðar. 23.30 Bjartmar Guðlaugsson. 00.15 Dans á Rósum 04.00 Lokun Sunnudagur 19. júní. 13.00 Markaður opnaður. 14.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 14.30 Víkingaskóli barnanna. 15.00 Bardagasýning. 15.30 Sagnafólk í Hellinum 16.00 Rósin okkar Þjóðleg tónlist 16.30 Bogfimikeppni víkinga. 17.00 Bardagasýning. 18.00 Hringhorni sýnir forna leiki. 19.00 Bardagasýning. 19.30 Loka athöfn og víkingahátíð slitið 20.00 Víkingaveisla í Fjörugarðinum. 20.00 Lokun markaðar. 23.00 Tónlist í Fjörugarðinum að hætti víkinga. 02.00 Lokun. Dagskrá sólstöðuhátíðar 2011 Sólstöðuhátíð víkinga verður sett í fimmtánda sinn þann 16. júní og að vanda verður hún fjölbreytt. Dágóður hópur erlendra víkinga kemur til okkar, sumir í fimmtánda skiptið. Að venju eru flestir frá Norðurlöndunum og stærsti hópurinn kemur frá Færeyjum. Þá má nefna að einn besti handverksmaður Grænlands verður með okkur á hátíðinni. Sögumenn, götulistamenn, handverksmenn sem höggva í steina og tré eða berja glóandi járn, bardagamenn og bogamenn, svo eitthvað sé nefnt. Víkingahópurinn okkar Rimmugýgur og víkingahópurinn Hringhorni frá Akranesi verða að vanda með sína skemmtilegu bardaga og glímutök á hátíðinni. Fjöldinn allur af víkingum víðsvegar af landinu hefur boðað komu sína á hátíðina. Á þriðja hundrað víkingar verða á svæðinu þegar mest lætur og fjölhæfir eru þeir eins og sjá má á upptalningunni hér að framan. Dansleikir verða fastir liðir meðan á hátíðinni stendur. Þeir sem koma fram eru Gylfi, Megas og Rúnar Þór, Bjartmar Guðlaugsson og hljómsveitin Dans á Rósum og víkingurinn og trúbadorinn ÓlafurÁrni Bjarnason. Einnig mun hljómsveitin Rósin okkar koma fram en hún hefur sérhæft sig í þjóðlegri tónlist og ekki má gleyma okkar frábæru Víkingasveit. Í lokin vil ég þakka þeim sem stutt hafa þetta framtak í gegnum árin en lógóin þeirra sjást hér til hliðar. Þeir hafa ekki brugðist og eru búnir að standa með okkur í gegnum öll árin, þeim verður seint fullþakkað. Það er von mín að þessi hátíð eigi eftir að halda uppi merki víkinga og halda áfram að gleðja þá gesti sem á hátíðina koma. Gleðilega Sólstöðuhátíð Víkinga Jóhannes Viðar Bjarnason Fjölskylduhátíð HOTEL & Restaurants Nánari upplýsingar er að finna á heimsíðu okkar www.fjorukrain.is Sólstöðuhátíð víkinga er fyrir alla fjölskylduna 16. til 20. júní 2011 GARÐABÆR / ÁLFTANES LÉTTÖL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.