Fréttablaðið - 15.06.2011, Blaðsíða 42
15. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR34
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Ísland heldur enn í veika
von um að komast áfram í undan-
úrslit á Evrópumeistaramóti U-21
landsliða þrátt fyrir tap fyrir
Sviss í gær. Liðið er enn stiga-
laust í keppninni og hefur ekki
enn skorað mark.
Möguleikar Íslands felast í
því að vinna Dani nógu stórt um
helgina og treysta á að Sviss-
lendingar vinni sinn leik gegn
Hvít-Rússum. Af frammistöðu
liðsins að dæma í gær er hins
vegar ljóst að sú von snýst fyrst
og fremst um leik að tölum.
Strákarnir voru langt frá þeirri
spilamennsku sem einkenndi liðið
í undankeppninni og kom þeim
hingað til Danmerkur. Í gær urðu
þeir undir á öllum sviðum knatt-
spyrnunnar, sama hvert er litið.
Fabian Frei skoraði strax á
fyrstu mínútu leiksins og náði þar
með að rota íslenska liðið. Liðið
náði ekki rænu fyrr en í síðari
hálfleik en þá var staðan orðin
2-0 og Svisslendingar með leik-
inn í höndum sér.
Íslendingar skoruðu að vísu
mark sem var réttilega dæmt af
vegna rangstöðu og fengu eitt
færi til viðbótar sem ekki var
nýtt. Eyjólfur Sverrisson lands-
liðsþjálfari reyndi að koma sínum
mönnum inn í leikinn með því að
breyta um leikaðferð í hálfleik og
skipta tveimur varamönnum inn
á – þó svo að sá síðari hafið komið
inn á þegar stundarfjórðungur
var liðinn af síðari hálfleiknum.
„Ég vildi að strákarnir róuðu
leikinn aðeins niður og hægðu á
honum. Svisslendingar stjórnuðu
ferðinni algerlega í fyrri hálfleik
og við þurftum að brjóta upp leik-
inn. Við þurftum líka að hafa þor,
vera nær leikmönnum og þétt-
ari fyrir. Þegar einn leikmaður
stendur í svæði þurfa hinir líka
að vera í svæði,“ sagði Eyjólfur
við Fréttablaðið eftir leikinn.
„Ég talaði einnig mikið um það
í hálfleik að fótbolti byrjar allt-
af á baráttunni. Þú þarft fyrst
að sýna andstæðingnum að þú
ætlar þér að vera með undirtök-
in í leiknum og þá fyrst kemur
fótboltinn. Við sýndum það í allri
undankeppninni að þegar bar-
áttan er í lagi er fótboltinn líka
í lagi. Þannig var það alls ekki í
fyrri hálfleik.“
Eggert Gunnþór Jónsson,
hægri bakvörður Íslands, var
ekki að skafa af hlutunum.
„Þetta var alveg hrikalegt og
það eru engar afsakanir sem við
getum falið okkur á bak við. Við
komumst aldrei í gang og þeir
voru að leika sér að okkur hvað
eftir annað. Við litum út eins og
vitleysingar,“ sagði Eggert.
Svisslendingar voru búnir að
vinna baráttuna á miðjunni strax
á fyrstu mínútu og gáfu völdin
aldrei eftir. Ekki var nóg með að
Svisslendingar stjórnuðu spilinu
lengst af í leiknum heldur voru
þeir einnig gríðarlega duglegir
að setja pressu á Íslendinga þegar
strákarnir fengu svo loksins
boltann. Fyrir utan stuttan kafla
í síðari hálfleik áttu Íslendingar
fá sem engin svör við því. Þeim
var einfaldlega ekki leyft að spila
sinn leik.
„Það vantaði alla grimmd í
okkur,“ sagði Eggert. „Þeir unnu
öll návígi og börðust allan tím-
ann. Markið setti okkur úr jafn-
vægi og við komumst aldrei í takt
við leikinn. Við vorum auðvitað
búnir að fara yfir hvernig þeir
spila en náðum samt aldrei að
loka á það í fyrri hálfleik. Þetta
breyttist í þeim síðari en þá voru
þeir komnir með 2-0 forystu og
lögðu áherslu á að halda fengnum
hlut. Okkur gekk betur í seinni
hálfleik en þá var það of seint.“
Of margir leikmenn íslenska
liðsins brugðust í gær og mátti
sjá á viðtölum við þá eftir leik
að þeir vissu það sjálfir manna
best. Eyjólfur náði ekki að leysa
þau vandamál sem fylgdu því að
missa Aron Einar Gunnarsson í
leikbann og kom enn betur í ljós
í gær hversu dýrkeypt það hefur
reynst íslenska liðinu. Liðið hefur
fengið öll sín fjögur mörk á sig
eftir að Aron Einar fékk rauða
spjaldið og gæði liðsins hafa um
leið fallið um marga flokka.
Ekkert annað kemur til greina
en að láta slag standa gegn
Dönum og reyna að grípa síðasta
hálmstráið. Leikurinn er þó fyrst
og fremst tækifæri fyrir strák-
ana að sýna sitt rétta andlit og
minna okkur hin á að þrátt fyrir
allt séu bjartir tímar fram undan
í íslenskri knattspyrnu.
Álaborg, áhorf.: 1903
Ísland Sviss
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–13 (3–6)
Varin skot Haraldur 3 – Sommer 2
Horn 1–5
Aukaspyrnur fengnar 25–19
Rangstöður 2–5
ÍSLAND 4–3–3
*Haraldur Björnsson 7
Eggert Gunnþór Jónsson 6
Hólmar Örn Eyjólfsson 5
Jón Guðni Fjóluson 5
Hjörtur Logi Valgarðsson 5
Guðmundur Kristjánsson 5
Bjarni Þór Viðarsson 4
(46. Birkir Bjarnason 6)
Gylfi Þór Sigurðsson 5
Rúrik Gíslason 6
Alfreð Finnbogason 3
(46. Björn Bergmann Sigurðarson 7)
Kolbeinn Sigþórsson 5
0-1 Fabian Frei (1.)
0-2 Innocent Emeghara (40.)
0-2
Strahonja, Króatíu (6)
HELGA MARGRÉT ÞORSTEINSDÓTTIR úr Ármanni og ÍR-ingurinn Einar Daði Lárusson keppa bæði í Kladno
í Tékklandi í dag og á morgun í einni sterkustu þrautarkeppni heims. Helga Margrét setti Íslandsmet sitt í sjöþraut í
Kladno fyrir tveimur árum (5.878 stig) en hún þarf að ná 5.950 stigum til þess að ná lágmörkum fyrir Heimsmeistara-
mótið sem fer fram í Daegu í Suður-Kóreu í haust. Einar Daði keppir þarna í fyrsta skipti í tugþraut í karlaflokki.
Við komumst aldrei í
gang og þeir voru að
leika sér að okkur hvað eftir
annað. Við litum út eins og
vitleysingar.
EGGERT GUNNÞÓR JÓNSSON
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
og Anton Brink
fjalla um EM
U21 í Danmörku
eirikur@frettabladid.is - anton@frettabladid
v
Gríptu tækifærið
og græjaðu þig
upp fyrir bústaðinn.
Magnaðir miðvikudagar!
4GB minnislykill
fylgir öllum
netlyklaáskriftum
í dag
Á m
eða
n b
irg
ðir
e
nd
as
t.
EKKERT STIG OG EKKERT MARK EFTIR TVO LEIKI Gylfi Þór Sigurðsson og Kolbeinn
Sigþórsson gátu ekki leynt vonbrigðum sínum í leikslok í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Strákarnir slegnir í rot í fyrsta höggi
Mark Fabians Frei eftir tæpa eina mínútu sá til þess að strákarnir í U-21 landsliðinu áttu aldrei von gegn
Sviss í gær. Yfirburðir Svisslendinga voru ótvíræðir lengst af og 2-0 sigur þeirra var síst of stór.
FÓTBOLTI Íslenska 21 árs landsliðið
á enn smá von að komast í
undanúrslitin á EM í Danmörku
þrátt fyrir að hafa tapað tveimur
fyrstu leikjum sínum í riðlinum.
Danir unnu 2-1 sigur á Hvít-
Rússum í seinni leik riðilsins
í gær, en þau úrslit héldu von
íslensku strákanna á lífi.
Ísland kemst nú í undanúrslitin
með því að vinna Dani 4-1
en Svisslendingar verða þá
líka að vinna Hvít-Rússa í
lokaumferðinni á laugardaginn.
Ísland, Danmörk og Hvíta-
Rússland væru þá öll jöfn að
stigum en íslenska liðið væri með
bestan árangur úr innbyrðis-
leikjum þessara þriggja liða þar
sem liðið væri búið að skora flest
mörk. - óój
Enn veik von hjá Íslandi:
Verða að vinna
Danina 4-1
RÚRIK GÍSLASON Spilar í Danmörku og
þekkir Danina vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Þeir Gylfi Þór Sigurðs-
son og Alfreð Finnbogason sögðu
báðir eftir tapið gegn Sviss í gær
að þeir væru afar óánægðir með
eigin frammistöðu. Sviss vann
leikinn, 2-0, og er Ísland enn án
stiga í mótinu.
„Þetta hefur verið mjög erfitt
fyrir mig,“ sagði Gylfi. „Ég spil-
aði langt undir getu bæði í þess-
um leik og þeim síðasta. Ég er
aðallega ósáttur við sjálfan mig
og ég á að spila betur en ég hef
verið að gera. Ég skulda liðinu
mikið,“ sagði Gylfi.
Alfreð tók í svipaðan streng.
„Það voru allir á hælunum í kvöld
og því miður get ég bara borið
ábyrgð á minni frammistöðu. Hún
var mjög döpur og ég þarf greini-
lega að skoða mín mál.“
Gylfi vonast til að fá tækifæri
gegn Dönum á laugardaginn til
að endurgjalda stuðningsmönnum
Íslands fyrir að styðja við liðið.
„Áhorfendurnir í kvöld voru
mjög flottir og við strákarnir
erum þeim þakklátir fyrir stuðn-
inginn. Við þurfum að borga
öllum þeim til baka sem hafa
flogið yfir til Danmerkur og stutt
okkur, með því að sýna okkar
rétta andlit gegn Dönum.“
- esá
Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason:
Ósáttir við sjálfa sig
ALFREÐ FINNBOGASON Fékk tækifæri í
byrjunarliðinu á móti Sviss en fann sig
engan veginn. Hér sést Alfreð í leiknum
í Álaborg í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON