Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.06.2011, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 15.06.2011, Qupperneq 32
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR Horfið er aftur til fyrri tíma þegar stigið er inn fyrir þröskuldinn á Gömlu bókabúðinni við Hafnar- stræti 3-5 á Flateyri. Húsið við Hafnarstræti á sér enda langa sögu, en þar var starfrækt verslun frá 1908 til 1999. Lengst af ráku hjónin Jón Eyjólfs- son og Guðrún Arnbjarnar- dóttir verslun með sitt lítið af hverju, allt frá álnavöru til málningar og sælgætis. Eftir andlát Jóns árið 1950 rak Guðrún verslunina til dánardægurs árið 1983. Tóku börn og barnabörn þeirra hjóna þá við rekstri verslunarinnar og héldu honum áfram til ársins 1999. Árið 2003 festi Minja- sjóður Önundarfjarðar kaup á húsinu, sem hýsir auk verslunarinnar heimili þeirra Jóns og Guðrúnar. Íbúð þeirra stendur óbreytt að mestu leyti. Gestir fá tækifæri til að skyggnast inn í íbúðina og njóta þess gamla anda sem þar svífur yfir vötnum. Minjasjóður- inn rekur einnig bókaversl- un og minjagripaverslun í húsinu. Þar er hægt að kaupa notaðar bækur eftir gömlu búðarvigtinni, en kíló af lestrarefni kostar þúsund krónur. Þar má einnig kaupa ýmsa minjagripi og sælgæti í kramarhúsum. Auk þess sultur og seyði frá Dalbæ á Snæfjallaströnd, fjallagrös, jurtate og fleira. Í búðinni geta börn spreytt sig á að vigta grjón og hveiti á gömlu voginni eða skrifa með bleki og griffli. Gamla bókabúðin var nýverið opnuð fyrir sumar- ið og verður höfð opin út ágúst frá 11 til 17 alla daga nema sunnudaga, þegar hún er opin frá 14 til 17.Elskulegur eiginmaður minn, faðir og bróðir, Magnús Magnússon lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 7. júní. Útför hans fer fram í Grafarvogskirkju 20. júní kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja heldur Hjálparstarfsemi Kattholts. Reikningsnúmerið er 0113-15-38-1290 og kt. 550378-0199. Magnús hefði viljað það. Ingibjörg Erla Birgisdóttir Ólöf Margrét Magnúsdóttir Halldór Magnússon Gunnlaug Eyfells Árnadóttir Ólafur Erlingsson Sigríður Margrét Rósinkransdóttir Svavar Magnússon Emilía Júlía Kjartansdóttir Einlægar þakkir fyrir allar þær fallegu og hlýju kveðjur sem okkur bárust vegna andláts föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Þorsteins Jóakimssonar bifreiðarstjóra, Hlíf 2, Ísafirði. Starfsfólk heimahjúkrunar á Hlíf og læknar og starfs- fólk Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði fá sérstakar þakkir fyrir einstaka alúð og góða umönnun. Sigurbjörg Þorsteinsdóttir Páll Kristmundsson Rósa Þorsteinsdóttir Árni Aðalbjarnarson Gunnar Theodór Þorsteinsson Elín Huld Halldórsdóttir Friðgerður Þorsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. 60 ára afmæli Lilja Jónsdóttir er sextug í dag, 15. júní. Af því tilefni munu hún og eiginmaður hennar Snorri Guðmundsson taka á móti ætting jum og vinum milli klukkan 18 og 20 í Oddfellowhúsinu að Vonarstræti 10 í Reykjavík. Vonast þau til að sjá sem fl esta. Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Dóra Magga Arinbjarnardóttir lést fimmtudaginn 9. júní á deild B2, Landspítala í Fossvogi. Jarðarförin auglýst síðar. Sigurður Gestsson Guðný Elíasdóttir Hörður Ingi Torfason Grétar Páll Stefánsson Erla Sveinbjörnsdóttir Kristín Þóra Sigurðardóttir Haraldur Ragnarsson Salbjörg Sigurðardóttir Guðmundur Magnús Halldórsson Gestur Sigurðsson Íris Huld Guðmundsdóttir Linda Sigurðardóttir Páll Jóhannes Aðalsteinsson Axel Baldvinsson Halldóra Pétursdóttir Björgvin Kristjánsson Sigríður Ingólfsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Hans Ploder fagottleikari, lést á Landspítalanum Fossvogi hvítasunnudag 12. júní. Jarðarför verður auglýst síðar. Jóhanna Kristín Jónmundsdóttir Franz Ploder Aðalheiður Ploder Bryndís Ploder Björgvin Ploder Jóhanna Ploder tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, Ómar Árnason cand act, til heimilis að Móabarði 20, Hafnarfirði, lést á St. Jósefsspítala laugardaginn 11. júní. Fyrir hönd aðstandenda, Hrafnhildur Oddný Kristbjörnsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Haukur Frímann Pálsson mjólkurfræðingur frá Sauðárkróki, Nónhæð 2, Garðabæ, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 13. júní, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 20. júní klukkan 15.00. Sigurlaug Valdís Steingrímsdóttir Steingrímur Hauksson Maggý Dögg Emilsdóttir Sigrún Hauksdóttir Sigbjörn Ármann Theodóra Hauksdóttir Sigurður Sævar Gunnarsson og barnabörn Einlægar þakkir til allra þeirra er sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengda- móður, systir, ömmu og langömmu, Valgerðar Guðrúnar Vilmundardóttur Skúlagötu 20, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar A6 Landspítala Fossvogi og starfsfólks Múlabæjar fyrir góða umönnun. K. Kolbrún Baldursdóttir Guðmundur Fr. Ottósson Ásgeir Torfason Hrefna S. Sigurnýasdóttir Ástríður G. Torfadóttir Trausti Þ. Ævarsson Valgerður G. Torfadóttir Elías Kári Halldórsson Ragnhildur Torfadóttir Kristján Sigurðsson Þórunn Vilmundardóttir Jón Árni Vilmundarson barnabörn og barnabarnabörn Páll Ólafsson Norðurbrún 1, Reykjavík, lést föstudaginn 10. júní síðastliðinn. Fyrir hönd vandamanna, Sigurður Ólafsson. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, G. Kjartans Sigurðssonar vélstjóra, Háaleiti 27, Keflavík. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja fyrir alúð og góða umönnun. Megi guðs blessun fylgja ykkur öllum. Erla Sigurjónsdóttir Sigurjón Kjartansson Gerður Eyrún Sigurðarsóttir Margrét Ragna Kjartansdóttir Pétur Valdimarsson Hafdís Kjartansdóttir Árni H. Árnasson Sif Kjartansdóttir Haukur H. Hauksson Lilja Guðrún Kjartansdóttir Svanur Þorsteinsson barnabörn og barnabarnabarn. Okkar ástkæra Guðrún Guðmundsdóttir kjólameistari, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þann 13. júní síðastliðinn. Guðmundur Helgi Haraldsson Helga Þorkelsdóttir Kristrún Haraldsdóttir Þorbjörn Rúnar Sigurðsson og aðrir aðstandendur. AFTUR TIL FORTÍÐAR Í gömlu bókabúðinni á Flateyri er selt alls konar góðgæti, sultur, sælgæti, fjallagrös og fleira. Kíló af bókum á þúsund krónur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.