Fréttablaðið - 27.06.2011, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 27.06.2011, Blaðsíða 36
27. júní 2011 MÁNUDAGUR20 BAKÞANKAR Júlíu Margrétar Alexanders- dóttur 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. hvetja, 6. í röð, 8. dorma, 9. háttur, 11. tveir eins, 12. rabb, 14. gistihús, 16. málmur, 17. hyggja, 18. pili, 20. tveir eins, 21. yfirstétt. LÓÐRÉTT 1. elds, 3. í röð, 4. hagsæld, 5. þróttur, 7. afturhluti, 10. kvk nafn, 13. sigað, 15. fiskur, 16. geislahjúpur, 19. skóli. LAUSN LÁRÉTT: 2. örva, 6. áb, 8. sef, 9. lag, 11. ll, 12. skraf, 14. hótel, 16. ál, 17. trú, 18. rim, 20. ðð, 21. aðal. LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. rs, 4. velferð, 5. afl, 7. bakhlið, 10. gró, 13. att, 15. lúða, 16. ára, 19. ma. Lestaferð með glerbotni Jæja, nú förum við heim og njótum ásta! Mona, viltu vera svo væn að slaka á. Það er svo leiðinlegt hérna!!! Ég bókstaflega hef ekkert að gera!! EKKERT!!! Komdu og hjálpaðu mér með uppvaskið. Nei, ég er upptekinn. Góðan daginn Komdu og gefðu mömmu knús! Er þetta bara ímyndun í mér eða vill hún ekki knúsa mig? Ég held að þetta sé ekki ímyndun í þér. Ferðamanna- straumurinn liggur ekki í þetta tæki Lesendur okkar eru á öllum aldri með ólíka sýn á lífið – og við þjónum þeim öllum Allt sem þú þarft Ég fer að sofa klukkan ellefu á kvöld-in. Ég borða hollt og reglulega, vinn sjö tíma á dag og flæki ekki líf mitt að óþörfu. Með þessu móti get ég ágæt- lega sinnt starfi og foreldrahlutverki. Ef vinnudagarnir vinda aukaklukkustundum upp á sig sést það fljótt. Skrifborðið mitt fer að líkjast kókkæli eftir jarðskjálfta, heilinn, sem þráir hvíld, gerir mér skráveifur og prófarkalesarar reyta hár sitt. Að slíkum vinnu- vikum loknum líður mér eins og eftir endajaxlatöku og ég legg ekki í einn auman þvottabala. ÞEIR sem vakta líf og limi okkar á spítölum landsins vinna oft tvöfalt lengri vinnuviku en ég í tímum talið. Samkvæmt skýrslu vinnueft- irlitsins frá árinu 2003 vann fjórði hver læknir meira en sextíu tíma vinnuviku og voru þá ótaldar þær klukkustundir sem fylgja auka vaktavinnu. Núna, átta árum síðar, segja læknar að álagið á starfsfólk spítalanna hafi aldrei verið meira og má rétt ímynda sér að vinnu- stundirnar séu orðnar töluvert fleiri en þegar þessi könnun var gerð. BRÁÐADEILD Land- spítala starfar langtím- um saman á rauðu eða svörtu álagsstigi – stigi sem læknar kalla sín á milli „ham- farastigið“. Þessu greinir Morgunblaðið frá um helgina. Sjúklingar liggja á öllum göngum og starfsfólkið er á hlaupum. Álagið á spítölum er almennt mjög mikið og á þau gólf vantar þar að auki sextíu til áttatíu lækna. Í þessum éljagangi þarf að fremja skurðaðgerðir, stinga nálum í smábörn og taka á móti ungmennum eftir alvarleg bílslys. Ég efa að mér tækist að líma á mig plástur eftir sextíu klukku- stunda vinnutörn. ÁN EFA hefur sjaldan verið mikilvæg- ara að fara snemma að sofa, borða hollt og reyna að halda heilsu. Ekki bara til að geta sinnt lífi sínu heldur líka til að þurfa ekki að auka á álag heilbrigðis- starfsmanna. Maður flækist ekki að óþörfu fyrir á gosstað. Fjölskyldumeð- limur minn er ekki jafn heppinn, hann hefur fengið fimm nýrnasteinaköst á fjórum vikum og verið fluttur jafnoft á bráðamóttöku með sjúkrabíl. Hann hefur mætt starfsfólki sem heldur heitorðum lækna á lofti; að beita kunnáttu sinni með fullri alúð og samviskusemi. Eini sérfræðingurinn sem getur ráðið fram úr hans málum kemur hins vegar ekki úr fríi fyrr en eftir nokkrar vikur. Þangað til liggur þessi fjölskyldumeðlimur og tekur verkjalyf, óvinnufær. Guð blessi Ísland. Hjálpi þeim hver heilagur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.