Fréttablaðið - 29.06.2011, Blaðsíða 21
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
Nokkrir danskir og norskir flugvellir
munu bjóða upp á fría nettengingu. Í
Noregi hefur þessi stefna verið í gildi frá í
vor en Danirnir fella niður gjaldið í byrjun
vetrar. Í Leifsstöð kostar nettengingin
490 krónur. www.turisti.is
Á
hugi á kraftmiklum
farartækjum blund-
ar í fjölskyldunni og
er líklega ákveðinn
genagalli,“ segir Gunnar Pálmi
Péturs son, bifvélavirki og fyrr-
um torfærukappi hlæjandi. Hann
er nýbúinn að kaupa sér Merc-
edes Benz AMG sportbíl, þann
eina hérlendis með sex strokka
360 hestafla vél, og sýndi flotta
takta í spyrnukeppni Bíladaga
á Akureyri nýlega. „Mig hefur
lengi langað að vera á opnum
bíl, það er visst frelsi sem fylgir
því. Ég fann þennan á Ebay og
tók skyndiákvörðun um að kaupa
hann en það tók hálft ár að koma
honum til landsins og ég er að
læra á hann. Tókst ekki að nýta
allt aflið í spyrnunni og spólaði
hálfa leiðina.“
Jón Vilberg, sonur Gunnars
Pálma, fékk bikar á Bíladögum
fyrir fegurð sinnar rauðu Chevr-
olet Corvettu. Hana keypti hann
frá Texas þegar hann var sextán
ára en þegar hún kom til landsins
var hún í allt öðru ástandi en lýst
var á netinu. „Það þurfti að taka
hana alla í gegn, sprauta hana,
gera upp vélina, skiptinguna og
fleira og ég tók ekki fyrsta rúnt-
inn á henni fyrr en tvítugur,“
segir Jón Vilberg sem er bifvéla-
virki og sjómaður og kveðst
keyra Corvettuna svona 800 kíló-
metra á ári. „Þetta er sparibíll.“
gun@frettabladid.is
Ákveðinn genagalli
MYND/HEIDA.IS
Feðgarnir Gunnar Pálmi Pétursson og Jón Vilberg Gunnarsson eiga tvo af álitlegustu sportbílum Íslands.
Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110
Láttu okkur þjónusta bílinn þinn og
sparaðu 20% í leiðinni
SPARAÐU
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara